Vikan


Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 19

Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 19
SAGT ER AÐ ALDREI SÉU TVÍBURAR SVO LÍKIR AÐ FORELDRARNIR ÞEKKI ÞÁ EKKI í SUNDUR. EN í ÞVÍ TILFELLI SEM HÉR SEGIR FRÁ, VAR EKKI EINU SINNI MOÐIRIN VISS f ÞEIRRI SÖK — Sjáðu hvað Tracy er falleg, þegar hún hlær sagði herra Bruce við konu sín DeWitt, um leið og hann sveipaði stóru bað- handklæði utan um spriklandi barnið. — Tracy? sagði frú Bruce. — Þetta er ekki Tracy þú hlýtur þó að sjá að það er Terry sem þú ert með. — Terry? Nei, það hlýtur að vera Tracy, svaraði herra Bruce íhugull. — Almáttugur, hrópuðu hjón- in samtímis. — Hver er hver? Bruce-hjónin, til heimilis í De- troit, Bandaríkjunum, voru til- neydd að horfast í augu við sann- leikann. Þau þekktu ekki sundur börnin sín, tvíburastúlkurnar Terry og Tracy. í upphafi hafði það ekki verið erfitt, því að þá var Tracy heldur þyngri en Terry. En svo þyngdist Terry nógu mikið til að ná stóru syst- ur, sem var heilum tveimur mínútum eldri. Og þá fóru vandræðin fyrst að aukast fyrir aumingja foreldrun- um. 4 Að halda hönd smábarns kyrri nógu lengi til að greinilegt þrykk náist — það er ekki auðvelt verk, jafnvel ekki fyrir þaulæfðan fingrafarasérfræðing eins og Wilmer Kroll. Naglalakk dugði ekki Frú Bruce notaði fyrst einfald- asta ráðið, sem henni datt í hug. Hún klíndi naglalakki á aðra stórutána á Terry. Það hjálpaði þangað til stúlkurnar voru næst settar í bað og veltust hver um aðra í baðbalanum. Þegar frú Bruce uppástóð að maður hennar héldi á Terry, svaraði hann: En þú sérð að hún er ekki með neitt naglalakk á tánni. En hvorug stóra táin á hinni litlu stúlkunni var heldur rauð. Baðvatnið hafði leyst lakkið upp. Hver var hver? f örvæntingu sinni skrifaði frú Bruce spurningaþættinum í blað- inu sem hún var áskrifandi að, og bað um ráð. Blaðamennirnir fengu áhuga á vandamáli hennar, sem var heldur óvenjulegt, og hringdu í sjúkrahúsið, þar sem telpurnar höfðu fæðzt. Þar var þeim sagt að afþrykk hefði verið tekið af lófum telpnanna. Þegar frú Bruce heyrði þetta, andvarpaði hún fegin. Nú hlaut allt að verða í lagi. En það sýndi sig að nú fyrst varð málið alvar- legt. Það kom sem sé í ljós að Hnur í húðinin eru ekki sérlega skýrar við fæðingu og að starfs- menn sjúkrahússins, sem tekið höfðu afþrykkið, voru engir snillingar í því verki. — Reynið sjálf að halda hönd barns, sem spriklar öllum öng- um kyrri nógu lengi til að hægt sé að ná greinilegu afþrykki, sögðu þeir móðgaðir. En kannski gætu sjúkrahús- skýrslurnar leitt eitthvað í ljós. Sú varð ekki raunin á. Tvíbur- arnir höfðu verið hinir spræk- ustu, svo að frú Bruce hafði ekki farið með þá til læknis í fimm mánuði. Ur þeirri átt var því engrar hjálpar að vænta. Það var líklega ekkert frekar hægt að gera, hugsuðu Bruce-hjónin og fóru að reyna að sætta sig við þá tilhugsun að verða aldrei viss um að þekkja börnin sín sundur. Þegar hér var komið barst hjálp úr óvæntri átt — frá lög- reglu staðarins. Hún hafði sam- band við frú Bruce og sagðist álíta að fingrafarasérfræðingar hennar gætu leyst vandann. Einn þeirra skyldi taka ný þrykk af lófum tvíburanna og bera þau saman við þrykkin á sjúkrahús- inu. — Ef þetta ráð brygðist, var ég farin að halda að við yrðum að umskíra þær, sagði frú Bruce. Svart blek — Þetta er óvenjulegt verk- efni, sagði fingrafarasérfræðing- urinn, Wilmer Kroll, þegar hann gerði innrás á heimili Bruce- hjónanna með útbúnað sinn. Kroll hafði í átján ár unnið að því hjá lögreglunni að þekkja fingraför. Hann var meira en klukkustund að ná nýjum þrykk- um af lófum telpnanna. Tvíburarnir voru ekkert hrifn- ir af þessari meðferð; lófarnir þeirra litlu voru allir löðrandi í bleki áður en lauk. En um síðir tók þetta enda. Kroll var stundarfjórðung að grannskoða þrykkin og gerði það engu óvandlegar en læknir rönt- genmynd. Smátt og smátt varð hann glaðari í bragði og að lok- um leit hann upp frá stækkunar- glerinu: — Ég hygg að ég hafi leyst vandann. Hann benti á annað þrykkið. — Þetta er af Tracy, og þá hlýtur þetta að vera af Terry. Þakklæti Bruce-hjónanna átti sér engin takmörk. — Ég vissi þetta alltaf, sagði frú Bruce, hreykin af því að eðl- isávísun hennar sem móður hafði reynzt rétt. Tvíburarnir píptu óáængjulega yfir uppistandinu. Svo veltu þeir sér á hliðina og sofnuðu. Nú gerðu Bruce-hjónin örugg- ari ráðstafanir en áður. Þau merktu nú tvíburana með plast- armböndum, sem þau fengu á sjúkrahúsinu og bundu um úln- liði telpnanna. Þau eru fast- ákveðin í að sjá til þess að öll endaleysan geti ekki byrjað einu sinni enn. ☆ 28. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.