Vikan - 04.02.1971, Side 34
^Verðtíyggð aLIFTF(YQQINQ
léttif fjárt\agsáhyggjufá erfiðri stuiyl
Því miður vill þoð o/t gleymast að hugsa um jramtið eiginkonu og barna,
ef fjölskyldufaðirinn fellur frú.
VERÐTRYGGÐ LÍFTRYGGING er hagkvæm og ódýr líftrygging, sem get-
ur létt fiárhagsáhyggjur á erfiðri stund. Hún hentar sérlega vel hér á
landi, þar sem verðbólga hefur komið í veg fyrir eðlilega starfsemi líf-
trygginga. Tryggingarupphæðin og iðgjaldið hœkkar árlega eftir vísitölu
framfærslukostnaðar.
IÐGJALD er mjög lágt, t. d. greiðir 25 ára gamall maður kr. 1.000.00 á ári
fyrir líftryggingu að upphœð kr. 248.000,00.
^Hringið strax í síma 38500 eða i næsta umboðsmann og fáið nánari upp-
lýsingar um þessa hagkvæmu líftryggingu.
LÍ PTRYGGI IVGÍAFÉI.AGI Ð
AINDmKA
MIDA
PREIMTUIM
HILMIR HF
SKIPHOLTI 33 - SÍMI 35320
STJÖRNUSPÁ
'v4
HRÚTS-
MERKIÐ
21. MARZ
20. APRÍL
Vikan verður þægileg,
en þér er ráðlegra að
fara varlega. Helgin
verður þeim yngri eink-
ar skemmtileg. Líklega
eignastu hlut sem þú
hefur lengi þráð. Taktu
tillit til eldri kynslóðar-
innar.
NAUTS-
MERKIÐ
21. APRIL
21. MAÍ
Vikan verður fremur
erilsöm, einkum kvöld-
in. Þér berast góðar
fréttir varðandi starf
þitt. Taktu vel eftir öllu
sem gerist 1 kringum
þig. Þú kemst að góð-
um kaupum.
TVÍBURA-
MERKIÐ
22. MAÍ -
21. JÚNÍ
Vendu þig á að mæta
á réttum tíma til vinnu.
Þú hefur verið of latur
undanfarið og gæti það
leitt af sér að þú misst-
ir af góðu tækifæri. Ef
þú getur iðkað útiíþrótt-
ir, notaðu þér það þá.
KRABBA-
MERKIÐ
22. JÚNÍ -
23. JÚLÍ
Ekki skaltu gera neinar
fastar ákvarðanir varð-
andi helgina. Sennilega
hefurðu meiri fritíma á
laugardaginn en þú
hafðir ætlað. Þú virðir
ekki ráð og leiðbeining-
ar reyndari manna sem
skyldi.
LJÓNS-
MERKIÐ
24. JÚLÍ —
24. ÁGÚSl
Vinnufélagi þinn bregst
og þú ert sá eini sem
getur tekið að þér störf
hans. Hafðu þolinmæði
með þeim sem eldri eru,
ef svo ber undir. Var-
astu að hleypa þér út í
rökræður. Heilladagur
er laugardagur.
MEYJAR-
MERKIÐ
24. ÁGÚST —
23. SEPT.
§
Þér verður nú auðveld-
ara en oftast áður að
átta þig á því hvemig
málin standa. Hafðu
sem nánast samstarf og
samvinnu við félaga
þína: þeir verða þér
sjálfsagt innan handar,
er á reynir.
VOGAR-
MERKIÐ
24. SEPT.
23. OKT.
Þú hefur meiri afskipti
af vissum persónum en
þú kærir þig um. Þú
tekur nýjar ákvarðanir
sem reynast munu
skynsamlegri en hinar
fyrri, sem voru nánast
ævintýralegar. Þú tal-
ar heldur mikið.
DREKA-
MERKIÐ
24. OKT.
22. NÓV.
Miklar kröfur verða
gerðar til persónuleika
þíns. Gættu þess að of-
reyna þig ekki. Segðu
fjölskyldu þinni frá
áhyggjum þínum. Þú
leggur mikið upp úr
ákveðnu símtali í viku-
lokin.
bogmanns
merkið
23. NÓV.
21. DES.
Líkur eru á að þú
skemmtir þér mikið í
breyttu umhverfi. Vik-
an verður skemmtileg
fyrir utan smá skakka-
föll á ferðalagi. Ein-
hverjir munu sækja til
þín ráð eða biðja þig
um aðstoð.
STEIN-
GEITAR-
MERKIÐ
22. DES. —
20. JAN.
Þú gegnir mikilvægu
hlutverki og er mikið
undir samvizku þinni
komið. Þú nærð mikil-
vægum áfanga í starfi.
Ýmsar vaidamiklar per-
sónur verða í sambandi
við þig og áttu úrvöndu
að ráða.
VATNSBERA-
MERKIÐ
Li
E?
21. JAN. —
19. FEB.
Þú verður heppinn
þessa viku. Dagamir
krefjast ekki mikils af
þér; þú uppskerð ríku-
legar en þú hefur unn-
ið til. Það verður upp-
nám í nágrenni þínu út
af kjaftasögu.
FISKA-
MERKIÐ
20. FEB. —
20. MARZ
Ovænt geturðu gert
hluti sem þú taldir þig
ekki hafa ráð á. Þér er
nauðsynlegt að halda
nokkuð í við sjálfan
þig. Vertu skynsamur
í vinavali. Taktu þá
rólegu fram yfir ær-
ingjana um sinn.
34 VIKAN 5