Vikan


Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 48

Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 48
málshátturinn • Sá er ekki ólánsmað- ur, sem enginn hefur ólán af. <_________________) Kate Elder í nýjum búningi Sterkir menn, sem gátu stað- ið andspænis byssukjöftum og handleikið byssur, hefðu flog- ið til himna við að sjá konu í líkingu við Fay Dunaway. Og hverjum dytti í hug að leggja þeim það til lasts? Hún er há- vaxin og ljóshærð, með dreym- andi, brún augu og svipurinn ber vott um kæruleysislega viðkvæmni. Hún er auðvitað bezt þekkt sem Bonnie Park- er í „Bonnie og Clyde“. En nú hverfur hún eiginlega lengra í vestur í nýju kvikmyndinni, sem kölluð er „Doc“. Hún leikur hina goðsagna- kenndu Kate Elder, sem var, til að segja það kurteislega, greiðvikin kona, á þeim dögum þegar vestrið var í raun og veru „Villta vestrið“. Ungfrú Elder var vön að hrósa sér af því að hún gæti tekið á móti þrjátíu karlmönn- um sömu nóttina, staðhæfing sem hefur verið dregin í efa. Hin raunverulega Kate Eld- er var kölluð „Nefstóra Kate“, en það uppnefni passar ekki við Fay Dunaway. En hún lagði sér til gulltönn, eins og sagt var að Kate hefði komið sér upp, til að tæla karlmenn- ina. Kate Elder var ein af frumherjum hinna frelsisunn- andi manna í fremstu víglínu; hún barðist, drakk og bölvaði, en það var sagt að hún gæti haldið sjálfri sér hreinni, jafn- vel í hópi verstu ribbaldanna. Fay Dunaway er nú nokkuð fíngerð í svona hlutverk, en hún ku gera því góð skil og hikar ekki við að drekka viský af stút, til að gera leikinn raun- verulegri. Þekktur amerískur klæða- meistari hefur teiknað alla búninga, sem eru mjög góð eftirlíking af fatnaði þeirra tíma, allt frá fisléttum nátt- kjólum, sem Kate var í þegar hún töfraði vini sína og ferða- fötunum úr gráu sevjoti, sem hún var í í svaðilförum sinum, en þá bar hún líka barðastór- an hatt, sem verndaði við- kvæmt hörund hennar fyrir brennandi sólinni. Kvikmyndin er ekki tekin í Villta vestrinu, heldur hefur, af fjárhagsástæðum, Omstone City verið byggð upp í Alme- ria, einu hrjóstrugasta horni Spánar. mmmm geturðu botnað? Nokkru færri botnar bárust við öðrum fyrripartinum, sem við sendum út, enda bauð hann ekki upp á jafn mikla möguleika og sá fyrsti. Arangurinn varð nokkuð einhæfur og teljum við ekki ástæðu til að veita neinum ein- stökum viðurkenningu. En hér é eftir fara sýnishorn af framleiðsl- unni. Fyrriparturinn hljóðaði svo: Sumir byrja sérhvert ár soldið utangátta. Sjálfur fæ mér soldið tár og síðan fer að hátta. Brynjólfur Wíum, Njálsgötu 59, Reykjavík. Fíflast þá og draga dár, dilla sér og þrátta. Guðmundur Sveinbjörnsson, Heimavist M.A. Er þeir hafa teygað tár tólf þúsund og átta. Er þeir hafa teygað tár frá tólf til klukkan átta. Er þeir hafa teygað tár eins og teiknismiður Ragnar Lár. Ragnar Lár. Aðrir fá sér agnar tár, áður en þeir hátta. Agúst Guðbrandsson, Miklubraut 16, Reykjavík. Doldið hafa drukkið tár, dregið hafa að nátta Fella höfug friðartár, fara svo að þrátta. Gemsi. (Gemsi vill ekki láta nafn síns getið og sendi af því tilefni svo- hljóðandi vísu: Nafnið ekki nefna vil, nefnilega feiminn, heldur vildi hérumbil hendast út í geiminn.) Utvarpsvölvu verða spár villa Jökuls þátta. Jóhannes Harðarson, Geitlandi 4, Rvík. Hafa kannski tekið tár og tæpast viljað hátta. Rafn Jónsson, Hólmum, Eyjaf. Ætli þeim liði ekki skár, ef þeir færu að hátta? Enginn 14, Ak. Gleðja sig við gullið tár, en gráta á milli þátta. Lofa þó að lifa skár og leita allra sátta. Ingimundur á Svanshóli. Laumast til að lepja tár og lifna við að hátta. Njarðvíkur-Sokka. LEIDRÉTTING Þau leiðu mistök urðu í þættin- um Myndasafn Vikunnar í síðasta blaði, að bréfritari taldi Halldór Júlíusson, fyrrverandi sýslumann, látinn. En hann er bráðlifandi, 93 ára gamall. Biðjumst við mikillega velvirðingar á þessum misskiln- ingi. hvenær var Island hernumið? hver samdi skáldsöguna ,,Ef sverð þitt er stutt"? hvar er borgin Albany? 48 VIKAN 5- tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.