Vikan


Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 3

Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 3
6. tbl. - 11. febrúar 1971 - 33. árgangur Grein um svefn og svefnleysi Við vitum enn ósköp lítið um svefninn og eðli hans, þótt við sofum hér um bil helming ævinnar. Sérstak- lega eru það draumarnir sem gera svefninn girni- legan til rannsóknar. Það er rætt um svefn og svefn- leysi í greininni „Góða nótt, góðan dag“ á bls. 20. Trylltur eins og hross. Gengiskan varð einhver voldugasti þjóðhöfðingi, sem uppi hefur verið í heiminum. Hann og eftir- menn hans unnu sér ríki, sem náði frá Vínarborg í vestri til Kóreustranda í austri, frá freðmýrum Síberíu í norðri til Arabíu- ftóa í suðri. En lífsreglur hans voru ekki til fyrir- myndar. Sjá bls. 12. Um fimmtugt er konan fullkomin. Afi gamli var þeirrar skoð- unar, að konan væri full- komin um fimmtugt. Hann lét sér ekki detta í hug að hætta ástarævintýrum sín- um, þótt liann væri tekinn að reskjast. Frá ástamálum hans segir í skopsögunni á bls. 10. KÆRI LESANDI! Við fórum elcki varhluta af ldám- bylgjunni, sem flœddi yfir heim- inn á síðastliðnu ári. Skyndilega komst allt í uppnám út af mynd- mni frœgu, sem sýnd var í Hafnar- bíói. En það verður að segjast ís- lenzkum blöðum til hróss, að þau leiddu klámið að langmestu leyti hjá sér og féllu eklci í þá freistni að apa eftir starfsbræðrum sínum erlendis. Þeir sem eitthvað fylgjast með erlendum blöðum geta bezt um þetta dæmt. Jafnvel virðuleg- ustu blöð voru allt síðastliðið ár fleytifuU af myndum, sem enginn hefði vogað sér að birta til skam/ms tíma. En öllu má ofgera, og klám verður lílca leiðigjarnt til lengdar eins og flest annað. Margir spáðu því, að lclámið mundi reynast tízkufyrirbrigði, sem hyrfi aftur jafnslcjótt og það byrjaði. Þessi spádómur virðist œtla að reynast réttur. Nú bendir margt til þess, að klámið sé á undanhaldi og ný rómantík sé að ryðja sér t'd riíms í staðinn. Nýjustu kvíkmyndir benda eindregið í þessa átt, til dœmis kvikmynd gerð eftir met- sölubókinni „Astarsaga". Við segjum ofurlítið frá þeirri mynd og fleiri nýrómantískum myndum í grein á blaðsíðu 8 í þessu blaði. EFNISYFIRLIT GREINAR bls. Rómantíkin snýr aftur 8 Trylltur eins og hross, grein um Gengiskan 12 Papillon, síðasti hluti 16 Góða nótt, góðan dag, grein um svefn og svefnleysi 20 Dregur að leikslokum; Þegar bylting var gerð í Reykjavík, 4 og síðasti hluti 24 VIÐTÖL Ég reyni að láta mér þykja vænt um hlut- verkin, rætt við Sigriði Þorvaldsdóttur, leik- konu 26 SÖGUR Um fimmtugt er konan fullkomin, smásaga 10 Gullni pardusinn, framhaldssaga, 4. hluti 18 Gleymdu ef þú getur, framhaldssaga, 6 hluti 22 FASTIR ÞÆTTIR Pósturinn 4 Mig dreymdi 6 1 fullri alvöru 7 Heyra má 30 Stjörnuspá 34 Myndasögur 35, 38, 42 Krossgáta 36 Síðan síðast 48 I næstu viku 50 FORSÍÐAN_________________________ Sigríður Þorvaldsdóttir er orðin ein af beztu leik- konum okkar. Henni hefur farið fram jafnt og þétt að undanförnu, og í ár hefur hún unnið tvo umtalsverða leiksigra: I söngleiknum Eg vil, ég vil og Fást. Henni hefur verið boðið að leika á sviði í Þýzkalandi og er sjaldgæft, að islenzkum leikara sé sýndur slíkur heiður. VIKAN hefur heimsótt Sigríði og forsíðumyndin er tekin heima hjá henni af Ijósmyndara blaðsins, Agli Sigurðs- syni. VIKAN Útgefandl: Hllmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall- dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjórar: Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Ritstjóm, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa- sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu- blöð ársfjórðungslega, 1100 kr. fyrir 26 blöð miss- erislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjald- dagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst. 6. tbi. VIKAN 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.