Vikan


Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 17

Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 17
Ingimar Eydal er í fullu fjöri með hljómsveit sína um þessar mundir eins og endranær, og að sögn þeirra, sem eru hvað heima- kærastir í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri, hefur hljómsveitin sjaldan eða aldrei sprækari verið. Ný hljómplata er líka á leiðinni, tvö lög sungin af Þorvaldi, eitt af Helenu, en í fjórða laginu kankast á klarinetta og söngtríó. Síðast talda lagið er eftir Finn Eydal, sem þarna kemur upp um ágæta hæfileika sína til að setja saman skemmtileg lög. Þegar við ræddum við þá bræður Finn og Ingimar var helzti höfuðverk- urinn sá, að finna heiti á lagið. Ætli „Sveiflandi klarinetta" verði ekki ofaná, sagði Ingimar íbygginn, og þar með var það næstum því ákveðið. Lagið, sem Helena syngur, er hið fræga „Boom-bang-a-bang“, en það var framlag Breta í Eurovision söngvakeppnina 1969, sungið af Lulu. Textann gerðu Þorvaldur og Ásta Sigurðardóttir (kona Ingi- mars), og kalla þau lagið „Og þó“. Eitt laganna á plötunni er eftir Þorvald og syngur hann það sjálfur. Lagið, sem hann nefnir „Ég þrái þig“, er beat-kynjað og hreint ekki svo galið. Er óhætt að spá því vinsældum. Þá er ótalið fjórða lagið á plötunni, sem Þorvaldur syngur einnig. Það er grundvallað á aríu í d-dúr eftir Bach. Ingimar lét þess getið, að hinn upprunalegi kontrapunktur væri látinn halda sér að mestu leyti en bætt væri við léttum rythma á trommur og bassa. í þessu lagi leikur Finnur á bassaklarinettu, sem er mjög tignarlegt hljóð- færi og gefur frá sér hin fágætustu hljóð. Þessi hljómplata mun koma á markaðinn í ágústbyrjun. Útgefandi er Tónaútgáfan. ☆ Von er á nýrri hljómplötu frá Heiðursmönnum innan tíðar. Hljómsveitin, sem um nokkurt skeið hefur leikið í Klúbbnum, er skipuð Þóri Baldurssyni, Rún- Þórir Baldnrsson. Keynir Harðarson, trymbili Heiðurs- manna. ari Georgssyni, Baldri Arngríms- syni og Reyni Harðarsyni. Við hittum Þóri á dögunum og báð- um hann að segja okkur eitthvað um lögin á þessari plötu, sem er hin fyrsta frá hljómsveitinni. Þrjú laganna eru erlend, en eitt er eftir Þóri. Erlendu lögin eru: Hvar? eða „Can't Take My Eyes Of You“. Þetta lag hafa margir góðir söngvarar sungið, m.a. Andy Williams. Auk hljóm- sveitarinnar koma fram fjórir blásarar en Þórir syngur. Hann sér raunar um sönginn í öllum lögunum fjórum. Þá er lag, sem nefnist ,,Kjark- leysi“ eða Conquestator" á frum- málinu. Þetta er beatlag, sem hljómsveitin Procol Harum hef- ur flutt. Þriðja erlenda lagið er svo „Vor eða haust“, sem er íslenzk útgáfa lagsins „Valley of the Dolls“ úr samnefndri kvikmynd. Lagið er eftir André Previn. Tíu fiðlarar eru Heiðursmönnum til aðstoðar í þessu lagi. Að lokum er svo lag eftir Þóri, sem nefnist Ilamingjuást. Þetta er rólegt lag með talsverðum íburði því að alls koma fram 18 manns, þegar fiðlarar og blásar- ar eru taldir með. Þórir leikur að sjálfsögðu á hið stóra og vand- aða orgel sitt í öllum lögunum á plötunni. Með tilkomu þessa hljóðfæris þurfti hljómsveitin ekki á bassaleikara að halda, því að fetlar (pedalar) orgelsins gera sama gagn og bassi. Að sögn Þóris þurfti fjóra kraftajötna til að bera orgelið upp og niður stiga í húsi Ríkisútvarpsins, þar sem upptakan fór fram! Þórir sagðist vera nokkuð ánægðúr með þessa hljómplötu, þegar á heildina væri litið. Hann sagði, að skemmtilegt hefði verið að fást við útsetningar laganna, en hann hefur ekki fyrr útsett fyrir svo stóran hóp spilara eins og á þessari plötu. Tónaútgáfan gef- ur plötuna út, en hlj óðritun ann- aðist Guðmundur R. Jónsson. ☆ as. fbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.