Vikan


Vikan - 13.02.1969, Side 36

Vikan - 13.02.1969, Side 36
ONSON KVEIKJARAR Vanti yöur tækifærisgjöf þá munið Ronson. Ronson kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum. Einkaumboð: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF. Hverfisgata 89, Reykjavík. STJÖRNUSPÁ - * # & •- % Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Margar frístundir og óvenjumikið samband við kunningjana hressa þig mikið og þú lítur bjartari augum á hversdagsleik tilverunnar. Þú er spenntur og eftirvæntingarfullur, cn farðu samt rólega. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Hugmyndir um breytingar á húsnæði eru ofarlega á baugi. Það ríður á að framkoma þín sé fyrsta flokks, það er ekki nóg að hæfileikarnir séu fyrir hendi. Þú verður fyrir töfum á ferðalagi. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú ert í tímaþröng, en tekst þó að koma öllu af í tæka tíð. Þú vinnur á þitt band persónu er þú álít- ur rr.ikils virði að njóta stuðnings frá. Fjárhagsleg- ir erfiðleikar úr sögunni um tíma. ‘p Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú ert dálítið kvíðinn vegna verks, sem þú hefur tekið að þér, en skortir þjáifun til að hagstætt geti kallazt. Kunningjarnir bera upp við þig tillögu sem þú skalt íhuga vel. fl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júnf): Annir þínar eru of miklar þannig að þú vinnur verk þín ekki eins vel og æskilegt er. Eyddu ekki mikl- um tíma í þras, það þýðir ekki að deila við dóm- arann. Þú skemmtir þér vel á laugardag. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú 'nefur nýlokið verkefni, sem hefur reynt mjög á kraftana, og ert því ekki vel búinn til nýrra átaka. Gefðu þér tima fyrir sjálfan þig. Þú færð þaul- sætinn gest. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlf): Þú gefur kunningja þínum hugmynd sem hann ger- ir sér mat úr. Þú færð hluta af vinnu þinni laun- aða í hlunnindum. Þótt þú teflir á tæpt vað, eru miklar likur á að þú hafir heppnina með þér. jg Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú ferð í sendiferð sem verður mun skemmtilegri en við var að búast. Þú hagnast vel á vöruskiptum. Þú tekur virkan þátt í áhugamáli félaga þíns. Það er óvenju rólegt á vinnustað. J3P9J Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Fjölskyldu þinni bætist eign sem þarfnast nokk- urrar umönnunar, en veitir ykkur öllum mikla ánægju. Þú ert óvenju afkastamikill heimafyrir. Eldri kona leitar aðstoðar þinnar. Happatala fjórir. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú ert mjög hamingjusamur og ánægður með lífið, en þú ert of þreyttur. Ovænt happ um miðja vik- una léttir af þér nokkurri byrði. Gleymska annarra gefur þér frest til að leggja hlutina niður fyrir þér. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú ert ósanngjarn og ættir samkvæmt samvizku þinni að skera niður fullyrðingar þínar um ákveð- ið efni. Þú fyllist miklum eldmóði við björgun verð- mæta. Þú ert dálítið utan við þig og taugaóstyrkur. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Skemmtileg vika í vændum. Þú færð að sjá, heyra og reyna ýmislegt er þig hefur lengi dreymt um að kynnast. Umgengni við fjölskylduna mætti vera meiri. Skuldheimtumenn eru nokkuð aðgangsharðir. 'ynwvwm&n • ■'M

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.