Vikan


Vikan - 10.07.1969, Qupperneq 6

Vikan - 10.07.1969, Qupperneq 6
HAGSYN HÚSMÓÐIR NOTAR ANNAÐ HEFTI KOMIÐ ÚT 10 SPENNANDI OG SKEMMTILEGAR SAKAMÁLASÖGUR Mfred Hitchcock er löngu orðinn heimsfrægur fyrir kvik- nyndir sínar, sjónvarpsþætti, sögusafn og margt fleira. Allt sem frá hans hendi kemur hefur sömu eiginleika til að bera: í því er fólgin hroll- vekjandi spenna með skoplegu ívafi. — Hit- chcock fæddist í Lond- on 13. ágúst 1899. Hann var við nám í verk- fræði, þegar honum bauðst vinna við kvik- myndir og lagði þá námið þegar í stað á hilluna. Hann nam leik- stjórn á örskömmum tíma og var fyrr en varði kominn í hóp áhrifamestu leikstjóra. Kvikmyndir og sjón- varpsþættir Hitchcocks skipta hundruðum og mánaðarlega gefur hann út í geysistóru upplagi smásagnasafnið Hitchcocks Mystery Magazine. Sögurnar í þessu safni eru allar valdar úr því. Þær eru gæddar beztu costum Hitchcocks, í senn spennandi og skemmtilegar, þannig að ógerningur er að slíta sig frá þeim fyrr en þær eru á enda. Fæst á næsta sölustað. HILMIR HF. - SKIPHOLTI 33 PÖSTHÖLF 533 - SÍMI 35320 - REYKJAVlK BANVÆN ÁST Elsku Póstur: Ég hef alltaf ætlað að skrifa þér, og nú læt ég loks verða af því. Ég er 15 ára stúlka, og ég er hrif- in af strák sem er þremur árum eldri en ég. Ég hef verið með honum, en við eigum bara ekki heima á sama stað, því er nú ver. Ég er að deyja úr ást til hans, og dreymir um hann og hugsa. Elsku Póstur, segðu mér hvað ég á að gera, annars dey ég úr ást. Þér finnst ég kannski of ung, en það er vitleysa. Elsku Póstur, svaraðu mér fljótt og vel. Ég les alltaf Póstinn og draumráðning- arnar og allt sem hægt er að lesa í Vikunni. Hvernig er skriftin? Það er varla óhætt að spyrja um stafsetninguna. Svar- aðu mér elsku Póstur. Með fyrirfram þökk. Ein ástfangin. P.S. Þarft fullt nafn og heimilisfang að fylgja? Segðu mér það, þá skal ég gera það næst. Jú, ég verð nú að segja eins og er, að mér finnst þú fullung til að deyja — og það úr ást, en það hlýt- ur að vera hægt að bjarga lífi þínu á einhvern hátt. Hvemig er það annars, veit þessi hjartaknúsari nokk- uð um alla þessa ást sem þú berð til hans? Ég myndi í þínum sporum byrja á því að láta hann vita það á óyggjandi hátt, og þá ættir þú nú að komast að því hvort þetta er ást í meinum eður ei. Ef svo er ekki, þá hlýtur þetta að blessast allt. Ef ekki, þá skal Pósturinn skrifa fall- ega minningargrein um þig. Skriftin er ekki nógu nógu góð, og ég er þér þalcklátur fyrir að spyrja mig ekki um stafsetning- una, þar sem mér er illa við að særa fólk. P.S. Auðvitað á fullt nafn og heimilisfang að fylgja bréfum; það hefur alltaf þótt argasta ósvífni að skrifa nafnalaus bréf. SKORTUR Á UMRÆÐUEFNI? Kæri Póstur: Ég ætla að biðja þig að svara mér hreinskilnis- lega. En þannig er mál með vexti, að ég á svo erfitt með að halda uppi sam- ræðum. Það er yfirleitt þannig, að persónurnar tala um eitthvað sem ég kannast ekkert við, eða þá stelpur sem hafa verið með hinum og þessum strákum sem ég þekki svo hvorki haus né sporð á. Ég hef gaman af samræðum, ekki sízt stjórnmálasamræðum, og hef mikinn áhuga á öllu spennandi úr pop- og kvik- myndaheiminum, og held mikið upp á lítt þekkta leikara eins og til dæmis Alan Bates. Ég get talað við fólk um svona lagað allan daginn; þannig get ég orðið ástfangin af hinu talaða máli. Spurningin er sem sagt: Hvernig á ég að haga mér, fyrst ég virðist vera eina manneskjan sem hef áhuga fyrir þessu? Margrét. Um hvað talar fólkið í Hveragerði eiginlega? Bara stelpur og stráka með haus og sporð? Ég trúi bara ekki affl þú getir ekki fundið einhvem sem vill tala við þig um pólitík, pop og kvikmyndir. En það ætti náttúrlega ekki að saka að reyna að víkka aðeins sjón- deildarhringinn með því að lesa um eitthvað fleira en bara þetta sem þú talar um. Ef ekkert gengur hjá þér, þá skaltu sækja eitt hinna rómuðu Dale Car- negie námskeiða. — Og ég verð að segja sem er, að það hlýtur að vera ólíkt skemmtilegra að verða „ástfangin af hinu talaða máli“, en einhverjum leið- indastrák sem vill svo kannski ekkert með þig hafa. AFDRIFARÍKT MATARBOÐ Kæri Póstur: Ég er í alveg hörmuleg- um vandræðum, og því leita ég til þín, þar sem ég hef hreinlega ekki kjark

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.