Vikan


Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 34

Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 34
^Verðtíyggð aLIFTF(YQQINQ léttif fjárt\agsáhyggjufá erfiðri stuiyl Því miður vill þoð o/t gleymast að hugsa um jramtið eiginkonu og barna, ef fjölskyldufaðirinn fellur frú. VERÐTRYGGÐ LÍFTRYGGING er hagkvæm og ódýr líftrygging, sem get- ur létt fiárhagsáhyggjur á erfiðri stund. Hún hentar sérlega vel hér á landi, þar sem verðbólga hefur komið í veg fyrir eðlilega starfsemi líf- trygginga. Tryggingarupphæðin og iðgjaldið hœkkar árlega eftir vísitölu framfærslukostnaðar. IÐGJALD er mjög lágt, t. d. greiðir 25 ára gamall maður kr. 1.000.00 á ári fyrir líftryggingu að upphœð kr. 248.000,00. ^Hringið strax í síma 38500 eða i næsta umboðsmann og fáið nánari upp- lýsingar um þessa hagkvæmu líftryggingu. LÍ PTRYGGI IVGÍAFÉI.AGI Ð AINDmKA MIDA PREIMTUIM HILMIR HF SKIPHOLTI 33 - SÍMI 35320 STJÖRNUSPÁ 'v4 HRÚTS- MERKIÐ 21. MARZ 20. APRÍL Vikan verður þægileg, en þér er ráðlegra að fara varlega. Helgin verður þeim yngri eink- ar skemmtileg. Líklega eignastu hlut sem þú hefur lengi þráð. Taktu tillit til eldri kynslóðar- innar. NAUTS- MERKIÐ 21. APRIL 21. MAÍ Vikan verður fremur erilsöm, einkum kvöld- in. Þér berast góðar fréttir varðandi starf þitt. Taktu vel eftir öllu sem gerist 1 kringum þig. Þú kemst að góð- um kaupum. TVÍBURA- MERKIÐ 22. MAÍ - 21. JÚNÍ Vendu þig á að mæta á réttum tíma til vinnu. Þú hefur verið of latur undanfarið og gæti það leitt af sér að þú misst- ir af góðu tækifæri. Ef þú getur iðkað útiíþrótt- ir, notaðu þér það þá. KRABBA- MERKIÐ 22. JÚNÍ - 23. JÚLÍ Ekki skaltu gera neinar fastar ákvarðanir varð- andi helgina. Sennilega hefurðu meiri fritíma á laugardaginn en þú hafðir ætlað. Þú virðir ekki ráð og leiðbeining- ar reyndari manna sem skyldi. LJÓNS- MERKIÐ 24. JÚLÍ — 24. ÁGÚSl Vinnufélagi þinn bregst og þú ert sá eini sem getur tekið að þér störf hans. Hafðu þolinmæði með þeim sem eldri eru, ef svo ber undir. Var- astu að hleypa þér út í rökræður. Heilladagur er laugardagur. MEYJAR- MERKIÐ 24. ÁGÚST — 23. SEPT. § Þér verður nú auðveld- ara en oftast áður að átta þig á því hvemig málin standa. Hafðu sem nánast samstarf og samvinnu við félaga þína: þeir verða þér sjálfsagt innan handar, er á reynir. VOGAR- MERKIÐ 24. SEPT. 23. OKT. Þú hefur meiri afskipti af vissum persónum en þú kærir þig um. Þú tekur nýjar ákvarðanir sem reynast munu skynsamlegri en hinar fyrri, sem voru nánast ævintýralegar. Þú tal- ar heldur mikið. DREKA- MERKIÐ 24. OKT. 22. NÓV. Miklar kröfur verða gerðar til persónuleika þíns. Gættu þess að of- reyna þig ekki. Segðu fjölskyldu þinni frá áhyggjum þínum. Þú leggur mikið upp úr ákveðnu símtali í viku- lokin. bogmanns merkið 23. NÓV. 21. DES. Líkur eru á að þú skemmtir þér mikið í breyttu umhverfi. Vik- an verður skemmtileg fyrir utan smá skakka- föll á ferðalagi. Ein- hverjir munu sækja til þín ráð eða biðja þig um aðstoð. STEIN- GEITAR- MERKIÐ 22. DES. — 20. JAN. Þú gegnir mikilvægu hlutverki og er mikið undir samvizku þinni komið. Þú nærð mikil- vægum áfanga í starfi. Ýmsar vaidamiklar per- sónur verða í sambandi við þig og áttu úrvöndu að ráða. VATNSBERA- MERKIÐ Li E? 21. JAN. — 19. FEB. Þú verður heppinn þessa viku. Dagamir krefjast ekki mikils af þér; þú uppskerð ríku- legar en þú hefur unn- ið til. Það verður upp- nám í nágrenni þínu út af kjaftasögu. FISKA- MERKIÐ 20. FEB. — 20. MARZ Ovænt geturðu gert hluti sem þú taldir þig ekki hafa ráð á. Þér er nauðsynlegt að halda nokkuð í við sjálfan þig. Vertu skynsamur í vinavali. Taktu þá rólegu fram yfir ær- ingjana um sinn. 34 VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.