Vikan


Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 5

Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 5
æskunnar" eru eiginlega einu þætt- irnir í dagskrá útvarpsins sem eru fyrir unglingana. Það eru að með- altali tvær klukkustundir á viku. Hugsaðu þér, TVÆR KLUKKU- STUNDIR Á VIKUII! OG ÞAÐ VIRÐIST VERA OF MIKIÐ, eins og fram kom í kvöld er „klippt" var á „Lög unga fólks- ins". Við skiljum ekki svona!!! Þetta er óréttlæti. Ekki satt?? Við erum viss um það, að þeir háttvirtu herrar sem st|órna þarna í útvarpinu vita þetta. En hvers- vegna er ekkert gert til þess að laga þetta? HVERSVEGNA? Það þýðir ekki neitt fyrir menn að brosa og segja bara: „Ja, það er í athugun, það er í athugun." Við erum næstum viss um það að það er sko EKKERT í athugun, þeir segja þetta bara til þess að komast hjá því að svara, ef til vill óþægilegum spurningum!!! Jæja Póstur minn, ætli við lát- um þetta ekki nægja í bili. Að endingu viljum við þakka fyrir það ágæta/efni sem Vikan birtir. Fram- haldssögurnar „Oskilabarnið" og „Þar til augu þín opnast" eru frá- bærar. Með fyrirfram þakklæti fyrir birtinguna. Nokkrir unglingar á Akureyri. P.S. Það yrði of langt að telja upp nöfn okkar allra, svo við sleppum því að sinni. Vonandi kemur það ekki að sök. ÞaS er afalaust mikið til í bví, sem þið segið. að útvarpið sé ekk- ert ofhlaðið efni fyrir unga fólkið. Efalaust hafa þeir í útvarpinu sín- ar skýringar á því, en hvað sem því líður er auðvitað ófyrirgefan- legt að mismuna þáttum, „klippa" á einn frekar en annan, sama af hvaða ástæðu það er gert. Björgvin Kæri Póstur! Mig langar til að vita svolítið um hann Björgvin Halldórsson og vona að bréfið lendi ekki í rusla- körfunni. Og ég vil enga útúr- snúninga. Jæja, en nú koma spurn- ingarnar: 1. Er Björgvin giftur? 2. Hvað er hann gamall? 3. Hvar á hann heima? Ég vona að ég fái svar fljótt, því mér liggur á. Ein ástfangin. P.S. Hvernig er skriftin og staf- setningin? Björgvin er ógiftur, 19 ára og búsettur í Hafnarfirði, nánar til- tekið Álfaskeiði 36. P.S. Hvorttveggja slæmt. Utúr- snúningar er t.d. ekki skrifað „údúr snúningar". Villi sex ára og Ingvar þriggja ára. Frá Villa og Ingvari Kæra Vika, mig langar til að þakka þér fyrir jólasendinguna. Hún er voða falleg. Pakkinn var ekki tekinn upp fyrr en á aðfanga- dagskvöld. Ég varð voða kátur, þegar ég sá hvað var í pakkanum, og bróðir minn líka, sem er þriggja ára og heitir Ingvar. Hann kann nú ekkert á svona raftæki, bara ég og pabbi. Vikan er alltaf keypt heima hjá mér. Afi skrifar þetta fyrir mig. Vilhelm Jónsson, 6 ára, Skagabraut 7, Skaga.strönd. Alvörumál Kæri Póstur! Við erum hér tvær sem erum í svo miklum vafa um alvörumál. Geturðu sagt okkur hvernig manni líður þegar maður er ÁSTFANGIN! Hvernig getur maður verið alveg viss? Vonumst eftir svari fliótt! (Við erum seytján og tuttugu ára). Tvær í vafa. P.S. Hvernig er skriftin og staf- setningin? Ástin nær sér niðri á margvís- legan hátt, allt eftir kringumstæð- um og einstaklingum. Það er því hæpið að benda á nokkur ákveðin einkenni til að skilgreina þetta ástand. Og er yfirleitt nokkurn- tima hægt að vera alveg viss? Ástæðulaust er að gera athuga- semdir við skrift eða stafsetningu. NVTT FRÁ RAFHA NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar- steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - STMI 10322 Athugið Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. LITAVER GREHSiSVEGI 22-24 SMAR:3D280-32ZGZ 6. tbl. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.