Vikan - 30.01.1969, Qupperneq 32
Ronson
HÁRÞUREKA HEIMILANNA
TTLVALTN TÆKIFÆRISGJÖF
EINKAUMBOB:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVlK
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Nú um stund hefurðu mikið að gera, því aðal-
hjálparhella þín skorast úr leik. Þú nýtur sam-
funda með fólki, sem þú hittir mjög sjaldan. Þú
reynir nýjungar, sem gefa góða raun.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þreyta og sljóleiki eru óvinir þínir um sinn; láttu
samt sem minnst fara framhjá þér. Sambýlismað-
ur þinn gerir þér greiða. Þú færð gott tilboð í hlut
er þú átt. Þú færð margar rukkanir.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú nýtur meiri hjálpar en þú hafðir búizt við og
því lýkurðu verkefnunum af á réttum tíma. Þú
ferð í nokkurra daga ferðalag með skemmtilegu
f jlki. Þú tekst á við nýjan vanda.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Maður í fjölskyldutengslum við þig tekur af þér
snúninga sem þú hefur lengi kviðið fyrir. Þú verð-
ur fyrir nokkrum átroðningi af fólki, sem þér er
lítið um. Pósturinn á margar ferðir til þín.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú ert ekki ánægður með starfsaðstöðu þína. Þú
hugsar mikið um að breyta til og framkvæmir
ýmislegt því til undirbúnings. Þú kaupir hlut er
veitir þér mikla og daglega þjónustu.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú átt langa og lærdómsríka ferð fyrir höndum.
Þú verður vitni að atvikum sem auka skilning þinn
á afstöðu ákveðinna aðila. Þú verður frá vinnu
stuttan tíma.
Vogarmerkið (24. september — 23. október)
Reyndu að standa við gefin loforð, þótt þú verðir
að fórna einhverju til þess. Þú gerir skyssu, sem
erfitt verður að leiðrétta. Þú skemmtir þér vel um
helgina.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú færð góð tækifæri til að koma þér áfram á
vissri braut. Eitthvað þvingar þig svo þú færð ekki
notið þín; reyndu eitthverjar nýjungar, þær gætu
dreift huga þínum. Föstudagur er viðskiptadagur.
Bogamarinsmerkið (23. nóv. — 21. desember):
Þú ert vel fallin til að umgangast ókunnuga og
kannt starf þitt vel. Líkur eru á að þér verði falin
umsjá tiginna gesta. Þú lendir í ævintýri sem verð-
ur eftirminnilegt.
Steingeitarmerkið (22. desember ■— 20. janúar):
Tilfinningar og bráðlyndi hjálpa til að koma þér í
klípu. Mál sem lengi hefur verið á dagskrá er nú
tekið fyrir af krafti og leyst. Varastu að ofþreyta
þig; eigðu einhvern tíma fyrir sjálfan þig.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú átt von á mótvindi og verður að halda vel um
stjórnvölinn ef þú vilt halda þínu. Gegnum kunn-
ingsskap færðu mjög girnilegt tilboð. Yfirmenn
þínir eru ánægðir með verk þín.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú ert nokkuð svartsýnn og óánægður með um-
hverfi þitt. Þú losar þig við starf, sem hefur haft
þvingandi áhrif á þig. Persóna, sem spillt hefur
fyrir þér, er skyndilega úr sögunni^
32 VIKAN 5-tbI-