Vikan


Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 12

Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 12
Við þekkjiim allar dagdrauma. Við erum að gera eitt- hvað í áttina við að strauja þvottinn, ver’ðum að stoppa í alla sokka eiginmannsins og það eina sem framundan er á dagatalinu er foreldrafundur í skólanum. Og allt í einu kemur upp í liugann mynd piltsins sem við elskuðum i gamla daga í skólanum. Svo dönsum við saman á silfur- skóm þar .til sólin rís á ný. Það er sjálfsagt allt í lagi með dagdrauma. Þeir minna mann á þá daga þegar maður þurfti ekki að liugsa um livað átti nú að kaupa í matinn, heldur handa hverjum maður átti að elda í kvöld. Jú, vissulega gat maður þrevtzt á því, en það er eitt að vera þreytt og annað að gera það sem ég gerði. Ég hafði verið þreytt í hálfan mánuð. Mjög þreytt. Sjö ára gömul dóttir okkar hafði fengið einhverja pest i skól- anum og i rúmlega liálfan sólarhring kastaði hún upp á 10 mínútna fresti. Vitaskuld gerði hún ekki mikið meira en að kúgast undir lokin, en um leið og ég var húin að þrífa allt herhergið hennar, þyo rúmfötin og hún farin að hjarna við, fékk yngri dóttir okkar pestina og síðan sonurinn, 7 mánaða gamall. Og þegar ég sýktist var mér skítsama hvort ég var lifandi eða dauð, ég var svo þreytl. Þess vegna lá ég í rúminu, lét óhreina taugið hrúgast upp og horfði á eldgamlar kvikmyndir í sjónvarpinu. Það var þegar ég sá Gregory Peck leika frískan lög- fraeðing frá Suðurrík'junum — konulausan —- áð ég þráði skyndilega Stanlev, kærastann minn frá Jiví i skólanum i gamla daga, en hann var einmjtt í lögfræði. Með allan 12 VIKAN 5 tw minn hita gat ég skvndilega ekki hugsað um neitt nema Stanlev. Hvern skyldi hann nú vera að verja og reyna að forða frá fangelsisvist? Skyldi liann vera giftur eins og ég? Hvar var Stanley? Og þarna lá ég i rúminu á meðan börnin léku sér í garð- inum. Það var sem ég svifi burt á skýi og ég ímyndaði mér að hann bankaði á dyrnar, hneigði sig og segði á sinn sérstaka hátt: „Komið þér sælar, frú“, eða: „Hvert viljið þér fara i kvöld, Anna Ruth Wilson?“ Enginn annar hafði nokkru sinni kallað mig fullu nafni, en Stanlev gerði það alltaf, meira að segja í mesta ein- rúmi. „Góða nótt, Anna Ruth W,ilson“, var hann vanur að segja og kvssa mig ofurlétt á handarhakið eins og ridd- ari. Stundum, þegar hann var að kveðja mig fvrir utan stúlknabvgginguna á heimavistarskólanum, hvíslaði liann svo liátt að allir heyrðu: „Komdu og búðu með mér, Anna Ruth Wilson. Komdu og elskaðu niig.“ Eg vissi að hann var ekki fvrir mig og hann vissi það líka. Lífsviðhorf lians voru allt of örvæntingarfull svo ég gæti fallizt á þau. Ég veit ekki hvort það var sú staðreynd að liann var Suðurríkjamaður sem gérði hann svona sér- stakan, eða hvort það var vegna þess að hann var frá upplevstu heimili. (Sjálf var ég frá Norðurríkjunum og góðu, stöðugu heimili, en liafði, fvrir landfræðilegan mis- skilning, farið í skóla í Texas). Faðir hans var forráða- maður lians en hann minntist aldrei á móður sína. Faðir hans hafði einliyern tíma sagt að ef einhver sona hans vildi fara í skóla þá kæmi það aðeins til niála vildu þeir

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.