Vikan - 13.02.1969, Blaðsíða 49
ungshjónin voru viðstödd sýning-
una, og leikur Barry vakti mikla at-
hygli. Síðan tók hvert hlutverkið
við af öðru.
Barry Morse kvæntist leikkon-
unni Sydney Sturgess 1939. Þau
brugðu sér til Montreal f Kanada
1951 og urðu svo hrifin af borginni
að þau ákváðu að set|ast þar að.
Fyrr en varði var Barry orðinn einn
helzti leikarinn hjá kanadiska sjón-
varpinu. Hann hefur einnig leikið í
sjónvarpsþáttum í New York og
Hollywood. Hann lék til dæmis í
hinum vinsæla myndaflokki. „The
Untouchables", sem margir fylgd-
ust með í Keflavíkursjónvarpinu, á
meðan það var og hét.
Þau hjónin eiga tvö börn, Mel-
anie, sem er 17 ára, og Hayward,
sem er 15 ára. Þau ætla bæði að
feta í fótspor foreldra sinna og hafa
þegar leikið nokkrum sinnum. Ný-
lega lék öll fjölskyldan í sama leik-
ritinu, og þótti það að vonum tíð-
indum sæta.
Margir fleiri kunnir leikarar koma
fram í hinum nýja framhaldsmynda-
flokki. Er ekki að efa, að margir
munu hafa áhuga á að fylgjast með
stöðugum flótta Kimbles og marg-
víslegum ævintýrum.
☆
„Flóttamaðurinn“ er
nýr myndaflokkur, sem
líklegur er til að
verða vinsæll. Hann
fjallar um mann, sem
er sakaður um að
hafa myrt konu sína
og dæmdurtil dauða
blásaklaus. Hann
sleppur úr haldi og er
síðan á stöðugum
flótta í hverjum þætt-
inurn á fætur öðrum.
7. tw. vikan 49