Vikan


Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 29

Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 29
turné um Evr.ópu. Leikritið var gert eftir sögu eftir Faulkner og hét hjá okkur A Journey to Jefferson. Sag- an heitir að vísu As I lay dying og leikritið sömuleiðis, en nafninu var breytt af skiljanlegum ástæðum. Þetta var nefnilega skömmu eftir að Kennedy forseti var myrtur í Dallas. Það þótti því ekki smekklegt af banda- rískum leikflokki að sýna erlendis leikrit með einmitt þessu nafni, síst þegar sá sami leikflokkur var frá sjálfri Dallas. Sýningin var mjög góð, og fékk verðlaun fyrir sviðs- tækni hjá Alþjóðaleikhúsráðstefnunni. — Svo þú hefur þá verið í Dallas, þegar forsetamorð- ið varpaði heldur vafasömum frægðarljóma á þann stað. Hvernig virtust þér borgarbúar snúast við þessu? — Allir sem einn, af þeim sem ég þekkti, voru svo sjokkeraðir, að margir töluðu um að flytja frá borg- inni, þótt þeir væru fæddir þar og uppaldir. Þeim fannst þessi ógnaratburður hafa sett slíkan blett á borgina, að óhugsandi væri að búa þar þaðan í frá. Mestöll vinna bæði í Dallas og um öll Bandaríkin lagðist niður undir eins og lá niðri í fjóra daga. Stemningin var þannig að það er ekki hægt að lýsa henni, og hvergi jafn átak- anleg og einmitt í Dallas. — Hvernig kunnir þú við þig í Dallas? — Þetta er mjög viðkunnanleg borg, fólkið mjög opið og þægilegt. Ég mundi segja að hún væri með betri borgum í Bandaríkjunum. Þarna er fiörugt leik- húslíf og sinfóníuhljómsveit starfandi og það er meira en margar borgir í Bandaríkjunum geta hrósað sér af. — Varst þú ef til vill nærstödd, þegar skotið var á Kennedy? — Nei, ég var stödd á matsölustað ekki langt frá. Þegar sagt var frá þessu trúðu menn varla eigin eyr- um: getur það verið, hefur hann verið skotinn? spurði maður mann. Ég þekkti læknastúdenta, sem voru á sjúkrahúsinu, sem farið var með þá á, og þeir sngðu að Connally hefði verið mjög hætt kominn,- hefði ver- ið orðinn alveg blár. — Hvar komið þið við í Evrópuferðinni? — í París, Brussel og Ostende. Þetta var mitt síðaste hlutverk hjá Dallas- leikhúsinu að því sinni. Þegar hin fóru heim, fór ég til Danmerkur og var þar í tvo mánuði að kynna mér danskt leikhúslíf. Síðan kom ég til íslands. — En þú fórst aftur vestur? — Já, ég var heima eitt ár, en var svo boðið út aftur, til Dallas, að leika gestaleik. Þá lék ég í griman- leikriti sem heitir The-Marriage-Go-Round; það hefur raunar verið kvikmyndað og myndin meðal annars sýnd hér á landi. Þar fór ég með aðalhlutverkið, lék sænska stúlku sem heitir Katrín. Þarna lék ég í þrjá mánuði og kom svo heim aftur; var á samningi hjá Þjóðleik- húsinu, en þar byrjaði ég strax og ég kom heim frá Danmörku. Ég var byrjuð að æfa hlutverk [ Eftir synda- fallið eftir Arthur Miller, en fékk frí til að fara út. En eftir heimkomuna tók ég við af annarri leikkonu, sem fór utan á námskeið, svo að ég lenti ( Syndafallinu engu að síður, fór þar með hlutverk Felice. Síðan hef ég verið hérna heima. — Þú varst í leiklistarskóla Þjóðleikhússins? — Jú, ég var í honum tvö ár. Talið barst nú að Fást, sem sagt hefur verið eitt erf- iðasta verk fyrir leikara í öllum samanlögðum leikbók- menntunum. — Það er þekkt fyrir það, sagði Sigríður. — Það er afskaplega erfitt í flutningi. En það er mjög gaman að spekúlera í því og vinna [ því. Það er ekki grunnt á neinu þar. Og síðari hlutinn er víst ekkert síðri. En 28 VIKAN g tbi. „Eg reyni að láta mér hann er enn erfiðari í flutningi og hefur víst sjaldan „Sé citthvað varið í verkið, verið sviðsettur. En mér finnst það hljóti að koma dálítið er mer sama bvort það er ■ , ., .. o, ., , . , , . t tragískt eða kómískt." einkennilega við leikhusgestinn, að S|a fyrri hlutann af leikritinu, þar sem djöfullinn gerir samninginn við Drottin, en fær svo ekki endanlega svarið, fær ekki að vita úrslitin. Að vísu kemur saga Grétu þarna inn [ og hún fær sinn endi, en þá er ennþá allt í óvissu um hvernig lýkur viðskiptum þeirra Fásts og Mefistófelesar, en viðureign þeirra, sem er afleiðing samnings þeirra Guðs og djöfulsins, er þó aðalefni leiksins. — Hefur þetta ekki verið erfiðasti veturinn hjá þér til þessa? — Jú, það held ég nú. Þetta eru hvorttveggja stór hlutverk. — Hvernig finnst þér þýðing Yngva Jóhannessonar? — Mér finnst þýðandinn hafa sloppið mjög vel frá þykja vœnt um hlutverkin” ur að fara varlega í það, því að karakterinn sem maður túlkar getur verið allt annar en maður sjálfur, og það er algengast. En leiðin til að túlka persónuna skírist þegar maður kynnist henni nánar. — Hverskonar hlutverk þykir þér skemmtilegast að túlka? — Ég veit það bara ekki. Það er erfitt að segja um það. Ég reyni að láta mér þykja vænt um hlutverkin, sem ég fæ. En auðvitað eru þau misjöfn. Um þessi tvö aðalhlutverk, sem ég fer með núna, er það að segja að ég hef afskaplega gaman af að leika þau bæði. — Og þó verður víst síst af öllu sagt að þau séu l!k. — Nei, þau eru gerólík, og það er líka mjög spenn- andi. í næstu viku eru fimm sýningar hjá mér, tvær á Fást og þrjár á Ég vil. Það verður dálítið strangt, en ég hlakka til. r — Láta þér jafnvel hlutverk [ gaman- og sorgar- leikjum? — Sé eitthvað varið í verkið, er mér sama hvort það er tragískt eða kómískt. — Hvernig fannst þér að leika Snæfríði Islandssól? — Mér fannst afskaplega gaman að fá tækifæri til þess. Það var líka erfitt. Ég held að flestir íslendingar kunni (slandsklukkuna allt að því utan að. Eða að minnsta kosti kafla úr henni. En það er gaman að leika í leikverkum Kiljans, þótt hann sé flókinn oft og tíðum. En Snæfríður er sérstaklega skemmtilegt hlutverk og vel skrifað. — Gerir það ekki Snæfríði óvenju erfiða viðfanas að hún er ekki einungis manneskja, heldur tákn? — Jú, það er nú það. Þannig persónur eru alltaf erfiðar viðfangs. Og allir búnir að ímynda sér fyrirfram hvernig þær eigi að vera. Hlutverk, sem eru þannig uppi á einhverjum tindi, eru gífurlega erfið, en jafn- framt skemmtileg viðfangs. — Þú hefur farið með mörg sönghlutverk? — Já, það hefur verið talsvert um það. O þetta er indælt stríð, Fiðlarinn á þakinu, Deleríum búbónis, og fleiri. Og Kiss me Kate í gamla daga. Það var min frumraun. Ég tók við því á stuttum tíma. Það stóð þannig á því að Guðmunda Elíasdóttir veiktist, viku fyrir frum- sýningu, og ég hljóp ! skarðið. — Var það ekki strangt? — Jú, jú, það var voðalega erfitt. En ég gerði mér enga grein fyrir þv! þá. Ég hlakkaði til frumsýningar- innar! Svend-Aage Larsen setti leikinn upp, Jón Sigurbjörns- son og Arni Jónsson voru meðal söngvara og leikara Framhald á bls. 44 „Hlutverk, sem eru uppi á einhverjum tindi eru gífurlega erfið, en jafn- framt skemmtileg viðfangs.“ e tw. VIKAN 29 Ingibjörg Iitla er sérstaklega fjörug og sjarmerandi hnáta og um þessar mundir önnum kaf- in við að æfa fyrstu Heimilisstörfin taka mikinn hluta þess tíma, sem afgangs verður frá leikhús- inu. þessu, ekki síst þegar tillit er tekið til þess hversu óhemju erfitt verkið er til þýðingar. Að m!nu viti er raun- ar varla hægt að þýða það; það verður helst að yrkja það einhvernveginn upp. Og þýskan er erfitt mál að þýða úr, setningarnar svo snúnar og meiningin kemur oft ekki fyrr en ! endann. — Er ekki erfitt að vera leikari yfirleitt? — Það krefst mjög mikillar einbeitingar. Annars aengur þetta ekki. Meginatriðið er að skilja verkið og hugarástand þeirrar persónu, sem maður túlkar, og koma þv! hugarástandi yfir. Til þess eru ýmsar leiðir og margvíslegar,- ein hentar þessum leikaranum, önnur hinum. Kannski kemur eitthvað fram í persónunni sem maður sjálfur þekkir af eigin reynslu, eða þá að leik- arinn reynir að gera sér í hugarlund, hvernig hann hefði brugðist við í sporum persónunnar. En það verð- sporin.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.