Vikan - 30.01.1969, Page 14
Nýr búningur fyrir
geimfara
í geimferð Bandaríkjamannanna
þriggja í Apolló var prófaður
nýr geimbúningur. Þeir tveir
Bandarikjamenn, sem í lok næsta
árs eiga að stíga fæti á tunglið,
fyrstir manna, eiga að klæðast
honum við það tækifæri. Búning-
urinn er hvorki meira né minna
en fimmtánfaldur, og hefur hvert
lag sérstakt hlutverk: eitt hrind-
ir frá sér kulda, annað hita,
þriðja eldi, fjórða vætu, fimmta
geislun, sjötta loftsteinum og svo
framvegis. Hver búningur er um
tuttugu kíló að þyngd og kostar
eitthvað átta til níu milljónir
króna. Við bakið er fest taska. í
henni eru öndunartæki, kælir
fyrir nærfötin og skeytatæki.
Búningurinn er með rennilás,
og geimfarinn hægir sér gegn-
um rör, sem loka má í báða enda.
Það er svo tæmt með dæluút-
búnaði. Saur og þvagi er safnað
í plastpoka, sem eru rækilega
einangraðir, því ekki er ætlazt
til að menn skilji eftir bakteríur
eða aðra skaðsemd á tunglinu.
Pokarnir eru geymdir í læstu
hylki í geimfarinu, og er inni-
hald þeirra rannsakað undireins
og komið er niður á jörð.
☆
Sú var tíðin — sem líklega er
ekki alveg liðin enn — að djarfir
U-2-flugmenn fljúga yfir megin-
löndin og taka njósnamyndir fyr-
ir stórveldin. Frægastur slíkra
hefur orðið Bandaríkjamaðurinn
Powell, sem skotin var niður yf-
ir Sovét og heilmikill glumru-
gangur varð kringum.
í stað þessara kappa eru nú
óðast að koma geimför,
sem eru í stöðugum hringferðum
um hnöttinn. Þau eru svo vei
búin tækjum að fróðir menn
telja að fátt sé það eða réttara
sagt ekkert á jörðinni okkar, sem
þau ekki þefi uppi.
14 VIKAN 5 tbl