Vikan


Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 22

Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 22
Börje Rickardson hafði svosem lent í erfiðri aðstöðu fyrr í lífinu. Stundum furðaði hann sig á því, hve lengi honum hefði tekizt að halda öllu leyndu fyrir Ellen. En hann hafði alltaf verið fjarska varkár, og Ellen var að eðlisfari laus við alla tortryggni. Gleymdu ef 3Ú á getur Spennandi framhaldssaga eftir Lenu Winter Sjötti hluti Börje Rickardson beygði fyrir hornið og stóð augliti til auglitis við þær. En hann sá ekki Lajlu. Hann sá bara Mikaelu og honum brá sannarlega í brún. Mikaela starði um stund á hann, en þrátt fyrir stuðninginn, sem hún hafði af Lajlu, sem sat við hliðina á henni, féll hún saman og lá fyrr en varði á grasflötinni fyrir framan bekkinn. Ingvar kom með töflur og glas í sama bili, en ekki nógu tímanlega til að grípa Mika- elu. Það varð uppi fótur og fit. Ingv- ar kraup við hliðina á Mikaelu í grasinu, og bæði Áke og Ellen komu þjótandi út úr húsinu. Eng- inn veitti Börje Rickardson neina athygli, — nema Lajla. Hann stóð sem steini lostinn og starði á stúlkuna, sem lá þarna í grasinu. Svipbrigði hans gáfu augljóslega til kynna, hvernig honum leið. Hann hörfaði nokkur skref aft- ur á bak. Þessi stúlka . . . þetta var Mikaela, sú sem bjó í íbúð með Ingigerði ( Stokkhólmi. Hann hafði séð hana áður og vissi hver hún var. Og þessi stúlka var unn- usta sonar hans! Hún vissi svo sannarlega of mikið um hann sjálf- an . . . Hann gat ekki farið, þótt hann hefði helzt kosið það. Hann varð að vera kyrr og leika hlutverk sitt. Hann sá náfölt andlit Ingvars og heyrði óttaslegna rödd hans, þegar hann reyndi að vekja stúlkuna til meðvitundar á ný. Micka . . . Ingi- gerður hafði kallað hana því nafni. En hún hét Mikaela Linder. Hann hafði ekki haft minnsta grun um, að þær væru ein og sama mann- eskjan. Ellen kom með vott handklæði og lagði það á andlit stúlkunnar. Hún hlaut brátt að komast aftur til meðvitundar. Hvað mundi hún segja þá? Hún hlaut að hafa þekkt hann. Öll velferð og tilvera Börje Rickardsons var nú í höndum henn- ar. Skyldi hún gera sér það Ijóst? Eða mundi honum takast að hræða hana, svo að hún þegði? Hann hafði jú frá ýmsu að segja líka um hana. Hann sá ekki augnaráð l.ajlu, tók ekki eftir, að hún hafði veitt honum athygli alla tíð. Hann færði sig enn ofurlítið aftar, svo að að Mikaela sæi hann ekki, þegar hún vaknaði aftur til meðvitundar. Það voru Ellen og Lajla, sem hjálpuðu Mikaelu upp í gestaher- bergið. Ellen hlustaði ekki á slit- rótt tal Mikaelu og stam. Hún hafði ofreynt sig, hafði ekki náð sér nægilega vel eftir veikindin. Hún þurfti að hvíla sig í einn dag eða svo, og það fór vel á því, að hún gerði það á heimili unnusta síns, þar sem hún gat notið góðrar aðhlynningar. Nei, hún yrði síður en svo nokkrum til ama, þótt hún fengi að hvíla sig þatna, sagði Ellen. Mikaela var máttarvana og hrædd og þakklát fyrir umhyggju og nærgætni Ellenar. Hún lét sem hún svæfi. Löngu seinna tók hún eftir, að Ellen opnaði hurðina og leit inn í dimmt herbergið. Mika- ela lá grafkyrr og bærði ekki á sér, svo að Ellen lokaði hurðinni aftur. Hann hafði líklega ekkert sagt enn. Það var óhugsandi, að Ellen Rickardson léti hana sofna í þessu fína gestaherbergi, ef hann hefði sagt'það sem hann vissi um hana. Bara að Börje tæki ekki upp á því að tala einslega við Ingvar; segja honum allan sannleikann, án þess að Ellen fengi neitt að vita. Mikaela settist upp í rúminu. Þessi hugsun skelfdi hana. Hún bióst ekki við neinu góðu af þess- um manni, sem þóttist heita Birger Rosen í Stokkhólmi. Hann þóttist vera virðulegur borgari meðal fjölskyldu sinnar og vina, en hafði alla tíð verið svallbróðir Sigfrids Stenings og „verndari" Ingigerð- ar. Ef hann mundi nú sýna syni sínum fullan trúnað, segja honum allt af létta og telja honum hug- hvarf. Ingvar elskaði og dáðist að föður sínum. Ef til vill mundi hann fyrirgefa honum, þótt hann hefði átt vingott við unga stúlku, til að lífga ofurlítið upp á gráan hvers- dagsleikann. Ef svo færi, þá var úti um Mikaelu. Og hún gat ekkert gert. Hún varð að bíða og sjá, hvaða leik Börje mundi leika næst. Eða var það ekki nauðsynlegt? Atti hún sjálf að taka frumkvæðið í sínar hendur og eiga næsta leik? Ein- hvers staðar hafði hún lesið, að árás væri bezta vörnin. En gat hún átt í höggi við mann, sem var miklu eldri, slyngari og lífsreynd- ari en hún? Hún svaf ekki mikið þessa nótt. Vina mín, sagði Ellen morgun- inn eftir, þegar hún leit inn til hennar. Þú ert enn þá föl, en það er þó bót í máli, að þú hefur hvílt þig vel. Eg leit inn til þín seint í gærkveldi og sá, að þú svafst eins og lítið barn. —■ Mér þykir þetta svo leitt hóf Mikaela máls, en Ellen vildi ekki hlusta á neinar afsakanir. — Ingvar bað fjarska vel að heilsa þér. Hann gat ekki. beðið, þangað til þú vaknaðir. Hann þurfti að fara á mikilvæqan fund snemma í morgun og fór í bíln- um með pabba sínum. Já, og Börje bað líka kærlega að heilsa þér. Mikaela leit snöggt til hennar, en Ellen var fullkomiega eðlileq. Hún hafði ekki hið minnsta brevtt um rödd, þegar hún sagði þessa síðustu setningu. Hún vissi ber- sýnilega ekkert enn. — Herra Rickardson hlýtur að hafa haldið . . . — Þér er alveg óhætt að kalla hann Börje, greip Ellen fram í fyrir henni. — Það getur enginn ásakað þig fyrir þetta. Það hlýt- urðu sjálf að skilja. Mér þykir bara verst, að þú skyldir ekki segia mér strax, að þú værir svona slæm í höfðinu. — Mér . . . mér fannst það svo óviðeigandi og kjánalegt. Og svo var ég taugaóstyrk ... Ég á við, að ég vonaði svo heitt, að ykkur mundi líka vel við mig og lítast á mig . . . Og þetta var jú ( fyrsta skipti, sem ég átti að hitta föður Ingvars . . . 22 VIKAN s. tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.