Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 24
MATAZTI ELDHIÍSINII
v------------------------)
Það mun teljast undantekning
að ekki sé ætlaður einhver stað-
ur í eldhúsinu til þess að matast
við. Enda húsmæðrum mikið
gleðiefni, að þurfa ekki að bera
mat og áhöld í sérstaka borð-
stofu að staðaldri. Sú spurning
heyrist æ oftar, hvort ekki sé
óviturlegt að leggja bæði dýr-
mætt gólfrými og fé til borð-
stofu yfirleitt, aðeins til nota fyr-
ir fjölskylduna á fáum hátíðum
og tyllidögum eða aðeins fyrir
gesti. Hvort ekki væri eðlilegra
að gera hinn svokallaða borð-
krók í eldhúsinu betur úr garði,
hvað rými og aðbúnað snertir.
Nú hagar víða svo til hér á
landi að borðkróknum er nokkuð
þröngur stakkur skorinn og þá
ótrúlega lítill stærðarmunur
hvort um tveggja herbergja íbúð
er að ræða eða 4—5 herbergja.
Svigrúm er oft mjög lítið og lít-
ið hægt að breyta út frá hugsaðri
allsherjarniðurröðun húsgagna
samkvæmt teikningu. í 4—5
manna fjölskyldu er þannig oft
óhjéikvæmilegt, að einn eða fleiri
verði að standa upp til þess að
rýma fyrir þeim, sem innst sit-
ur, þurfi sá að fara frá borðinu
á undan hinum, stólar eru svo
gersamlega skorðaðir við veggi,
að um annað er ekki að ræða.
Óskadraumur margra ekki
hvað sízt þeirra, sem enga aðra
borðstofu hafa, hafa ef til vill
þurft að nýta hana sem barna-
herbergi, er dálítið notalegra
rými fyrir borðkrókinn. Það get-
ur verið að matborðið sé notað
til ýmislegs annars en að borða
við á máltíðum. Margar mæður
þekkja hvað litla skólafólkinu
þykir gott að fá að sitja með
námsefni sitt í eldhúsinu nærri
mömmu, jafnvel þótt nóg aðstaða
sé til slíks annarsstaðar.
☆
APPELSÍNUR MED
ÝMSU MÓTI
v.____________________/
Áður hafa verið uppskriftir af
appelsínumauki, en nú er minnst
hér á fleira úr appelsínum. Þær
eru góður C-vitamíngjafi, eins
og kunugt er og flestir kunna
að meta frískt og hressandi
bragð, sem þær gefa í kökum og
búðingum.
Osoðin appelsínusaft
1 kg appelsínur, 1 sítróna, 5
dl vatn, 7 dl sykur og 4 tesk. vín
eða sítrónsýra.
Ávextirnir skolaðir. Hýðið
skorið þunnt af, svo það sé mest-
megnis gula lagið. Hýðið látið í
ílát og sjóðandi vatninu hellt yf-
ir. Látið standa unz vatnið er
orðið kalt.
Þá er hýðið síað frá og vatnið
látið í ílát, sem appelsínu og
sítrónusafinn hefur verið press-
aður í og sykrinum og vínsýr-
unni blandað í. Hrært í unz syk-
urinn er alveg uppleystur. Þá er
saftinni hellt á flöskur og tappi
látinn í.
Appelsínufroða
3 egg, 1 dl sykur, 1 dl nýpress-
aður appelsínusafi og rifið hýði
af 1 appelsínu og 'k sítrónu, 5
blöð matarlím og 1 dl þykkur
rjómi.
Matarlímsblöðin lögð í bleyti í
kalt vatn í 30 mín. Eggjarauður
þeyttar vel með sykrinum. Rifið
ávaxtahýðið látið saman við
ásam safanum. Matarlímið kreist
vel og brætt í skál yfir gufu.
Blandað í hræruna. Eggjahvít-
ur og rjómi þeytt sitt í hvoru
lagi og blandað að lokum í hrær-
una. Hrærið ekki meira en þarf
til að blanda saman. Hellt í skál
og látið kólna. Það ætti að taka
2—3 klst.
24 VIKAN 28- tbl-
Appelsínuterta
Tertubotn:
3 egg, lVt dl sykur, 2 dl hveiti,
1 tesk. lyffiduft, 3 matsk. rjómi,
vatn eða mjólk, rifinn börkur af
1 appelsínu, 100 gr smjörlíki.
Egg og sykur þeytt mjög vel
svo það verði létt. Bræðið smjör-
líkið og látið það kólna. Rifinn
börkur látinn í eggjahræruna og
hveiti ásamt lyftidufti blandað
varlega í. Kælt smjörlíkið og
rjóminn (vökvinn) látinn síðast í.
Látið í kringlótt, smurt og
hveitistráð mót, bakað við 175—
200° hita á C. Kakan látin kólna
og síðan skorin sundur í tvo
botna.
Fylling:
2 appelsínur eða 1 appelsína
og 1 sítróna. 3 egg, 1"/ dl sykur
og 1- 2 dl rjómi.
Egg og sykur þeytt saman í
eldfastri skál eða potti ( ekki
aluminium) og látið standa í
heitu vatni, sem síðan er látið
sjóða. Blandið í síuðum ávaxta-
safanum og haldið áfram að
þeyta yfir suðunni þangað til
blandan er þykk og létt. Látið
kólna, gjarnan með því að flytja
nú ílátið ofan í kalt vatn. Hrær-
ið af og til í kreminu og blandið
í rifnum appelsínuberki.
Rjóminn þeyttur og blandað í
kalt kremið rétt áður en kakan
er fyllt. Helmingur kremsins lát-
inn á milli botnanna og afgang-
urinn ofaná. Skreytt með þunn-
um appelsínuseniðum og rifnu
súkkulaði.
Og fleiri ávextir koma við
sögu í þessu ávaxtasalati, sem
fær að fljóta með-
Ambrosíusalat.
2 bananar, sneiddir, 3 matsk.
sítrónusafi, % bolli brytjaðar
appelsínur, V2 bolli rúsínur, Vt
bolli brytjaðar döðlur, Vt bolli
kokosmjöl.
Ávöxtunum blandað saman,
sítrónusafa hellt yfir. Kælt.
Þeyttum rjóma blandað í dálítið
af majones í hæfilega blöndu,
ávaxtablöndunni jafnað varlega
í.
Appelsínuskálar
Skemmtilegt getur verið þeg-
ar appelsínubúðingur (froða) er
búinn til, að bera hann fram í
appeisínuhýðinu, sem látið er
mynda skálar. Appelsínur eru þá
skornar í tvennt og ávöxturinn
losaður innan úr svo hýðið sé
heillegt. Það gengur bezt með
mjóum hníf. Síðan er appelsínu-
búðingur látinn í skálarnar, áð-
ur en hann fer að hlaupa sam-
an og látinn fullhlaupa þar.
Hverja skál má svo skreyta með
appelsínubitum, rifnu súkkulaði
og hálfu kirsuberi í kollinn.
☆
’