Vikan


Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 26

Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 26
FYRST KARLMAÐUR-SÍÐAN KONA hús dr. Duras, eftir átta vikna dvöl þar, fór hún að kanna hina nýju veröld. Fyrst lá leið hennar í nærfata- deild í stórri verzlun. Jeanette segir: — Mér þótti mjög notalegt að handleika þess- ar mjúku silkivörur, velja ilm- vatn, púður og varalit. Aðspurð hvort hún hefði ekki farið hjá sér fyrst í stað, í þess- um búningi, segir hún: — f fyrstu glumdi svolítið í háu hæl- unum á gangstéttinni. En mér fannst notalegt að finna fyrir pilsinu. Ég reyndi að sjá það á vegfarendum hvort eitthvað væri athugavert við mig, en varð þess ekki vör. Hún var greinilega kvenleg. Hún fékk svo atvinnu sem gengilbeina á veitingahúsi. Hún var mjög nákvæm með snyrtingu sína, enda virtust karlkyns gestir veitingahússins ánægðir með frammistöðu hennar. Og svo kynntist hún karl- manni frá Marselle. Hann var nokkuð eldri, en henni fannst það ekkert verra, henni fannst þá sem hún væri sjálf ennþá yngri. Það var af tilviljun að hann rakst inn á þessa veitingastofu. Hann var frekar óframfærinn, en hann fór þó að venja kom- ur sínar þangað, og að lokum kom að því að hann bauð henni í helgarferðalag. Þessi kynni byrjuðu eins og venjulegt ástar- ævintýri, og Jeanette var mjög hamingjusöm. Það virtist sem öll vandamál hennar væru nú leyst. En svo fór hann að tala um hjónaband, já, og jafnvel um að eignast börn. Atti hún að segja honum sann- le'kann? Hún var á báðum átt- um í viku, en svo ákvað hún að segja honum frá fortíð sinni. — Ég sá það á andliti hans hve skelfingu lostinn hann var. Hann sagði ekki neitt og ég óska þess að ég hefði aldrei séð hann. Næsta dag kom hann ekki, eins og hann hafði þó talað um. Bréfin, sem hún skrifaði honum, komu óopnuð til baka. Hún sá hann aldrei framar. — Ég þjáðist hræðilega og hugsaði jafnvel um að svipta mig lífi. En hún fékk sér stöðu á öðr- um stað, og náði sér von bráðar. — Ég hitti karlmenn og kunni vel við mig í félagsskap þeirra, var hreykin þegar þeir sögðu að ég væri lagleg stúlka. En það var ekki stundargaman sem ég þráði Svo ákvað hún að fara frá París. Hana langaði til að fara til æskustöðvanna. Hún keypti bíl á Flóamarkaðinum, lét gera úr honum íbúðarvagn og hélt til eyjarinnar Re, við vesturströnd Frakklands. Þangað var farið til að heimsækja Jeanette fyrir nokkrum vikum. Þegar blaðamennirnir komu til hennar var hún að ríða net, og var í bláum gallabuxum og gamalli ullarpeysu, sem var svo þröng að mjög mikið bar á brjóstunum. Sítt, kastaníubrúnt hárið var bundið saman í hnakk- anum. Hún var ekki ólík söng- konunni Lale Anderson. En hendur hennar voru hrjúfar og röddin dimm. Um kvöldið var hún búin að hafa fataskipti, var þá mjög að- laðandi og vel snyrt. En í vagn- inum hennar var mynd af tve:m telpum, og hún var í raun og veru faðir þeirra. Jeanette hefur verið skilin við „konu“ sína í átta ár. — Sjáið þér þá ekki fyrrver- andi konu yðar? — Hún kemur oft með telp- urnar. Við erum eiginlega eins og systur. — En börnin? — Þær kalla mig frænku, þær vita ekkert annað. Þannig er líf hennar, sem einu sinni var Jean Jousselot. Er hún ánægðari, eða iðrast hún eftir að hafa látið gera þessa aðgerð? - Nei, ég hef aldrei iðrazt þess. Fyrra líf mitt, 36 vandræða- ár, er liðið. Mér finnst að nú sé ég að nrnnsta kosti ég sjálf. Þessi kynskipting á Jeanette Jousselot er frá læknisfræðilegu sjónarmiði mjög athyglisverð, en frá mannlegu sjónarmiði er þetta raunar sorgarsaga: Tvö börn missa föður sinn og eiginkona manninn. En þessi furðusaga er þó ekk- ert einsdæmi, og skal hér iítil- lega drepið á örlög nokkurra ann- arra, sem hafa orðið fyrir þessu og snúizt við því á sama hátt og Jeanette: IADY ASHLEY- CORBETT En það er ekki alltaf sem kyn- skipti leiða til fullkominnar gleði, og bezta dæmið um það er hlutskipti Lady Ashley-Corbett. Lord Rovalland Corbett var ekki í neinum vafa, þegar hann hitti fyrirsætuna April Ashley, að hann hefði fundið ,,þá einu réttu“. Og nokkru síðar varð hún Lady Ashley-Corbett, gift ein- um ríkasta manni í Englandi. Lady Corbett þekkti allt fína fólkið í London, og þau hjónin áttu íbúð í London, landsetur á Englandi og sumarhús á Spáni. Það leit út fyrir að April hefði höndlað hamingjuna. Það vissu ekki margir um uppvaxtarár hennar og það var gott, því að hún var fædd sem drengur. Hann var 19 ára og staddur í París, er hann komst að því að mögu- leikar voru á þvi að breyta um kyn, en hann hafði alltaf haft það á tilfinningunni að hann yrði hamingjusamari sem kona. — Fyrsti áfanginn var hor- mónagjafir, en síðar var gerð aðgerð á einkasjúkrahúsi í París. Þá gat ég snúið mér að þvi að fá skilríkjum mínum breytt . Svo varð George Ashley April Ashley, sem varð fyrirsæta. Hún kynntist svo Lord Corbett og varð konan hans. Þau voru gift í þrjú ár, en þá var það orðið ljóst að April var haldin verulegri kyndeyfð. Nú lifir hin fyrrverandi lady Ashley-Corbett hinu ljúfa lífi fyrirsætunnar ýmist í London eða Róm. Hún virðist ánægð eins og er. 26 VIKAN 5-tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.