Vikan - 04.02.1971, Síða 4
f fyrsta sinn á íslandi:
STRING
HILLUSAMSTÆÐURNAR
sem fóru eins og eldur í sinu
og slógu í gegn í flestum Evrópulöndum
á síSustu árum
Einfalt, nútímalegt, ódýrt og splunkunýtt
pósturinn
Hollies
Kæri Póstur!
Hvað heita strákarnir í brezku
hljómsveitinni HOLUES, hvað eru
þeir gamlir, hvar eiga þeir heima,
hver stofnaði hljómsveitina og hve-
nær komu þeir til Islands?
Elsku Póstur minn, svaraðu mér
nú fljótt, því ég veðjaði við
eina vinkonu mína um þetta.
Þ.B.
Hollies skipa þeir Allan Clarke,
söngvari, Tony Hicks, aðalgítar-
leikari, Terry Sylvester, rythma-
gítarleikari, Bobby Elliott, trommu-
leikari og Ben Calvart, bassaleik-
ari. Þeir eru á aldrinum 22—29
ára, og komu til íslands árið 1965.
Það voru þeir Tony Hicks og Gra-
ham Nash sem stofnuðu hljóm-
sveitina, en Graham er nú í hljóm-
sveitinni Crosby, Stills, Nash &
Young. Þú gætir athugað þetta
heimilisfang:
The Hollies
c/o Robin Britten
1 Wyndham Mews
Upper Montague Street,
London W 1, England.
Ferlega loðin
Kæri Póstur!
Nú ætla ég að biðja þig um
gott ráð.
Það er þannig mál með vexti,
að ég er svo ferlega loðin á efri
vörinni, og ég er alveg i rusli út
af þessu. Eg er með svo mikla
minnimáttarkennd út af þessu. Ég
er fimmtán ára og er að byrja að
vera með strákum, og mér finnst
þeir horfa svo mikið á efri vörina
á mér (þetta er ekkert fyndið!).
Það er kannski bara hugarfóstur
mitt. Sem sagt langar mig til að
biðja þig um gott ráð, án allra
útúrsnúninga.
Ein skeggjuð.
E.S. Hvernig er skriftin og hvað
lestu úr henni?
Fúsi flakkari
Kæri Póstur!
Þakka þér fyrir allt gott í Vik-
unni. Við erum hérna tvö systkin
sem erum að rífast um það hver
það sé sem leikur Fúsa flakkara
\ sjónvarpinu. Bróðir minn segir
að það sé Árni Johnsen, en ég
segi að það sé Hörður Torfason.
Kæri Póstur, viltu leysa úr þessu
fyrir mig sem allra fyrst.
Með þökk fyrir.
S.K.
Okkur er fortalið af kunnugum
að rödd Fúsa flakkara leggi
til hvorugur þessara sem þú nefn-
ir, heldur Jón Gunnarsson, leikari.
i
Páfagaukar
Kæri Póstur!
Ég les alltaf Vikuna, ég hef
aldrei skrifað þér áður, en nú
ætla ég að skrifa þér. Ég á páfa-
gauka og langar að vita eitthvað
um þá, því að það er alltaf eitt-
hvað að koma fyrir þá. Getur þú
sagt mér hvort það sé til íslenzk
bók um páfagauka? Ég vona að
þú birtir bréfið og gefir mér góð-
ar upplýsingar.
Ein tólf ára
P.S. Hvernig passa saman tví-
burarnir og meyjarmerkið og tví-
burarnir og vogarmerkið?
Ekki vitum við til þess að til sé
á íslenzku nein bók um páfagauka
sérstaklega, en eitthvað er minnst
á þá í kennslubókum í dýrafræði.
Hinsvegar er ólíklegt að þú finnir
þar nokkur ráð við þvi, sem geng-
ur að páfagaukunum þínum. Reyn-
andi væri að leita til dýralæknis.
Samkomulag tvíbura og jóm-
frúr verður sjaldan mjög gott, til
þess eru tviburarnir of örir og
kvikir en jómfrúin of jarðbundin.
Tvíburar og vog eiga hinsvegar
prýðilega saman. Þau eru fljót að
kynnast hvort öðru, hafa svipaðan
smekk og eru ákjósanlegir lifs-
förunautar fyrir hvort annað.
HUS oq SKTP
á horni Nóatúns og Hátúns
Sími 21830
_______________________y
Háreyðandi lyf eru til og fást
í lyfjabúðum og snyrtivöruverzl-
unum. Þú gætir prófað þau, það
er að segja ef þetta er ekki „bara
hugarfóstur þitt", eins og þú sjálf
virðist annars hafa hálfgerðan
grun um. Skriftin er heldur lagleg,
en dálítið óregluleg, og bendir til
að þú hafir listrænar tilhneigingar.
Hann man ekki einu
sinni hvað ég heiti
Kæri Póstur!
Ég skrifa þér eins og margar
stelpur á mínum aldri (fimmtán
ára) vegna stráks, sem ég er hrif-
in af.
Svoleiðis er mál með vexti að
4 VIKAN 5 ‘b>