Vikan


Vikan - 13.02.1969, Blaðsíða 17

Vikan - 13.02.1969, Blaðsíða 17
v______________________/ Bertolt Breclit var ríkulega gæddur þeirri mannúð og sam- úð með hágstöddum, sem mjög gætir hjá vatnsberafólki. ^____________________________________j Miklu erfiðara er að gera sér grein fyrir skapgerð og sálarlíti vatnsberans en flestra annarra merkja. Með ,.dýrslegu“ merkin er þetta tiltölulega auðvelt, því að andlegu lífi þeirra svipar svo greinilega til dýrategunda þeirra, sem þau eru kennd við. Með vatnsberann er þessu ekki þann- ig varið. Ein kunnasta manngerðin í þessu merki er kölluð hin „sera- físka“ eftir orðinu seraf, sem þýðir nánast ljósengill. Þessi manngerð - og raunar vatns- berinn í heild ásamt fiskamerk- inu — er skörp andstæða fyrstu merkjanna tveggja í hringnum, hrútsins og nautsins, sem eru þau grófustu og frumstæðustu. í tveimur síðustu merkjum hringsins hafa hinar frumstæðu og upprunalegu hvatir minnst að segja. Vatnsberinn — einkum sá serafíski, algerasta andstæða Heraklesarljónsins — er fín- gerður yzt sem innst, viðkvæm- ur, veikur fyrir, nánast engils- legur. Gott dæmi um þetta eru tónskáldin Mozart og Mendels- ohn, en tónsmiðir eru einmitt til- tölulega fjölmennir undir áhrif- um merkis þessa. Vatnsberinn vill losna við þunga efnisins, flýja hinar dýrslegu hvatir, sem hann finnur að koma illa heima við dýrlingslegar tilhneigingar hans. Hann er í eðli sínu léttur, loftkenndur. Takmark hans er andleg uppljómun og innsýn. „É'g heyri himninum til, þótt ég sé einnig barn jarðar,“ sagði Moz- art. Það eru orð að sönnu hvað serafíska vatnsberann snertir. Hann hefur visst ógeð á þessum jarðneska heimi okkar með því sem honum fylgir. Hann minnir að því leyti á hinn virðulega fugl albatros, sem ófær er um að hefja sig til flugs frá jörðu. I sumu minnir hann á engil, sem villzt hefur á jörðu niður. Eðlilega hafa fæstir vatnsber- ar þessa eiginleika í sterkustu mynd þeirra, enda ættu þeir þá litla möguleika til langs lífs í grimmdarstórleik heimsins. En að verulegu leyti koma þeir fram og móta allt framferði þess fólks, sem fætt er í vatnsbera- merkinu. Það vill losna frá sjálfu sér, skoða eigið líf úr hlutlausri fjarlægð. Þegar þetta tekst, sem kemur oft fyrir sem betur fer, verður hlutaðeigandi manneskja að mörgu leyti vel stödd. Ástríð- ur og fýsn snerta hana að vísu, en ekki djúpt. Til haturs finnur hún ekki og ástin kemur henni ekki á óvart. Fátt kemur henni á óvart eða úr jafnvægi; hún er yfir það hafin, getur skoðað það af hlutlægu kæruleysi, jafnvel eigin eymd. Hún tekur öllu með húmor og jafnaðargeði; er allt- af í góðri von. Vatnsberar eru yfirleitt stór- brotnir, rausnarlegir og félags- lega sinnaðir. Þeir hafa augun opin fyrir óskum og þörfum ná- ungans og gera sitt bezta til að koma þar til móts við hann. Þeir eru upplagðir til að vera þjónar heildarinnar, verja lífi sínu til heilla fyrir marga. Vatnsberinn vill ekki aðeins vera óháður efn- islegum hlutum, heldur og sjálf- um sér, eigin óskum og hvötum. Það tekst mörgum með því að hjálpa öðrum. Hann er laus við hroka, en jafnfús til sjálfsgagn- rýni. Enginn er meiri og betri vinur en hann. Hann er líka sannfærður um að aðrir þuifi sín við. Hann lætur mikið að sér kveða í félags- og menning- armálum, og í stjórnmálum er hann lýðræðislegur og fram- farasinnaður, samanber RoÓSe- velt Bandaríkjaforseta. Þetta lítur nógu glæsilega út, en því miður fylgir því nokkur hætta. Sólin, sá himinhnöttur er mest kyndir undir viljastyrkinn, má sín lítils í vatnsberamerk- inu. Veikur vilji er því einn sá sálargalli, sem mest steðjar að vatnsberafólki. Þetta hindrar það oft í að lifa í samræmi við hugsjón sína. Það horfist ekki nóg í augu við þann veruleika, að mjög gott fólk er að jafnaði sjálfu sér verst. Það getur illa fengið sig til að neita neinni bón. Oft gefur það öðrum vin- áttu sína af of mikilli léttúð, trú- ir of fljótt á það góða í með- bræðrunum. Það sér illa gegn- um brögð og klæki og gengur því oft í gildrur, sem seint verð- ur losnað úr. Sem sagt: stór sál, en veik skapgerð. Líka er sagt, að minni- máttarkennd sé tiltölulega al- geng í þessu merki. í því er, að sögn, tiltölulega mikið um smá- vaxið fólk eða veikbyggt, og af slíku vilja stundum leiða hvim- leið komplex, einkum þegar stjörnuáhrif eru með verra móti. Þannig verða stundum til ein- staklega frekar og leiðinlegar mannkindur, sem vilja allt til vinna að hafa einhver, og sem allra mest, áhrif á umhverfi sitt, sama hvernig. Eins og nærri má geta um jafn andlega sinnað fólk og vatnsber- ar eru að jafnaði, leggja þeir mikla áherzlu á að öðlast vizku og þekkingu. Þrá þeirra eftir að hefjast yfir hlutina, svífa yfir þeim í vissri fjarlægð, á mestan þátt í þessu. Þegar Úranus má sín meira í merkinu, kemur annað fram sem yfirgnæfir jafnvel þekk- ingarlöngunina: ævintýraþrá. Sú manngerð er stundum kennd við Prómeþeif, kappa þann úr goða- fræði Grikkja sem færði mönn- um eldinn í óleyfi guðanna. 7. tbi VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.