Vikan


Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 44

Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 44
GLEYMDU EF ÞÚ GETUR Framhald af bls. 23. ir. Það sem enginn vissi, gerði engum mein. Ellen hafði ekki yfir neinu að kvarta. En var tvískinnungsleik hans hérmeð lokið? Gat hann ekki leng- ur leikið tveim skjöldum? Hvernig átti hann að geta látið sér detta í hug, að þessi smástelpa sem bjó með Ingigerði, skyldi vera Mika- ela Linder? Ef hann hefði aðeins vitað strax, hvert eftirnafn hennar væri, þá hefði hann áttað sig á þessu strax og getað gert ... Ja. gert hvað? Börje gekk að fína maghonyskápnum í stofunni. Eitt whiskyglas mundi gera hann skýr- ari f hugsun. Hann vissi satt að segja ekki, hvað hann hefði getað gert, jafnvel þótt hann hefði vit- að frá upphafi, hver unnusta Ingv- ars var. Og svo voru það peningar Per Uno Melanders. Ef hún hefði ekki átt graenan eyri, hefði mátt leysa málið auð- veldlega. Þá hefði verið bezta ráðið að kaupa hana burt og neyða hana til að þegja. En ef hún hefði verið slík stelpuskjáta, þá hefði Ingvari að sjálfsögðu aldrei dottið í hug að trúlofast henni. En nú hafði þetta æxlast svona til. Það var staðreynd, að þau voru trú- lofuð. Og peningarnir hennar — þeim var vel fyrir komið, á góðum rentum og auðvelt að losa þá. Það mundi hafa mikla þýðingu fyrir hann sjálfan. Ekki svo að skilja, að hann væri í neinum krögqum. En peningar hans voru bundnir hér og þar, og betta nýja húsgagnafyrirtæki í Stokkhólmi hafði ekki reynzt sú gullnáma, sem hann bjóst við. Hinar mörgu ferðir hans þangað kostuðu líka sitt. Ingigerður þurfti að fá sína pen- inga, þótf hún krefðist reyndar ekki mikils af honum. Það var engu líkara en hún væri í alvöru orðin föst við hann, þessi litla, heimska, kynbomba. Hann velti því fyrir sér, hver hefði verið ,,vin- ur" Mikaelu. Ekki var það Sigfrid Stening, svo mikið var víst. Hann hafði beðið Ingigerði að taka vin- konu sfna með sér til að halda honum selskap, en Mikaela hafði áreiðanlega aldrei séð hann áður. Siálfur hafði hann orðið fyrir von- brigðum, þegar hann sá Mikaelu. Hún hafði verið grindhoruð þá, illa klædd og föl og feimin. Hann hafði aldrei getað skilið, að Ingi- gerður skyldi búa með henni. En hún hafði gert það og bara það eitt var nóg. Það sagði sína sögu um siðferði Mikaelu. Það var ótækt með öllu, að Ingvar gengi að eiga slíka stúlku. Hann heyrði umgagn fyrir aft- an sig og tæmdi glasið í botn á augabragði. Hann ætlaði einmitt að fara að biðja Önnu að fara upp og kalla á Mikaelu. Hann setti glasið í flýti inn í skápinn aftur, svo að vinnukonan sæi það ekki. En það var Mikaela, sem stóð á þröskuldinum og horfði á hann. Hann mundi eftir augum hennar, það var einhver þreyta í þeim og kjarkleysi, sem nú var með öllu horfið. Hann hafði séð þau lýsa skelf- ingu og viðbjóði, þegar Sigfrid datt dauður niður við fætur henn- ar. Nú var hún sem sagt breytt. Augnaráð hennar var skærara og kaldara en það hafði verið áður. Honum leizt illa á það. Ef til vill mundi hún ekki verða eins auð- veld viðureignar og hann hafði vonað. — Mér datt einmitt í hug, að þér mynduð koma heim, sagði hún rólega. — Sjáum til, sagði Börje Rick- ardson kaldhæðnislegum rómi. — Þú ert sannarlega kjarkmikil stúlka. Og samt féllstu í yfirlið í gærkvöldi! — Mér brá. En ég hef haft nóg- an tíma til að hugsa um málið í nótt. — Eg líka. Hann reyndi að sýnast rólegur, en hugsanirnar hrönnuðust upp og hann vissi ekki, hvað hann ætti að segja næst. En loks tók hann á sig rögg og sagði hranalega: — Hvernig fórstu að dra,ga fram lífið í Stokkhólmi? — Hvað eigið þér við? — Vertu ekki með nein láta- læti. Þú bjóst með Ingigerði, ekki satt? Þú áttir ekki heima þar . . . ég á við, ég veit hveriir foreldrar þínir voru. Hvernig ga7tu verið með Ingigerði? — Hvernig gátuð þér það? — Það kemur þessu máli ekkert við. — Það er ósköp þæqileot að líta þannig á málið, sagði Mikaela og það leyndi sér ekki, að henni rann í skap. — Ég veit, að sömu sið- ferðiskröfur eru ekki qerðar til karla og kvenna, hélt hún áfram. En þegar við fluttum saman í íbúð- ina, hafði ég ekki hugmvnd um, á hverju Ingigerður lifði, hvort sem þér trúið því eða ekki. Oo ef þér hefðuðu sjálfur oennið á qat- slitnum skóm frá einum atvinnu- rekandanum til annars oq hveroi fengið nema háðsvrði sem svar við beiðni um vinnu, þá þætti mér gaman að vita, hvað þér hefðuð gert. Börje Rickardson þaqði. Hann vissi í rauninni ósköp lítið um þessa stúlku. Hann hafði gengið út frá því sem vísu, en það var reyndar hugsanlegt, að hún hefði ekki lifað sama lífinu og vinkona hennar. — Og þó! Nei, fjandakorn- ið, þvi gat hver heimskingi sem vildi trúað, en hann gat ekki trú- að því. — Þú hefur sagt Ingvari, að þú hafir fengizt við tónlistarkennslu, sagði hann. — Það er alveg rétt. En það er ekki hægt að lifa af þvi. — Ekki það, sagði hann og hló fyrirlitlega. — Svo að þá var ekki um annað að gera en þéna pen- inga á sama hátt og Ingigerður? — Ingigerður hjálpaði mér, sagði Mikaela. Það er að segja, borgaði bróðurpartinn af útgjöld- um okkar með peningum yðar. Hann hrökk við og blóðroðnaði. — Þú veizt ekkert um þetta mál, sagði hann hörkulega. — Ég veit miklu meira en nóg um það. Ingigerður talaði mjög oft um yður. Henni var Ijóst að yðar rétta nafn var alls ekki Birger Rosén. En hún lét sér standa á sama um það. En gaman væri að vita, hvernig henni yrði við, ef hún sæi yður nú; sæi svart á hvítu, hvernig þér hafið leikið tveim skjöldum. — Við vorum að tala um þig en ekki mig. — Það fer bezt á því, að við tölum um okkur bæði. Framhald í næsta blaði. ÉG REYNI AÐ LÁTA MÉR ÞYKJA ... Framhald af bls. 29. og hljómsveitarstjóri var fenginn alla leið frá Ameríku, svo að það var mikið í húfi. Það mátti ekki fresta sýningunni. Ég lék Biöncu. — Eru samleikararnir ekki mis- jafnlega góðir að leika á móti? — Jú, en með þá er það oft þannig, að einn hefur þetta og hinn hefur hitt. Það er yfirleitt góð samvinna á milli leikaranna í Þjóðleikhúsinu, góður andi ríkj- andi. Þarna ríkir mikill starfsáhugi. — Ertu ekki þreytt, þegar svona mikið er að gera? — Ég læt það vera. Núna er svolítið hlé hjá mér, og ég nýt þes að vera heima! Það eru auð- vitað sýningar á kvöldin, en ég er ekki að æfa neitt í augnablikinu, sem kemur sér mjög vel eftir þetta mikla álag í haust. — Hvernig finnst þér að búa svona uppi i sveit? — Mér finnst það alveg vndis- legt að búa svona út úr. Auðvitað er svolítill spölur í vinnuna, en þó erum við ekki lengra frá mið- borginni en Garðahreppur. Það virkar lengra, af því að ekki er byggð meðfram veginum alla leið. Og svo liggur vegurinn það hátt, að það fýkur af honum þegar snjó- ar. En við verðum auðvitað að hafa bíl, annað er útilokað, rútan bara fjórum sinnum á dag! Þetta er alveg sveit. En ég kann ajveg óskaplega vel við það. Mér finnst stundum eins og ég sé komin í sumarfrí, þegar ég kem hingað uppeftir; alveg laus við stressið neðan úr bænum. Það er áreiðan- lega gott fyrir okkur bæði að skipta þannig um umhverfi frá vinnu til heimilis. Við erum bæði í þannig vinnu; það fylgir þessu mikil áreynsla fyrir taugakerfið. En hérna getum. við alveg slappað af frá öllu, eins og þegar skroppið er úr bænum í frí. Það er aðeins um hálft ár, síðan þau hjónin gerðust sveitamenn,- fluttu uppeftir í júlí síðastliðnum. Húsið er einnar hæðar en hátt á annað hundrað fermetr^a, og hef- ur Lárus sjálfur unnið mikið að því að koma því upp. Enn er mik- ið eftir að gera inni, — en fyrst þetta er komið vel undir þak, sagði Lárus, — þá er engin hætta á að hitt klárist ekki með tíð og tíma. Lárus, sem stundaði tónlistarnám í Vínarborg og leikur sem kunnugt er í Sinfóníuhljómsveit Islands, fékk nú í haust tilboð um að ger- ast meðlimur í Sinfóníuhljómsveit Vínar, en hafnaði boðinu þar eð það var bundið skilyrði um tíu ára ráðningu. Lárus gat sér nýlega orðstír á blásarakeppni Norður- landa, sem haldin var í Björgvin, en þar munaði aðeins broti úr stigi að hann fengi önnur verðlaun. Hann kvaðst sannfærður um að margir íslenskir tónlistarmenn stæðu bræðrum sínum í listinni á hinum Norðurlöndunum fyllilega jafnfætis. Einn veggurinn ( stofunni er að mestu lagður íslenskum steinum í flestum hugsanlegum litbrigðum. — Þetta er nú mitt stolt, sagði Sig- ríður, þegar við dáðumst að veggnum. Eitt af frístundastörfum hennar undanfarið hefur sem sé verið múrverk. — Steinunum hef ég safnað hér og þar, og sumir hafa mér verið gefnir. Sérstaklega hefur eldri maður, sem býr hér í nágrenninu, verið mér innan handar hvað betta snertir. Hérna eru steinar að aust- an og vestan og ofanúr Borgar- firði, frá Hesti, þessir gulu. Svo eru nokkrir úr sjálfri Esjunni og líka silfurberg. Svo ætla ég að hafa kastara á hann, þegar þar að kemur. Litbrigðin í steinunum nióta sín betur, þegar Ijós fellur á þá. Þetta verður sannarlega eftir- tektarverður veggur, þegar hon- 44 VIKAN 6-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.