Vikan


Vikan - 30.01.1969, Qupperneq 40

Vikan - 30.01.1969, Qupperneq 40
Uatioiiarkitrfo INNE ÚTI BíLSKÚRS SVALA HURÐiR ýnhi- & Útikutiif H □. VILHJALMSBDN RANARBOTU 17 SIMI 19669 viljir ekki gera það fyrir mig, þá minnstu hennar dóttur þinnar, sem á allt lífið fram- undan“. Svo lokaði Mully sig inni í eldhúsi og hágrét. Því næst lagaði hún te og færði Sam, ásamt ýmsu góðgæti. A ljósa- krónuna var ekki minnst. A UÐVITAÐ var Sam '**' harðákveðinn í að hegða sér eins og maður. Hann háði mikla og stranga baráttu við sjálfan sig, til þess að sigra löngunina til að fljúga. En honum var ómögu- legt að hætta að hugsa um það. Þegar hann sat einn í sólskininu niðri á Strandgötu, var hann alltaf að horfa á máfana, sem svifu í golunni. Nú, þegar Sam var orðinn hálfgerður fugl, hugsaði hann líka einsi og fugl, o|g vissi margt, sem venjulegt fólk hefir ekki hugmynd um. Ilann hugsaði t.d. mikið um loftstrauma. Stundum lá illa á honum, því að straumarnir voru and- stæðir og sveipóttir — „hvik- ulir“ eins og Sam orðaði það. Þegar hann horfði á máfana sveiflast og snúast, gat hann fundið straumana, og sveifl- nVAR ER UXIN RflNS NÓA? Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð- launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. Siðast er dregið var hlaut verðlaunin. Jón Sigurðsson, Stóra Fjarðarhorni, Strandasýslu. Nafn Heimili Örkin er á bls. Vinninganna má vitja i skrifstofu Vikunnar. 5. aðist og snerist sjálfur, til þess að hjálpa máfunum. lín aðra daga voru straum- arnir breiðir og rólegir — eins og fagur hljóðfærasláttur, sem kitlaði skynfæri hans. Þá var Sam í góðu skapi og sveif með máfunum í anda. Hann sá þá lenda í upp- streymi yfir fjörunni, þjóta gargandi upp með ber^inu, hærra og hærra, svífa svo meðfram ströndinni án þess að blaka væng. Sam viss, að þeir voru ekki að leita að æti — þeir voru aðeins að leika sér af einskærum fögnuði. Sam sat þarna oft og ein- att allt til sólarlags eða þar til Mully kallaði: „Farðu að koma, væni. Komdu áður en það verður kalt“. Sam ætlaði sér í raun og veru að halda loforð sitt og haga sér eins og manni sæmdi. En þegar hann fann hina dá- samlegu loftstrauma leika um andlit sitt, þessa þöglu tón- list, sem hann einn gat skynj- að, þá var hann ofurliði bor- inn. Og einn dag stóð hann upp af bekknum og gekk út að girðlingunrti. Ilann gekk nær og nær bfúninni, til þess að finna betur til loftsins. Hann hallaði sér að upp- streyminu og dæsti ánægju- lega. Hann lét loftið leika um sig án þess að lyfta sér frá jörðinni. Þá var allt í einu tekið harkalega í hann. Iíann missti hið nákvæma jafnvægi og brauzt um í höndum lögreglu- þjóns. „Hver fjandinn stóð til“? hrópaði lögregluþjónn- inn. „Hvað er þetta, lagsmað- ur“, sagði Sam, „ég var ekk- ert að gera“. „Komdu með mér“, sagði lögregluþjónninn. Lögreglan hringdi til Mully og bað hana að koma á stöð- ina; hún kom í svo miklu of- boði að hún varð fokvond, þegar hún sá að Sam sat þar hinn rólegasti og tottaði pip- una sína. „Hverju hefir þú lent í núna, hrakfallabálkur“, hróp- aði hún. Sam þagði, en yfirlögreglu- þjónninn fór með Mully af- síðis og skýrði henni frá, að Sam hefði ætlað að fremja sjálfsmorð, með því að kasta sér fram af bergbrúninni við Strandgötu. „Sjálfsmorð“? sagði Mully, og stór tár fóru að streyma niður kinnar hennar. „Skammist þér yðar ekki fyrir að valda konu yðar þessari sorg“, sagðí yfirlög- regluþjónninn við Sam. „Verið þér nú ekki að á- víta hann, herra minn“, bað Mully. „Ég hefi ekki verið honum eins góð kona og ekki hugsað eins vel um hann og ég hefði átt að gera“. „Sei, sei Mully“, sagði Sam hughreystandi. „Þú hef- ur verið góð kona. Fyrir ut- an smávegis galla, gæti ég ekki hugsað mér hana betri“. „Hvers vegna ætlaðir þú þá að farga þér“? kjökraði Mully. Yfirlögregluþjónninn ygldi sig framan í Sam. „Jæja, herra Small“, sagði hann hörkulega. „Það væri réttast að ég setti yður inn. En ástin, sem kona yðar ber til yðar, hefir lirært mig. Ég læt yður lausan, gegn því að hún gæti yðar“. „Nei, nei“, sagði Mully. „Ef lögin segja að hann eigi að fara í fangelsi, þá er bezt að það sé svo“. „Ég skal ábyrgjast**, sagði yfirlögregluþjónninn. „Nei, lög eru lög“, sagði Mully. „Ilörð á stundum, en við verðum að hlýða þeim“. Sam og yfirlögregluþjónn- inn voru þó nokkra stund að fá Mully til þess að láta und- an. „Ég skal sjá um lögin; sjá- ið þér bara um manninn yð- ar“, sagði yfirlögregluþjónn- inn. „Munið“, sagði liann við Sam, „þér eruð látinn laus, gegn því að hún gæti yðar — engan fíflaskap oftar! Far- ið nú heim og hagið yður vel“. Ilann fékk ekki að fara einn út fyrir hússins dyr. Auðvitað varð liann dauðleiður á þessu. „Ég er ekki svo mikill aumingi, að ég geti ekki geng- ið um einsamall“, sagð hann. „Það getur vel satt verið“, sagði Mully. „En það stend- ur alveg á sama, því að ég á að líta eftir þér“. Þetta olli því, að Mully 40 VIKAN 5. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.