Vikan - 13.02.1969, Qupperneq 47
Colgate f luor
gerir tennurnar sterkari
við hverja burstun
Spyrjið tannlækni yðar...
hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur
mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar.
Byrjið í dag
- það er aldrei of seint...
Frá allra fyrstu burstun styrkir Colgate Fluor tannglerunginn
og ver tennurnar skemmdum. Með þvi að bursta tennurnar
daglega með Colgate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn
gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt
við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt tennur barnanna.
Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur.
tauklæðning á sætunum, vinyl
þykir halda mjög að manni hlta
og svita á löngum, heitum leið-
um. Annars er hægt að fá
þrumublástur úr loftræstikerf-
inu, svo vel kaldan sem heitan,
en mér þótti blásarinn hafa full
hátt á mesta hraðanum.
Það fer ekki framhjá neinum,
að þessu bíll er settur til höfuðs
listakerrunni Mercedes Benz. Í!g
hef ekki átt þess kost að taka í
nýlegan Benz svo ég hef ekki
samanburðinn, en segja mætti
mér, að þar væri víða mjótt á
mununum, og þótt annar hefði
kannski yfirhöndina í einhverj-
um liðum tölulega séð, fari upp-
gjörið milli þeirra eftir persónu-
legum tilfinningum frekar. Og
svo glaður, sem ég væri Benz-
eigandi, myndi ég sem BMW
2500-eigandi öfundlaus horfa á
Benzana í kringum mig.
Enda gæti ég sjálfsagt splæst
á mig Benz líka, ef ég hefði efni
á BMW-inum.... — S
Daglegt heilsufar
Framhald af bls. 7
vegna þarf að sinna fyrirboðum,
rauðum augum, sviða og ef til
vill lélegri sjón, og fara til lækn-
is við fyrstu grunsemdir.
8. Rangt. Maður getur fengið
svima, flökurleika og höfuðverk,
en það stafar frá jafnvægiskerf-
inu, ekki augunum.
9. Rangt. Þótt maður hesthúsi
vagnhlass af gulrótum, hefur
það engin áhrif á sjónina bein-
línis. Gulrætur og annað dökk-
gult og grænt grænmeti eru,
ásamt mjólkurmat, nauðsynleg-
ur A-vítamingjafi, og A-vítamin
er sjóninni nauðsynlegt. En það
þarf ekki svo mikið A-vítamin
til að það dugi sjóninni, svo það
er eiginlega útilokað að fólk sem
á annað borð lifir á heilbrigðri
fæðu, fái ekki nóg af A-vítamini.
10. Rangt. Það er alltaf ein-
hver hætta á því að kontakt-
linsur rispi sjáaldrið og augun,
svo þau fyllast af „tárum“. Það
er nauðsynlegt að hafa fulla gát
á. Ef rétt er að farið, þá er
bezt að nota ekki linsur nema
stutta stund í einu, þ. e. a. s.
nokkra klukkutíma....
11. Rangt. Það að gamalt fólk
fær skyndilega betri sjón, getur
jafnvel lesið blöðin gleraugna-
laust, getur oft verið merki þess
• að alvarlegur augnsjúkdómur sé
í uppsiglingu, t.d. starblinda. —
Þá þarf skjótrar athugnar.
12. Rétt. Fyrir skólaaldur er
það ekki óalgengt að börn hafi
lélega sjón, eða um það bil 5 af
hundraði; um fertugt er það
orðið 48 af hundraði, og 95 af
hundraði um sjötugt. Léleg sjón
er því eðlileg á gamals aldri, en
óeðlileg á barnsaldri, og þá er
því nauðsynlegra að hafa gát '
augum barnanna....
7- tbl- VIKAN 47
■cs -þ