Vikan


Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 28

Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 28
Höggmyndalist er Odýru búsáhöldin frá Reykjalundi REYKJALUNDUR Plastáhöld ryðja sér æ meir til rúms í sífellt fjölbreyttari gerðum. Þau hafa marga ótvíræða kosti: • Þau brotna ekki. • Þau eru létt og þægileg í meðförum, fara vel í skáp. • Auðvelt er að þrffa þau. • Lokuð matarílát eru mjög vel þétt. Reykjalundur býður yður nú margvíslegar gerðir búsáhalda úr plasti í fjölmörgum litum: föt, lítil og stór; fötur, opnar og lokaðar; kassa og box (bitabox); skálar, könnur, glös o. fl. VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI AÐALSKRIFSTOFA REYKJALUNDI, Mosfellssveit — Simi 91 66200 SKRIFSTOFA I REYKJAVÍK Bræðraborgarstíg 9 — Simi 22150 Framhald af bls. 11. — Segðu okkur frá einhverj- um ævintýrum ykkar Þórðar. — Meðal annars var það einu sinni um hvítasunnuna, að fisk- urinn var hættur að taka á krókinn beran, og tími kominn til að fara í beitufjöru. Þá var norðanrok og bylur. Og Þórð- ur ræsir okkur út, tvo strákl- inga sem voru með honum og segir: nú förum við í Akraós. í góðu veðri var þetta sjö tíma stím. Og við gerðum eins og hann bauð, en alíir héldu að hann væri kolvitlaus. Þetta var hávaðastormur og norðan byl- þræsingur. Og Þórður keyrði allar víkur; við fórum alltaf með landinu, örgrunnt, og vorum í skjóli undir bökkunum. Það var aðeins þegar við komum fyrir Stakkhamarsós og fyrir ósana á Löngufjörum, að við fengum mjög harða byistrengi á okkur. En þegar við komum í Akraós var veðrinu slotað, og við fyllt- um bátinn á beitufjöru. Eitt sinn var það líka sem oft- ar að við fórum um borð í fær- eyskar skútur — hann hafði gam- an af að rabba við Færeyingana. Við vorum djúpt úti af Malar- rifi, og það gerði kafald og við vorum kompáslausir. Þegar við snerum til baka, vorum við ekki vissir um að hann hitti á land- ið. Það var lognkafald. Þá sagði hann: Þetta er allt í lagi strákar, við fylgjum bara bár- unni. Báran vísar alltaf á land í logni. Og við komum beint upp á Malarrif. — Varstu eitthvað farinn að iðka myndlist í þá daga, jafn- framt sjósókninni og búskapn- um? — Já, ég var þá á vetrum í Reykjavík, við nám í leirkera- smiði hjá Guðmundi frá Mið- dal. Þannig gekk það til ein fjög- ur sumur, yfir stríðsárin. En fjörutíu og fimm fór ég út til frekara náms, þá var enginn sér- skóli í þessu hér. Leiðin til Evrópu var þá opnuð og ég fór til Svíþjóðar. Alla veturna hiá Guðmundi var ég jafnframt i Handíðaskólanum. það er að segia á kvöldin. Ég byrjaði þar veturinn þriátíu og níu hjá Kurt Zier, sem þá var að koma til ís- lands. Ég varð einn af fyrstu nemendum hans hér; lærði hjá honum teikningu. — Og í Svíþjóð? — Myndhögg, skúlptúr. Þá var ekki far;ð að kenna Það hér heima. Ég var í Gautaborg. í skóla hreyfingar sem nefndist Slöjdföreningen og mikið kvað að á þessum árum. Skólinn var 'nliðstæður Kunstfack í Stokk- hólmi. í honum voru margar deildir fyrir hina ýmsu greinar listiðnaðar og svo höggmynda- og málaradeild. Við hkðina á þessum skóla er Valand-skól- 28 VIKAN 28- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.