Vikan


Vikan - 20.03.1969, Page 3

Vikan - 20.03.1969, Page 3
IÞESSARIVIKU PÓSTURINN ......................... MIG DREYMDI ....................... UNGA KYNSLÓÐIN..................... KARLMENN ERU ALLTAF SJÁLFUM SÉR LÍKIR NÚ ERU AUGLÝSINGASKILTI KOMIN í TÍZKU .. EFTIR EYRANU ...................... SÍÐAN SÍÐAST ...................... ANGELIQUE í VESTURHEIMI ........... FISKAMERKIÐ ....................... ELUR KETTI TIL AÐ LEIKA í KVIKMYNDUM . . VIÐ HVERJA SNERTINGU HANS ......... ÞEIR SEM SFEMMTA OKKUR — SKEMMTA SÉR SKYNDIGETRAUN ..................... PÁSKABAKSTURINN — 40 SMÁKÖKUR...... Bls. 4 Bls. 6 Bls. 8 Bls. 12 Bls. 14 Bls. 16 Bls. 17 Bls. 18 Bls. 20 Bls. 24 BIs. 28 Bls. 26 Bls. 31 BIs. 34 VÍSUR VIKUNNAR: I stjórnmálanna heimi er allra veðra von og veðurspáin ótrygg hverju sinni en sérfræðingar ríkisins leita lon og don að leiðum til að bjarga sínu skinni. Fyrirtækin ramba og framleiðslan er stopp á flæðiskerjum afkomunnar brýtur en klerkastéttin býður uppá bítlaglaum og pop til bjargar vorri sál er allt um þrýtur. FORSÍÐAN: Tveir síðustu þátttakendurnir í fegurðarsamkeppni unga fólksins eru kynntir í þessu blaði. Þeir heita Margrét Halldórsdóttir og Oddný Arthursdóttir og fleiri myndir af þeim eru á bls. 8—11. Næst birtum við myndir af öllum stúlkunum sex. (Ljósmyndari Óli Páll). VIKAN — ÚTGEFANDI: HILMIR HF. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Grön- dal. Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson. Aug- lýsingastjóri: Jensina Karlsðóttir. Ritstjóm, auglýsingar, afgreiSsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320—35323. PósthóU 523. Verð í lausasölu kr. 50.00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega. I NffSTU VIKU „Fyrir nokkrum árum kom hingað ungur prestur með konu sína og fjögurra ára son. Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, var fyrsti hátíðisdagurinn, eftir að hann kom, og hann gerði sér far um að blanda sem mest geði við heimafólk á staðnum og kynnast því. En sonurinn kunni því illa, að pabbi hans stæði lengst af á tali við ókunna menn og þar kom, að presturinn keypti sér frið með því að rétta snáðan- um aura og segja honum að fara og kaupa sér blöðru. •— Drengurinn skoppaði burtu, en kom von bráðar með blöðr- una óblásna. Hann rétti föður sínum hana og sagði: Blást þú í hana, pabbi. Þú ert með svo sterkan anda!“ Þetta er ein af mörgum skopsögum, sem við birtum í þættinum Með bros á vör í næstu Viku. Næsti Palladómur fjallar um Ásgeir Bjarnason, fyrsta þingmann Vesturlandskjör- dæmis. Um hann kemst Lúp- us m. a. svo að orði: Maður- inn er hæggerður og seintek- inn, andvígur því að beita olnbogunum, friðsamur bóndi að skaplyndi og í framgöngu fremur en stórbrotinn kappi. Eigi að síður rætist úr Ás- geiri við kynningu, og hæg- lætið fer af honum, ef í odda skerst. .. . “ Þá birtum við myndir af öllum þátttakendunum í feg- urðarsamkeppni Vikunnar og Karnabæjar, Ungu kynslóð- inni. Nú fer að verða spenn- andi að vita, hver verður kjörin fulltrúi ungu kynslóð- arinnar 1969. Loks má nefna viðtal við Skota, sem búsett- ur er hér á landi. Hann heit- ir William McDougall og við- talið við hann nefnist Frjálst Skotland og norrænt, kelt- neskt bandalag.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.