Vikan - 23.10.1969, Blaðsíða 36
i i A íui re vJ mj LTr
1 1 ■ EIN ANGRUN ARGLER ■
SÍMI 84481 - SKEIFAN 3B
Kvöldið fyrir
brúðkaupið
Framhald af bls. 23.
eitthvað á? Ruglað saman radda-
sýnishornum eða þvíumlíkt?
Hames herpti varirnar: — Ég
veit, hvaða ábyrgð fylgir þessu
starfi! Ég geri engar skyssur.
f sama bili voru dyrnar rifnar
upp á gátt og Barney fleygðist
inn. — Hún er farin!
— Hvar er hún?
— Hún var að fara út af bíla-
stæðinu!
Hún ók varlega meðfram
nokkrum húsalengjum, en
sveigði síðan út á hraðbrautina.
Það var svo lítið bil milli bíl-
anna, að stuðararnir námu næst-
um alveg saman.
Hún deplaði augunum til að
sjá skýrar. Hana verkjaði í bak-
ið, og hún reyndi að bæta úr
því með því að skipta oft um
stellingu. Hún hafði bitið sig svo
oft í varirnar, að varaliturinn
hafði allur flagnað af.
Hún fikraði sig inn á flóknar
krossgötur, og síðan gat hún
aukið hraðann í áttatíu. Lög-
regluþjónn á mótorhjóli kom
henni til að hægja á sér aftur,
en þegar hann var horfinn, jók
hún hraðann í hundrað. Ljósið
frá öllum þessum bílum mynd-
aði stórkostlegan samleik á ak-
brautinni.
Um leið og hún fór framhjá
gríðarstóru auglýsingaspjaldi við
veginn, lifnaði vasasendirinn við:
— Heyrir þú til mín, Helen?
— Já, ég heyri.
— í sama bili sveigði bíll fyr-
ir hana, svo hún náði með naum-
indum að forðast árekstur. —
Farðu varlega, sagði hún við
sjálfa sig. — Gættu að þér. Þú
mátt ekki lenda í bílslysi núna!
Hugsaðu þér bara! Tvöhundruð
þúsund blóðblettaðir dollarar
flögrandi um hraðbrautina!
Hann virtist óvenju æstur,
röddin var næstum heit. — Loks
á fyrir okkur að liggja að hittast
aftur, mér og þér, Helen. Nú
er stundin komin. Þú gerðir rétt
í því að skáka lögguna af þér.
Þú ert snjöll stúlka, Helen. Ég
vissi, að þér mátti treysta, þegar
í harðbakkann slægi!
Hann ræskti sig, en hélt svo
áfram: — Jæja, taktu nú eftir.
Haltu áfram eftir hraðbrautinni,
þar t:l þú kemur að afleggjar-
anum til Kennedy. Haltu til
vinstri inn á Laurel, og haltu
beint áfram, þar til ég segi.
Barney geystist á hundrað og
fjörutíu inn á hraðbrautina.
Hann fór fram úr bíl og smeygði
sér inn á fyrir framan hann. —
Gættu þín, sagði Hawkins, en
Barney heyrði það ekki.
Upplýsingarnar streymdu inn
gegnum lögregluradíóið. Mótor-
hjólamennirnir voru mjög nærri
henni. Þeir sem voru á bílum,
fylgdust ennþá með henni. Hún
gerði enga tilraun til að aka þá
af sér.
Svo heyrðu þeir á móttöku-
tækinu fyrir rás eitt, þessa æstu,
heitu rödd: Loks á fyrir okkur
að liggja
— Ég vissi, að hún myndi ekki
svíkja okkur, sagði Hawk. Svo
tók hann hljóðnemann og sagði:
— Hlustið, allar einingar. Kúg-
arinn hefur nú haft samband við
Helen Rogers. Hún beygir af
hraðbrautinni við Kennedy og
fer til vinstri inn á Laurel. Eft-
ir öllum sólarmerkjum að dæma,
hefur hún tekið upp samstarfið
aftur.
Barney hnykkti til höfðinu. —
Þarna kemur hún! Á útopnuðu
eins og fordæmd sál frá Helvíti!
Hún verður tekin fyrir of hrað-
an akstur!
Hawk greip hljóðnemann aft-
ur: Lögreglustöð: Gefið fyrir-
mæli til allra umferðarlögreglu-
manna á hraðbrautinni um að
stöðva ekki bíl með númerinu
QDD 223!
— Eining 14 fylgist með henni,
þegar hún beygir af hraðbraut-
inni. 22 fylgir á eftir 14. 18. og
20 halda áfram undan henni. Við
látum ykkur vita um ferðir
hennar. Lögreglustöð: Ég vil fá
allan þungan útbúnað hingað
svo fljótt sem auðið er! Látið
mótorhjólalögreglu ryðja hon-
um veginn.
Móðursýkiskennd rödd kúgar-
ans glumdi í vasasendinum. —
Hraðar! Hraðar! Settu hann í
hundrað og fjörutíu og haltu
honum þar!
Hún fór fram úr bíl að utan-
verðu, sveigði aftur inn á mið-
akreinina og fór fram úr öðr-
um, en óskaði þess um leið að
hún hefði spennt á sig öryggis-
beltið. Þegar hún ósjálfrátt
hægði ferðina aftur, kom rödd-
in: — Þú heyrðir, hvað ég sagði!
Haltu ferðinni! Bensínið í botn!
Hraðar, hraðar!
Hann er brjálaður, hugsaði
hún. En óvitlaus. Ef einhver
veitir mér eftirför. ek ég hann
af mér með þessu lagi. Skilti með
áletruninni KENNEDY BOULE-
VARD kom í ljós, og í hljóm-
kviðu reiðilegra bílflautna, rudd-
ist hún af miðakreininni út til
hægri og af hraðbrautinni, og
stöðugt glumdi hvatning hans:
— Hraðar! Hraðar!
Barney ók af hraðbrautinni
svo vældi í dekkjunum, svo
sveigði hann bílnum inn á
Laurel. Um leið sagði kúgar-
36 VIKAN 43- tbl-