Vikan


Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 16

Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 16
Leynífarþegínn mtnn M 111 EFTII JOSEPH COHRAO 2. HIUTI TEIKNING BALTASAR Þessi kvíði var fullgott svar við spurningu minni. I því fól- ust svo átakanlega vandræði mannsins öll. Ég lokaði gluggan- um varlega, svo öllu væri óhætt. Þá mátti tala ofurlítið hærra. „Hver var þetta?“ hvíslaði hann þá. „Annar stýrimaður minn. En þann mann þekki ég ekki frem- ur en þér gerið.“ Ég fór að segja leynifarþega mínum undan og ofanaf um sjálf- an mig. Ég sagðist hafa verið ráðinn skipstjóri óviðbúinn, fyr- ir hálfum mánuði. Engan tíma haft til viðbúnaðar og undirbún- ings. Og hvað skipshöfnina snerti, þá vissi enginn þeirra neitt um mig, nema að ég ætti að stýra skipinu heim á leið. — Annars, sagði ég, var ég ámóta ókunnugur á skipinu og hann. Og aldrei hafði ég fundið eins til þess og núna. Ég sagðist finna það á mér, að lítið þyrfti út af að bera svo ég yrði ekki næsta tortryggilegur í þeirra augum. Meðan ég var að segja þetta, sneri hann sér að mér, og við, þessir tveir framandi menn á skipinu, litum nú hvor á annan, og okkur virtist nokkuð jafnt vera á komið með okkur báð- um. „Stiginn,“ hvíslaði hann eftir dálitla þögn. „Hver mundi hafa haldið að stigi væri úti við skips- hlið um hánótt, og það á skipi, sem lægi við akkeri! Þegar ég sá þetta kom yfir mig óþægileg- ur dofi. Hver maður annar, sem hefði lifað slíka meðferð, sem ég hafði orðið að þola, í níu vikur, hefði verið orðinn þróttlaus. Enda var ég uppgefinn. Og sjá, þarna er þá stigi! Og svo greip ég í hann. Samt sagði ég við sjálfan mig: hvað þýðir þetta? Og þegar ég sá mann sem kall- aði til mín, þá var rétt komið að mér að sleppa stiganum og synda burt og láta hann kalla á eftir mér, hvaða tungumál, sem það annars væri, sem hann kallaði á. Mér var sama þó að einhver sæi mig. Mér þótti það bara gott. Og svo töluðuð þér til mín svo þægi- lega, eins og þér hefðuð búizt við mér. Og þá hætti ég við að sleppa takinu á stiganum. Ég var í slæmri klípu, ekki einungis eftir að ég lagði í þetta sund, heldur hafði ég engan haft til að tala við svo lengi. Eg varð svo feginn að mega eiga orða- stað við mann, sem ekki var á Safóru. Og þegar ég spurði eft- ir skipstióranum, þá var það svona af því mér datt það í hug. Ekki hefði ég treyst mér til að vænta neins góðs af því, því þa hlaut að komast upp um mig, og óvinirnir komnir að sækia mig í fyrramálið. Eg get ekki með vissu sagt hvað mér gerði, hvort það var einungis þörfin á að sjá mann og tala við mann, áður en ég héldi áfram. Ég veit ckki hvað ég kynni að hafa sagt. .. . „Gott veður í kvöld," eða eitt- hvað þvíumlíkt.“ „Haldið þér, að þeir verði komnir áður en varir?“ sagði ég dálítið vantrúaður. „Það þykir mér fiarska lík- legt.“ saeði hann dauflega. Allt í einu var hann orðinn breyttur — framúrlegur svo ógn var að siá. Það var varla að hann héldi höfði. ...Tæia bá. Ætli við reynum ekki að mæta þeim. En væri ekki grænst að reyna að sofa bangpð til? Þarna er rúmið,“ hvíslaði é?. ..Þarf ég að hjálpa yður? Ée skal koma.“ Það var óvenju hátt upp í rúmið og skáDar undir því. Þessi sundgarpur barfnaðist sannar- lega þess að ég rétti honum hjálparhönd og Ivfti fótunum upp í. Hann valt útaf, velti sér upd í loft og lagði handlegg yfir augun. Oe þegar hann var kom- inn í bessar stellingar og lítið sem ekki sást framan í hann, skil ég ekki að nokkur hefði þekkt okkur að. Ég stóð í sömu sporum stundarkorn og horfði á þennan tvífara minn, og svo dró ég rúmtjöldin fyrir, en þau léku á högldum á koparstöng. Mér datt í hug snöggvast að krækja þeim saman til frekara öryggis, en eg var þa setztur a bekkinn og nennti einhvern veg- inn ekki að standa upp til að na í nælur. É'g ætlaði að gera það þegar ég væri búinn að jafna mig betur. Ég var eitthvað svo úrvinda, þreyttur og hryggur inn í hjart’arætur, af því að þurfa að laumast svona með manninn og hvísla og svo af því að þurfa að bera með honum þessa skelfilegu launung. Klukk- an var orðin þrjú og ég hafði verið á fótum síðan níu um morguninn, en samt var ég ekk- ert syfjaður. ég hefði ekki get- að sofnað. Þarna sat ég svona dauðþreyttur, og hafði ekki aug- un af rúmtjöldunum, og reyndi að átta mig á þeirri furðu að ég skyldi þurfa að vera á tveimur stöðum í einu, og þá hrökk ég allt í einu í kút, því mér fannst ég heyra barið hátt inni í höfð- inu á mér. En svo rann það upp fyrir mér, mér til óumræðilegs léttis. að högein voru ekki inni í höfðinu á mér, heldur var bar- ið að dvrum. Og þá vissi ég ekki fyrr til en ég var búinn að segia: „Kom inn“, og brvtinn kominn inn með morgunkaffið mitt á bakka, svo ée hafði þá sofnað. þrátt fyrir allt, og svo rinelaður varð ég og skelfdtjr, að ég hrópaði hátt: „Hineað! Ég er hérna, bryti,“ eins og hann hefði verið í mílna fiarlægð. Hann setti bakkann á borðið sem næst var legubekknum, og saeði um leið. ósköp hóglátlega: „Þér sjáið að þetta er ég, herra.“ Ég bóttist verða þess var að hann liti á mig nokkuð fast, en ég þorði ekki að líta á móti. Hann hlýtur að hafa spurt sjálfan sig hvernig á því stæði að ég hefði dregið rúmtjöldin fyrir en farið svo að sofa á legubekknum. Svo fór hann út, og krækti hurðinni upp, eins og hann var vanur. Ég heyrði að farið var að þvo þilfarið yfir höfði mér. Ég vissi að mér hefði óðar verið sagt til, ef nokkur byrvindur hefði bært á sér. Svo það hlaut að vera logn. Ekki þótti mér það góð tilhugs- un. Sannast að segja var ég tvíl- ráðari en nokkru sinni fyrr. Og svo kemur brytinn aftur þegar mig sízt varði. Ég stökk upp af slíkri skyndingu að hann hrökk við. „Hvað viljið þér?“ „Eg ætla að loka glugganum hjá yður, því það er verið að þvo þilfarið." „Hann er lokaður,“ sagði ég og roðnaði. „Allt í lagi, herra,“ sagði hann. En hann fór ekki úr gættinni, heldur mætti hann augnaráði mínu með nokkuð annarlegri festu litla stund. Svo fóru aug- un að flökta, og allur andlits- svipurinn breyttist, og hann sagði með óvenjulega blíðri rödd, og brá fyrir í henni hreim af stríðni: „Má ég koma og taka bollann yðar, herra?“ „Því ekki það?“ Ég sneri við honum baki meðan hann var að þessu, svo lokaði ég hurðinni, af- læsti, og setti slagbrand fyrir. Þetta mátti varla góðri lukku að stýra til lengdar. Það var ill- heitt inni í klefanum, og ekki bætti það um. Ég gægðist á tví- farann minn, og sá að hann lá í sömu stellingum, handleggurinn lagður yfir augun, eins og þegar hann lagðist fyrir, en brjóstið bærðist fyrir andardrættinum, hárið var vott, og sviti spratt á hökunni. Ég rétti út hönd yfir hann og opnaði gluggann. „Ég verð að láta sjá mig uppi,“ hugsaði ég. Því varð samt ekki neitað, að samkvæmt stöðu minni gat ég gert hvað sem mér sýndist, án þess nokkur maður á skipinu hefði vald til að skipta sér af því, en að loka klefanum og taka lykilinn, það þorði ég ekki. Um leið og ég kom fram frá félaga mínum, sá ég stýrimenn mína báða, annar stýrimaður berfættur, fyrsti í gúmmístígvél- um, og brytinn kominn hálfa leið niður stigann að tjá þeim eitthvað af mesta áhuga. Hann sá mig og hörfaði, flýtti sér úr augsýn, en annar stýrimaður stökk í mesta flýti yfir á aðal- þilfar og fór að hrópa upp ein- hverjar fyrirskipanir, en fyrsti stýrimaður kom til mín, og sneri við húfunni. Mér sýndist ekki betur en að hálfdulin forvitni lýsti sér í aug- unum, og það kom ekki vel viö mig. Ekki veit ég hvort brytinn hefur sagt honum að ég væri „skrýtinn", eða að ég væri dauðadrukkinn, en það sá ég þegar, að hann var að gefa gæt- ur að mér. Ég beið eftir honum með bros á vör, sem hafði þau áhrif þegar ég var kominn vel í ljósmál, að það var því líkast sem sjálft skeggið frysi. Ég leyfði honum ekki að verða fyrri til að ávarpa mig. „Gerið að reiðanum!" Þetta var hin fyrsti fyrirskip- un mín eftir að ég tók við skip- stjórninni, og ég beið uppi með- an hún var framkvæmd. Mér hafði fundizt þörf á að láta sjá að ég gæti látið til mín taka. Þessi ófeilni strákur varð sumsé að lægja drambið dálítið við Framhald á bls. 33. 5. tbi. VIKAN 17 16 VIKAN s- tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.