Vikan


Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 32

Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 32
NÚ ER AUÐVELT AÐ ENDURNÝJA ELDHÚSIÐ HINGAÐ TIL hafa slíkar endurbætur kostaS mikiS rask, sem margar hús- mæSur vilja hlífa sér viS. Nú er allt breytt. ViS tökum gömlu innréttínguna niSur og setjum upp nýja og nýtízkulega, inn- flutta innréttingu — allt á tveim dögum. ViS breytum ekki heimilinu í trésmíSaverkstæSi á meSan og þér undrizt, hvaS eldhúsiS gerbreytist, hvaS ibúSin breytist og hvaS störfin verSa ánægjulegrr. Allar okkar innréttingar eru úr harSplasti i miklu litaúrvali og þér getiS fengiS eldavél, uppþvottavél og ísskáp frá sama framleiSanda. — VerSiS er mjög hagstætt. HÚS OG SKIR Ármúli 5 - Sfmar: 84415-84416 V______________I_____________________J stjórarnir að fara út og skara í og bæta á. Þetta voru módel allt aftur til 1925, mjög skemmtilegir bílar, en ekki fóru þeir hratt yf- ir. — Hversu lengi varstu í Gautaborg? — Ég var þarna tvö semester, einn vetur, og á framhaldsnám- skeiði um vorið. Svo axlaði ég mín skinn og fór heim. — Þá fórstu að framleiða keramík? — Já, þá byrjaði ég ásamt fleirum með Funa, sem var fyrsti konkúransinn við Guðmund frá Miðdal. Þannig er það oft: nem- endurnir gerast keppinautar meistara sinna. Jafnframt lærði ég myndhögg í skóla frístunda- málara ,sem þá var búið að stofna, og var það fyrsta skúlp- túrkennsla á íslandi, burtséð frá því að myndhöggvarar hafa efa- laust tekið einkanemendur áð- ur. Þar kenndi Ásmundur Sveinsson, og ég byrjaði þar um haustið. Þar var ég til 1952, við nám á kvöldin. 1952 fór ég aftur til Svíþjóðar, í þetta sinn til Uppsala. Þar komst ég í vinnu hjá Uppsala-Ekeby, sem er geysistórt keramikfyrirtæki. Þar var ég fyrst sem rennari, en komst svo í málarasalinn. Þá stóð nú til að flytja með fjöl- skylduna út. En tímamir voru batnandi heima, meiri möguleik- ar í keramik, svo að ég fór aftur heim. í Uppsölum var ég líka í skúlptúrskóla og þar kynntist ég myndhöggvaranum Bror Hjort. Þegar ég kom heim, bauðst mér teiknikennarastaða við frí- stundamálaraskólann, sem þá hafði skipt um nafn og hét Myndlistarskólinn í Reykjavík. Þar hef ég starfað siðan, fyrst sem teiknikennari og nú á síð- ari árum hef ég tekið við af Ás- mundi Sveinssyni í skúlptúr- deildinni. — Svo varstu með Glit. — Þegar ég var í Uppsölum, hafði ég aðgang að stórri efna- rannsóknarstofu, og á þeim ár- um sem við vorum með Funa, leituðum við að nýjungum í keramik,.til dæmis að efni til að steypa, sem var dálítið erfiður prósess í byrjun, og að leiðum fyrir fjöldaframleiðslu, til dæm- is á blómsturpottum og borð- búnaði. En það voru vissir ann- markar á íslenzka leirnum, það mynduðust göt í brennslunni, sem gerðu að verkum að gler- ungurinn varð ekki nógu þéttur. Og Tómas heitinn Tryggvason jarðfræðingur, — ég leitaði til Atvinnudeildar háskólans — hann reyndist mér mjög hjálp- legur. Við fórum ferðir út á land og rannsökuðum leir, ýmsar tegundir, og áður en ég fór aft- ur út, var hann búinn að benda mér á að það væru miklir mögu- leikar í íslenzku basalthrauni eða gjalli ,sem er að miklu leyti orð- ið gler, það er það mikið brunn- ið. Og ég fór með sýnishorn af þessu þarna út, og til Uppsala- Ekeby, og þar unnum við að þessu. Þar var mér haukur í horni Jón Jónsson, jarðfræðing- ur, sem var við nám. Þeir fengu áhuga fyrir málinu, aðallega til að nota í glerunga. íslenzki hraunleirinn er grófkornóttur, og það er meiginmunurinn á honum og venjulegum brennslu- leir. Grófkornóttur leir er þekkt- ur erlendis, en þar nota þeir bara brenndan leir, sem þeir mylja niður, þetta heitir á ensku bricklay, og sjammot-lera á skandinavísku. Og þegar ég kom aftur heim, þá hóf ég aftur í smáum stíl tilraunir með að blanda í basalti. Það hefur gefið ansi skemmtilega raun. Með því móti hefur tekist að gefa ís- lenzka leirnum alveg sérstakan karakter. Fyrirtækið Glit var stofnað fimmtíu og sjö, og sextíu og tvö, þá höfðum við stóra sýningu í Ásmundarsal, og svo fórum við að vera með á sýning- um erlendis. Einu sinni var ég með íslenzkum myndlistarmönn- um á sýningu í Gautaborg. Þar var sýnd keramik frá tveimur ís- lenzkum aðilum og svo málverk. Þar fékk ég góða dóma. Nú, og svo komumst við í samband við amerísk samtök, sem heita The Kilnclub, sem hafa alþjóða- sýningar í Smithsonian Institut i Washington. Þar sýndum við tvisvar sinnum, meðan ég var með Glit, og fengum ágæta dóma. Ég hélt einkasýningu í London 1963 í Hill's Gallery og seldi öll verkin. Svo sýndum við í Bern. Það var á vegum stofn- unar, sem heitir International Ceramic Academy, og tilgangur sýninga hennar er að fá fram það bezta í keramikframleiðslu heimsins hverju sinni, til að kaupa fyrir söfn. Eftir að reynsla var komin á meðferð hraunleirsins, gaf það aukna möguleika. Hættan minnkaði á að leirinn spryngi. Það varð til þess að hægt var að vinna miklu myndrænna. Við fórum að gera veggmyndir, relief. Ég fékk verkefni í félagsheim- ilinu Stapa í Njarðvíkum, það var sextíu og fimm. Þar gerði ég feiknastóra veggmynd, sem er þrisvar sinnum sjö metrar. Árið eftir gerði ég veggskreyt- ingu í Iðnaðarbankann, nýtt úti- bú við Háaleitisbraut. Svo gerði ég tvær veggdekorasjónir í Hótel Holt, og gegnum það fékk ég pöntun frá Hamborg, um vegg- dekorasjón þar. Það var hótel- eigandi þaðan, sem þar var á ferðinni, og pantaði mynd. Um áramótin 1966—1967 hætti Ragnar með Glit til að geta helg- að sig þeim tveimur áhugamál- um, sem honum standa næst hjarta, listkennslu og mynd- höggi. Um það segir hann: — Ég tók við barnadeildinni í Myndlistarskólanum og lagði áherzlu á útfærslu í keramík- kennslunni, að kenna börnunum að gera jafnt myndir og hluti úr keramík. Magnús Pálsson var með mér í því fyrstu tvö árin og að láta börnin gera sam- vinnumyndir. Þær hafa verið settar upp á vegum fræðslu- stjóra. Fyrsta verkefnið voru myndir í barnaheimilið við Dal- braut og síðastliðna tvo vetur höfum við verið að gera sam- vinnumyndir úr skólalífinu, sem börnin hafa unnið í hóp, fyrir Álftamýrarskólann. Ég fór til Danmerkur veturinn fimmtíu og átta, að kynna mér það nýjasta, sem þeir voru að gera þar þá í barnateikningum. Og þar ein- mitt höfðu þeir gert merkilega hluti með því að láta börn vinna saman og skreyta skólana sína sjálf. Þar við var notaður papp- írsmassi, trékubbar og pappír. En ég hafði fengið reynslu fyrir því, hve mikla starfsgleði börn- in fengu út úr leirnum — leir- inn er svo geysilega þjált og skemmtilegt efni, það liggur ekkert próblem fyrir barni, þeg- ar það byrjar að hnoða, þá er allt í einu komin mynd upp úr þessu og barnið er himinglatt og undr- andi yfir árangrinum. Þessvegna fórum við að gera þetta í leir, brennsluleir og mósaík. Gera fígúrurnar, teikninguna í mynd- irnar úr leir, og fylla upp fletina með mósaík. — Nemendur Myndlistarskól- ans eru flestir börn núorðið, er ekki svo? — Ja, svo var það síðastlið- inn vetur. Það hefur fjölgað stöð- ugt í barnadeildum, og svo hef- ur unglingadeild verið bætt við. En húsnæðisvandræði valda því að orðið hefur að fækka deildum fyrir fullorðna í bili. Skólinn hefur haft árlega styrki, bæði frá Reykjavíkurborg og ríkinu, og þeir styrkir haldast ekki í hendur við aukna dýrtíð. í vet- ur var því aðeins ein málara- deild fjrrir fullorðna og tvær teiknideildir, og myndmótunar- deild. Næstu vetur á undan voru deildir fyrir fullorðna sjö. Von okkar er að hægt verði að bæta úr húsnæðismálunum nú i sum- ar. — Þessi samvinna við barna- kennsluna hefur að sjálfsögðu mikla þýðingu fyrir börnin. — Já, ég held að hún hafi mik- ið uppeldislegt gildi. Þetta hefur mikið að segja til að auka fé- lagsþroska barnanna. Þau eru ekki minni einstaklingsverur en fullorðna fólkið, nema frekar væri. Og maður finnur fyrir því við gerð þessara samvinnu- mynda, að börnin taka þessu misjafnlega, sum er erfitt að fá með, önnur eru aftur á móti mjög fús og njóta sín jafnvel bezt i samvinnuverkum. Ég er sann- 32 VTKAN »•tbI

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.