Vikan


Vikan - 10.07.1969, Qupperneq 2

Vikan - 10.07.1969, Qupperneq 2
. mWNG IUNDIRFATATIZKUNNI undirkiólar meö áföstum brjóstanöldum komnir á ÍSLENZKAN MARKAÐ GÆÐAMERKIÐ/CffeW/ frá Marks & Spencer tryggir yöur VANÐAÐA vöru á HOFLEGU veröi IDUNN ^stræti 3 % % % %, % %. % % 3 % k1 IFIILLRI í leit að „öðruvísi’ Við erum alltaf að ræða um að gera ísland að ferðamanna- landi. Og fram hefur komið, að í fyrra voru gjaldeyristekj- ur af ferðamönnum 10% af ferðamannatekjum þjóðarinn- ar, það eru þar að auki ónið- urgreiddar tekjur. Vafalítið virðist, að hægt sé með góðu móti að auka þessar tekjur, en þá verðum við líka að gera okkur grein fyrir því, að það kostar pening að græða. Ég á þó ekki við, að endi- lega þurfi að drífa upp í snar- heitum slatta af lúxushótelum eða ljúka því af í hvelli að malbika eða steypa alla vegi (sem þó væri æskilegt frá sjónarhóli landsmanna). Held- ur má nýta betur þá aðstöðu sem hér er með ýmsum húsa- kosti sem ekki er fullnýttur yfir sumarið, og á ég þar fremst við skólana. Mér er kunnugt um, að þeir eru ekki nýttir eins og hægt væri sem sumarhótel, og kemur þar sums staðar til rígur innan- héraðsmanna um framkvæmd málanna. En ef ferðamálaráð fengi þau völd og þá aðstöðu, sem það ætti að hafa, mætti kippa því í liðinn. Annað atriði er líka mjög mikilvægt, og það er silungs- veiðin. Margir þeirra, sem hingað kysu að koma, myndu gera það í von um silungs- veiði. Hana mætti stórauka, sportmönnum innlendum og erlendum til ánægju, með meira silungseldi og minni rányrkju á veiðistöðunum. Víða er hugsað um það eitt að girða ár og ósa með nelum og jafnvel stundaður ádráttur, án þess að hugsa neitt um stofn- inn. Aukið veiðilíkur ferða- mannana, og þeir munu ekki hika við að færa okkur gjald- eyrinn heim í hlað. Hér hafa aðeins verið nefnd tvö atriði en væri hægt að benda á miklu fleiri, því út- lendingar koma ekki hingað í leit að lúxus og hóglífi, held- ur einhverju ,,öðruvísi“. Og það getum við látið í té. S.H.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.