Vikan


Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 17

Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 17
UR MEÐ )LEGÐ OG KONUR því að framkoma hans á svið- inu, áður en hann hóf leik sinn, var vægast sagt furðuleg. Hann sveigði sig fram og aftur, sletti grindhoruðum leggjunum til og frá. Síðan beindi hann kol- svörtum augunum að áheyr- endum, — „eins og hundur“, sagði Heine. Karlmennirnir í hljómleika- salnum brostu hæðnislega, en þegar meistarinn snerti bog- ann, hættu þeir að hlæja, því að snilli hans var ótrúleg. Hann hreyfði varirnar eins og hann væri að særa fram tóna fiðlunnar í höndum sér. Með krampakenndum hreyf- ingum sveigði hann búkinn, svo það var eins og „myndi hann hrökkva af fótleggjun- um“, segir Julius Schotty, sem var vinur Paganinis og skrif- aði ævisögu hans. Hægri fótlegg hreyfði lista- maðurinn hratt fram og aftur og slöngvaði honum yfir þann vinstri. Buxur hans voru níð- þröngar, svo það var ennþá ljósara hve grindhoraður hann var, og þær voru líka hrukk- aðar, eins og hann hefði sofið í þeim. Framkoma hans á svið- inu sýndi að hann var mjög Nicolo Pa.sanini var mesti fiðluleikari allra tíma, tæknin var ótrúleg. Nicolo Paganini var mesti fiðluleikari allra tíma — en um leið samvizkulaus kvennaflagari. Ef þessi maður væri á lífi nú, væri örugglega margur maður- inn svefnvana af hræðslu um konu sína eða dóttur ... Karlmenn kölluðu hann „fiðlara djöfulsins“. Ungar stúlkur og glæsikonur um Evr- ópu alla, féllu hreinlega í öng- vit ef þær litu hann augum. Nicolo Paganini var ná- fölur, grindhoraður og tann- laus, venjulega með háðsbros á þunnum vörunum. Þunnt, svart hárið huldi tæplega ljótt höfuð hans, en náði niður á rýrar axlirnar. Nicolo Paganini var sú vofa, sem fyrir 140 árum vakti kyn- óra hvar sem hann fór um meg- inland Evrópu. Það var þrennt sem hann hafði áhuga á: fiðl- an, peningar og konur og þær urðu að vera ungar, helzt tæp- lega af barnsaldri. Þessi ítali töfraði með tón- um fiðlu sinnar áheyrendur í stórborgum Evrópu, ekki sízt þá sem sátu í dýrustu sætun- um. Fólkið sat sem í dvala, sem það svo hristi af sér með æðis- gengnu lófataki. Hann var ósvífinn í kröfum um laun, þegar hann lék fyrir aðdáend- ur sína og verð á aðgöngumið- um að hljómleikum hans var hærra en nokkru sinni hafði heyrzt getið um, en aldrei fékkst hánn til að leika til ágóða fyrir velgerðarstarfsemi, eins og þó var mikið í tízku í þá daga, ekki síður en nú. Stúlkunum sem urðu á vegi hans steypti hann alltaf í glöt- un og mestu evmd og þaer voru í tusjatali. Paganini fékk aldr- ei nægju sína af peningum, tón- Mst eða mjúku holdi fegurðar- dísa samtíðar sinnar. Þegar Paganini eyðilagði líf hinnar tvítugu Helene von Feuerbach, var hann fjörutíu og átta ára gamall. Skáldið Heinrich Heine sagði þá að hann sýndi „greinileg merki um eymd, snilli og vítisbál". Hóstahrygla skók magran lík- ama hans og hann kom fram á konsertpallinn í þrjátíu ára gömlum kjólfötum. Þetta var í Frankfurt, veturinn 1829. í fremstu sætaröð sat Hel- ene von Feuerbach, ljóshærð, fögur og ljúf, við hlið hins unga og auðuga eiginmanns síns. Það var greinilegt að Helene von Feuerbach féll strax fyrir meistaranum, og var það eiginlega furðulegt, 5. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.