Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 3
5. tölublað - 4. febrúar 1971 - 33. árgangur
Ljósmynda-
nám í
SvíþjóS
Lesendum Vikunnar er Sig-
urgeir Sigurjónsson, ljós-
myndari, kunnur. Hann
hefur að undanförnu
stundað nám í ljósmyndun
í Svíþjóð, en kom heim
snögga ferð í jólafríinu
sínu. Við notuðum tæki-
færið og spjölluðum lítil-
lega við hann. Viðtalið er
á bls. 24, en á næstu opnu
fyrir aftan er myndasyrpa
eftir Sigurgeir.
Handa
hverjum
skal elda?
Smásagan heitir að þessu
sinni Dagdraumar. „Þeir
minna mann á þá daga,
þegar ekki þurfti að hugsa
um hvað átti að kaupa í
matinn, heldur handa
hverjum maður átti að elda
í kvöld“, segir meðal ann-
ars í þcssari sögu, sem er
eftir Merrill Joan Gerber.
Undirtektirnar, sem þátt-
urinn „Við og börnin okk-
ar‘ hefur hlotið, sýna, að
foreldrar hafa áhuga á að
lesa sem mest um uppeld-
ismál. Hvort þeir fara hins
vegar eftir því öllu er hins
vegar annað mál. Þátturinn
í þessu blaði heitir „Eina
skeið fyrir mömmu, eina
skeið fyrir pabba“ og er á
bls. 22.
KÆRI LESANDI!
Með tóiiuvi fiðlu sinnar töfraði
hann áheyrendur í stórborgum Ev-
rópu. Fólkið sat sem í dvala, á
meðan hann lék, en á eftir lét þiað
í Ijós aðdáun sína og hrifnvngu með
langvinnu lófatalci og fagnaðarlát-
um.
Þannig er fiðlusnillingnum Pag-
anini lýst í grein hér á eftir. En
þessa hlið hans hafa flestir þelckt
lengi. Hitt liefur eklci venð á
margra vitorði fyrr, að Paganini
var með afbrigðum ófríður og jafn-
vel ógeðfelldur, en naut samt ótrú-
legrar kvenhylli. TJngar stúlkur og
glœsikonur um alla Evrópu féllu
lireinlega í öngvit, þegar þœr litu
liann augum. Stúlkunum, sem urðu
á vegi lians, eii þœr voru býsna
margar, steypti liann jafnan í glöt-
un og hina mestu eymd.
Auk þess var liann ósvífinn í
kröfum um laun, þegar hann lék
fyrir aðdáendur sína, og verð á að-
göngumiðum að hljómleikum hans
var hœrra en nokkru sinni hafði
áður lieyrzt getið um. Aldrei fékkst
hann til að leika til ágóða fyrir
góðgerðastarfsemi, eins og var þó
mikið í tízku í þá daga, engu síður
en nú.
Það var þrennt, sem Paganini
hafði áhuga á: fiðlan, peningar og
konur, og þær urðu að vera ungar,
helzt tæplega af barnsaldri.
EFNISYFIRLIT
GREINAR bls.
Leikur meS au'ðlegð og konur, sagt frá ævi fiðlusnillingsins Paganini 16
Við og börnin okkar: Eina skeið fyrir mömmu, eina skeið fyrir pabba 22
VIOTÖL
Aldrei setið andspænis vondri manneskju, rætt við Halldóru Björt Oskarsdóttur 8
Leiðir af sjálfu sér, að menn leiti þekkingar erlendis, rætt við Sigurgeir Sigurjónsson, Ijósmyndara 24
SÖGUR
Dagdraumar, smásaga 12
Gleymdu ef þú getur, framhaldssaga, 5. 20
Gullni pardusinn, framhaldssaga, 3. hiuti 28
ÝMISLEGT
Eldhús Vikunnar: Eggjaréttir, umsjón: Dröfn H. Farestveit, húsmæðrakennari 14
Lestrarhesturinn, lítið blað fyrir börn, um- sjón: Herdís Egilsdóttir, kennari 45
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Mig dreymdi 6
1 fullri alvöru 7
Heyra má 30
Stjörnuspá 34
Myndasögur 35, 38, 42
Krossgáta 47
Síðan síðast 48
1 næstu viku 50
FORSÍÐAN
Halldóra Björt Óskarsdóttir, spákona á bls. 8. Ljósm.: Egill Sigurðsson. . Sjá viðtal
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaöamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjórar: Sigríöur
Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Ritstjóm,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tolu-
hlöð ársfjórðungslega, 1100 kr. fyrir 26 blöð miss-
erislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjald-
dagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst.
s. tu. VIKAN 3