Vikan


Vikan - 13.02.1969, Page 19

Vikan - 13.02.1969, Page 19
Faðir Riet, Piet Hendriks, ásamt dóttur sinni og börnum hennar. Hann varð henni um síðir til byrði. Riet Sleutjes er kona nefnd, til heimilis i þorpinu Schijndel í Brabant, Hollandi. Hún er hálf- fertug að aldri og' hefur orðið nokkuð fræg fyrir einstaklega sterka en ekki að sama skapi heilnæma hænsnasúpu, sem hún eldaði einstaka sinnum þegar mikið lá við. Tveir menn hafa nefnilega burtkallazt snögglega eftir að hafa borðað súpu frúar- innar og sá þriðji barg sér naum- lega. Frú Sleutjes var ekkert sér- stakt piltagull hvað útlit snerti, stutt og digur og gekk með gler- augu, en lífsfjörið bætti það upp. Fyrri maður hennar, sem hét Jan van Eyndhoven og var fimm árum yngri en hún, vann við grjótnám. Það er erfið vinna og Jan var yfirleitt uppgefinn þeg- ar hann kom heim á kvöldin. „É’g var búin að fá alveg nóg af honum,“ sagði Riet sér til af- sökunar. „Hann var hættur að fullnægja ástarþörf minni. En vegna barnanna gat ég ekki hugsað mér hjónaskilnað.“ Svo að hún fann upp eigin skilnað- araðferð: sauð súpu. Þetta var hænsnasúpa og venjuleg sem slík, nema hvað frúin hellti nokkrum skammti af rottueitri samanvið. Þegar Jan kom heim úr grjót- inu þetta kvöld, svangur og þreyttur, át hann súpna með góðri lyst. Næsta morgun gat Ri- et skartað ekkjuklæðum. Þorps- búum fannst þetta undarlegt, þar eð Jan var aðeins þrjátíu og fimm ára að aldri og hafði aldrei áður kennt sér neins meins, svo menn vissu. En að því sinni var ekkert gert í málinu. Riet leiddist ekkjustandið, sem nærri má geta, og áður en sorg- arárið var útrunnið, giftist hún byggingaverkamanni að nafni Frans Sleutjes, sem var átján árum eldri en hún. En fljótlega eftir hjónavígsluna komst hún að raun um að einnig þessi ekta- maður hafði fullmikið að gera á daginn. En það má hún eiga að hún greip ekki undireins til Jan van Eyndhoven og Riet, þeg- sama úrræðis og áður, en leitaði ar þau giftu sig. Hann var of þess í stað fróunar hjá hinvun þreyttur á kvöldin. Framhald á bls. 29. 7. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.