Vikan


Vikan - 10.07.1969, Síða 40

Vikan - 10.07.1969, Síða 40
hvítt brauð, jafnvel í miðjum vikum. Allir tala ensku, Gyðing- arnir líka. Það er bjart af ljós- um alla nóttina. Járnbrautar- lestirnar ganga eftir teinum undir þaki. Nú bið ég þig að sættast við föður minn, og ég sendi ykkur báðum peninga, svo þið getið komið til Ameríku“. Þorpsbúar vissu ekki hvort þeir áttu heldur að hlæja eða gráta. Hanna hlustaði, en sagði ekki orð. Hún hvorki bölvaði né blessaði. Mánuði síðar kom annað bréf, og þar næsta mánuð enn þá ann- að. Amerískur dollari jafngilti tveim rúblum. Umboðsmaður frá borginni heyrði að Hanna hefði fengið peninga frá Amer- íku, og hann fór til hennar og bauðst til að gera allt mögulegt fyrir hana. Langaði hana til að eignast fallegt hús, eða að eign- ast verzlun? Það var maður í þorpinu sem kallaður var Leizer. Hann var sendiboði, þótt ég vissi ekki til að nokkur hefði nokk- urntíma sent hann eitt eða ann- að. Hann fór til Hönnu, og bauð henni að hafa upp á manninum hennar. Ef hann væri á lífi, sagðist Leizer örugglega geta haft upp á honum, og annað- hvort komið honum heim, eða fengið hann til að skilja lög- lega við hana. Hanna svaraði: — Ef þú kemur heim með hann, þá komdu með hann dauðann, og þú ættir sjálfur að hafa hækj- ur með þér! Hanna varð alltaf Hanna, en nágrannarnir fóru að taka tillit til hennar. Þannig er mannfólk- ið. Ef það finnur lykt af skild- ingi, verður uppi fótur og fit. Nú voru allir fyrri til að heilsa henni, gera henni greiða, köll- uðu hana Hönnu sína. Hanna hvessti á þau augun og tautaði bölbænir. Hún fór beina leið í veitingahús Zrules, keypti stóra flösku af vodka og fór með hana heim. í stuttu máli, Hanna fór að drekka. Það að kona tæki til að drekka, var sjaldgæft, jafn- vel meðal heldra fólks, en að kona af Gyðingaættum legðist í drykkjuskap, var algerlega ó- heyrt. Hanna lá í rúminu og svolgraði vínið. Hún söng, grét og gretti sig óskaplega. Hún skjögraði niður á markaðstorgið í nærfötunum einum. Það var guðlast að haga sér eins og Hanna gerði, en hvað gátu þorpsbúar gert? Það var ekki hægt að setja neinn í fangelsi fyrir það eitt að drekka. Em- bættismennirnir sjálfir voru oft dauðadrukknir. Nágrarmarnir sögðu að Hanna færi á fætur á morgnana og fengi sér einn bolla af vodka. Það var morgunverð- urinn hennar. Svo lagði hún sig og svaf frameftir degi. En þegar hún reis upp á ný, fór hún að drekka fyrir alvöru. Stundum, þegar hún var í góðu skapi, átti hún það til að opna gluggann og fleygja út nokkrum smápening- um. Smábörnin fóru sér næstum að voða við að reyna að hrifsa til sín peningan. Þegar þau beygðu sig niður eftir peningun- um, skvetti hún á þau vatni. Presturinn sendi eftir henni, en hann hefði getað sparað sér það ómak. Það voru allir vissir um að hún ætti eftir að drekka sig í hel. En það varð nú með öðrum hætti. Venjulega kom Hanna út á morgnana. Stundum til að ná sér í vatn í fötu við brunninn. Það voru flökkuhundar í Slátrara- götu, og Hanna gaf þeim oft bein. Það voru engin náðhús, og þorpsbúar gengu örna sinna und- ir beru lofti. Nokkrir dagar liðu og enginn varð var við Hönnu. Nágrannarnir reyndu að rýna inn um gluggann hjá henni, en það voru tjöld fyrir glugganum. Þeir börðu að dyrum, en enginn opnaði. Að lokum voru dyrnar brotnar upp. Það sem þeir sáu, ætti aldrei að sjást aftur. Nokkru áður hafði Hanna keypt bólstr- aðan stól af ekkju. Hún sat venjulega í honum, drakk og tal- aði við sjálfa sig, þegar nágrann- arnir komust í gegnum dyrnar, sáu þeir beinagrind í stólnum, eða hluta af beinagrind, kol- svarta. Góðir hálsar. Hanna var brunn- in upp. En hvernig? Stóllinn var óskemmdur, áklæðið á bakinu aðeins lítið eitt sviðið. Til þess að manneskja gæti brunnið svona algerlega, þurfti mikinn eld, jafnvel meiri en þann sem hitaði almenningsböðin á föstu- dögum. Það þarf nokkuð mikinn við til að steikja gæs. En hvorki stóllinn eða rúmfötin voru brunnin. Hún hafði keypt komm- óðu, borð og klæðaskáp, og það var allt óskemmt. Þó var Hanna eins og lítill kolamoli. Það var enginn líkami eftir til að þvo, klæða í líkklæði eða jarða. Embættismennirnir flýttu sér að húsi Hönnu, og þeir voru furðu lostnir. Enginn hafði séð eld. Enginn hafði fundið reykjarlykt. Hvaðan gat slíkur vítiseldur komið? Það var held- ur engin aska í eldstónni. Hanna hafði líka sjaldan eldað. Lækn- irinn kom, og augun ætluðu út úr höfði hans, hann stóð sem steinrunninn. — Hvernig er þetta mögulegt? spurði lögreglustjórinn. —■ Ef einhver hefði sagt mér þetta, hefði ég kallað hann svívirðileg- an lygara. En þetta er staðreynd. Einhver stakk upp á því að þetta hefði verið elding, en það höfðu ekki verið þrumur né eld- ingar í lengri tíma. Hefðarmenn úr nágrenninu komu til að sjá þessi undur; Slátrargata fylltist af allskonar ökutækjum. Fólkið stóð og gapti af undrun. Allir reyndu að finna einhverja lausn, en árangurslaust. Stoppið í stólnum var skraufþurrt. Svo var talað um það að vodk- að hefði tendrað eld í maga Hönnu, en það hafði enginn

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.