Vikan


Vikan - 13.02.1969, Qupperneq 46

Vikan - 13.02.1969, Qupperneq 46
r~ MILADY ADONIS m WINDMASTER SENATOR ADELPHI Magnús E. Baldvinsson FORUM Laugavegi 12 Sími 22804 V OKTÓBER Eiturlyf fundust í fórum John Lennon og Jókó Ónó, og þau voru óðara handtekin. Þá vöktu þau á sér enn meiri athygli, þeg- ar þau sendu frá sér hljómplöt- una „Tvær jómfrúr", þar sem bæði voru strípuð. Myndina tók John sjálfur. NÓVEMBER Cliff og The Shadows komu fram í síðasta skiptið eftir að hafa leikið saman í 10 ár. DESEMBER Peter Frampton í hljómsveit- inni Herd var kjörinn „Andlit ársins 1968“ þrátt fyrir eigin mótmæli gegn þessari nafngift. Almennt var álitið, að Herd mundu láta meira að sér kveða á árinu 1968 en raunin varð á. Hljómsveitin Marmalade frá Skotlandi kom fram á sjónar- sviðið á árinu, og hefur sjálfsagt tekið til sín eitthvað af vinsæld- um The Herd, því að þessar tvær hljómsveitir þykja vera mjög á svipaðri línu. Það gerðist sitt af hverju í brezka pop-heiminum árið 1968, eins og sjá má. En hvað á eftir að gerast á þessu ári? Hverjir verða þá mest á sviðsljósinu? Því er spáð, að blús músik muni ná vinsældum, og er brezka hljómsveitin Jethro Tull einkum nefnd í því sambandi. Hljóð- færaleikarar taka að improvisera eða spila af fingrum fram í æ ríkara mæli, og hver veit nema þetta þróist út í það, að jazz- músik nái almennum vinsæld- um. Þegar svo er komið, er lög- mál Darwins í fullu gildi, að hin- ir hæfustu halda velli! Þeir, sem lítið kunna fyrir sér í músikinni, detta þá af sjálfu sér upp fyrir. Hljómsveitunum The Doors með Jim Morrison í broddi fylking- ar og Amen Corner með Andy Fairweather-Low sem leiðtoga er spáð vinsældum á nýbyrjuðu ári. Á árinu 1968 komu engar hljómsveitir fram, sem jafnast á við Bítlana, Rollingana — eða The Monkees hvað vinsældir snertir. Sú söngkona, sem mesta athygli vakti, var Julie Driscoll, en á þessu ári gæti Mary Hop- kin látið mikið að sér kveða, ef hún fær efni við sitt hæfi. f ársbyrjun 1968 var ýmsu spáð, m. a. því, að rokk og ról yrði aftur vinsælt. Svo varð þó ekki. Eins og áður segir er blús músikinni nú spáð vinsældum. Hvort sú verður raunin veit samt enginn. Það gerist svo margt undarlegt í þessum svokallaða pop-heimi að bezt er, að láta alla spádóma lönd og leið. ☆ Vatnsberinn Framhald af bls. 18 að taka upp á hinu og þessu sem kemur á óvart. Jafnframt er hún kvenleikinn sjálfur holdi klædd- ur og viðkvæm og tilfinninga- næm eftir því. Oft lætur hún blekkjast af ytri dýrð og ljóma. Hún hrífst helzt af þeim karl- mönnum, sem í hennar augum eru miklar hetjur og athafna- menn. Hún tilbiður eiginmann- inn takmarkalítið en gerir jafn- framt til hans miklar kröfur. Standist hann þær ekki, vill virð- ing hennar fyrir honum dvína fljótt. En sé maðurinn metnaðar- gjarn og sæki fast að sínu tak- marki, styður hún hann með ráð- um og dáð, eggjar hann og örv- ar jafnt hæfileika hans og hé- gómadýrð. Vatnsberinn sækir mest í hverskonar störf sem eru óvenju- leg og ný af nálinni; vill vera brautryðjandi. Hann er þægileg- ur í samstarfi og fús að hlýða á ráð annarra. Hann leggur megin- áherzlu á að starf hans komi heildinni, samfélaginu, til góða. Hann er því yfirleitt duglegur starfsmaður og skyldnrækinn. Þegar áhrif Úranusar í merkinu eru með mesta móti, er hætt við að það leiði af sér vissan óróa, tilhneigingu til að skipta oft um starf og að freista gæfunnar all- djarflega. Vatnsberar eru yfirleitt litlir fjáraflamenn, enda of andlega sinnaðir til að hafa verulegan áhuga á svoleiðis. Oft eru þeir meira að segja sárfátækir. Þeir eru rausnarlegir og örlátir og eyða því jafnhraðan þeim pen- ingum er þeir innvinna sér. Þeir borga reikninga sína athuga- athugasemda og tafarlaust og lána og gefa kunningjum sín- um hiklaust aura, ef þeir biðja þá. Sælla er að gefa en þiggja; fyrir þeim er þetta meira en orðin tóm. Stórbissnissmenn og spekúl- antar fæðast helzt í þessu merki þegar mikið kveður að Úranusi. En jafnvel hjá þeim situr andinn í fyrirrúmi fyrir efninu; þeir fara út í þetta miklu heldur af ævin- týraþrá en beinni gróðahyggju. dþ. Bílar: B.M.W. Framhald af bls. 6. afl og að hann var gersamlega tómur að aftan, tókst mér aldrei að slengja til afturendanum á honum, jafnvel ekki með því að gefa fullt á fyrsta á holóttri 90 gráðu beygju. Hins vegar þótti mér sem hann hefði vott af til- hneigingu til að skríða út und- an sér að framan við um það bil 50 km hraða í kröppum hring og gerir í því efni hvorki betur né verr en flestir aðrir bílar. Bíll nr. 399 úr verksmiðju var búinn fjögurra gíra kassa með gólfskiptingu, sjálfskipting er þó fáanleg. Skiptingin á umrædd- um bíl var mjög skemmtileg og hann hefur mikið þanþol í gír- unum, á fyrsta fer maður fram undir 50 en á fjórða niður und- ir 40. f ógáti setti ég hann í þriðja í stað fyrsta við umferð- arljós og hann lét sig hafa það að fara af stað í honum. En þá var hann heldur ekki eins snarp- ur og venjulega! Innrétting öll í BMW 2500 er mjög skemmtileg. Mælaborðið er búið stórum, hringlaga mæl- um fyrir hraða og snúnings- hraða, þar er einnig að finna mæla fyrir bensíngeymi og vél- arhita, en hvað mælana snertir getur þessi bíll eyðilagt rafkerf- ið og brætt úr sér í rólegheitum eins og ódýru bílarnir, því fyr- ir rafmagn og smurning eru að- eins brigðul Ijós. Kannski mun- ar þá, sem hafa efni á svona bíl, ekkert um slíka smámuni. — Engar skarpar brúnir eru á mælaborðinu og að sjálfsögðu er öryggisbúnaður svo sem eftir- gefanleg stýrisstöng fastur liður á þessum bíl. Klæðning innan í bílnum er notaleg í hvívetna og SDGOSAFN HITCHCOCKS ANNAÐ HEFTI KOMIÐ ÚT 10 SPENNANDI OG SKEMMTILEGAR SAKAMÁLASÖGUR iMfred Hitchcock er löngu orðinn heimsfrægur fyrir kvik- nyndir sínar, sjónvarpsþætti, sögusafn og margt fleira. Allt sem frá hans hendi kemur hefur sömu eiginleika til að bera: í því er fólgin hroll- vekjandi spenna með skoplegu ívafi. — Hit- chcock fæddist í Lond- on 13. ágúst 1899. Hann var við nám í verk- fræði, þegar honum bauðst vinna við kvik- myndir og lagði þá námið þegar í stað á hilluna. Hann nam leik- stjórn á örskömmum tíma og var fyrr en varði kominn í hóp áhrifamestu leikstjóra. Kvikmyndir og sjón- varpsþættir Hitchcocks skipta hundruðum og mánaðarlega gefur hann út í geysistóru upplagi smásagnasafnið Hitchcocks Mystery Magazine. Sögurnar í þessu safni eru allar valdar úr því. Þær eru gæddar beztu tostum Hitchcocks, í senn spennandi og skemmtilegar, þannig að ógerningur er að slíta sig frá þeim fyrr en þær eru á enda. Fæst á næsta sölustað. HILMIR HF. - SKIPHOLTI 33 PÖSTHÖLF 533 - SÍMI 35320 - REYKJAVÍK v_______________________________________y 46 VIKAN 7- tw-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.