Vikan


Vikan - 10.07.1969, Page 7

Vikan - 10.07.1969, Page 7
í mér að leita ráða hjá að- standendum mínum. En þannig er mál með vexti, að í haust sem leið lenti ég í samkvæmi með hópi fullorðins fólks (ég er 18 ára), og stóð þetta partý yfir alla nóttina og fram að hádegi næsta dag. Þá vildi ég komast heim, en ég leigi herbergi inn í Smáíbúðahverfi þar sem ég er við iðnnám hér í bænum (er af Austfjörð- um), og ein konan, 27 ára og gift, bauðst til að keyra mig heim. Ég þáði það, og á leiðinni sagði hún mér að maður sinn væri erlendis, og hvort hún mætti ekki bjóða mér í mat. ÍSg þáði það líka, en það varð eitt- Hvað aðeins meira en mat- arboð. Síðan hef ég verið með henni í hverri viku (mað- urinn hennar er flugmað- ur), og er nú orðinn mjög hrifinn af henni, en samt er ég geysilega áhyggju- fullur út af þessu. Hún er að tala um að skilja við manninn sinn, en mér finnst það ganga brjálæði næst: Þau eru bú- in að vera gift í 6 ár og eiga tvö börn, fjögurra og fimm ára. Segðu mér nú, kæri Póstur, hvað ég á að gera? Ég treysti því að þú getir ráðlagt mér eitthvað raun- hæft; ég held að ég geti ekki hætt að hitta hana meðan ég er hér í bænum, en mér væri bölvanlega við að hætta námi og fara heim. Með vou nm fljótt og gott svar. B.D.S. Fyrir alla muni hringdu strax i hana og segrðu henni að gleyma þér, svo skaltu sjálfur snúa þér að því sama. Þetta getur aldrei blessazt og þú verður að írera þér grein fyrir því að bú ert þarna að eyðilcggja hjónaband, þótt það sé ef til vill ekki þín sök. En Vósturinn er eindregið á móti þessu, og auk þess er aldursmunurinn allt of mikill í vitlausa átt. Það væri jafnvel þess virði fyr- ir þig að taka þér frí nám- inu í sumar og skella þér á síld eða eitthvað svoleiðis, og sjá hvort hlutirnir horfa ekki öðruvísi í liaust. ALAN BATES Kæri Póstur: Ég er mikill aðdáandi brezka leikarans Alan Bat- es, en ég veit bara ekkert um hann. Nú langar mig að biðja þig að segja mér eitthvað um hann, og þá helzt persónulega. Fyrirfram þakklæti, Tóta. Alan Bates er fæddur ár- ið 1934, en enginn virðist vita nákvæmlega hvenær. Hann fór ungur að fást við að leika, en var búinn að vera lengi sjónvarps- og sviðsleikari áður en hann lék í fyrstu kvikmyndinni. Það var Whistle Down the Wind“, árið 1962, svo kom „Nothing hut the Best“, árið 1964, þá „Zorha“, „Georgy Girl“ og „Far from the Madding Crow“ lék hann (á móti Julie Christie og Peter Finch) fjárhirði. Hann er ógiftur og býr í Lundún- um, þar sem hann keyrir um á hvítum sportbíl, ann- ars er einkalífi hans vand- lega haldið leyndu. VIKAN OG MÓÐURSJÚKAR KERLINGAR Undanfarin þrjú ár hef ég verið áskrifandi Vik- unnar, og yfirleitt líkað vel. En nú er svo komið að ég hef alvarlega hugsað um að segja blaðinu upp; það er orðið uppfullt af kjafta- og kóngasögum sem enginn hefur gaman af nema kannske einhverj- ar móðursjúkar kerlingar. Blaðið er sem sagt á góðri leið með að verða eins og argasti vinnukonureifari. Því ber að vísu ekki að neita, að innan um er mjög gott efni og mætti gjarnan vera meira af því. Angeli- que og Forsyte virðast geysivinsæl, þó ég hafi persónulega ekkert gaman af þeim en mér finnst að þið ættuð að hafa meira af innlendu efni. Beztu kveðjur og þakkir fyrir allt gamalt og gott. Ion Reckwitch. Ja, þarna heyrðist held- ur betur liljóð úr horni. Pósturinn lofar að koma þessum boðum áleiðis, en það er ákaflega erfitt að gera svo öllum líki. Inn- lenda efnið er í vinnslu. Hver vill gefa mér RONSON? Milady gas kveikjari Comet gas kveikjari Adonis gas kveikjari Empress gas kveikjari Xil gefenda RONSON kveikjara: Afyllingin tekur __ 5 sekúndur, og endist svo mánuðum skiftir. Og kveikjarinn. — Hann getur enzt að eilífu. ■ ■ 1 1 Strákurinn, sem ég er með, gaf mér minnsta kveikjara sem ég hef séS — svo Ktinn aS ég fæ varla nógu litla steina í hann. Annar strákur gaf mér kveikjara, sem hann keypti í siglingu — honum er fleygt þegar hann er tómur. Ekki man ég, hvorn ég lét róa fyrr, kveikjarann eSa strákinn. Ég er alltaf aS kaupa eldspýtur, en þær misfarast meS ýmsum hætti. En eld þarf ég aS hafa. 28. tbi. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.