Vikan


Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 10

Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 10
Gamansaga eftir skopsagnahöfundinn Robert Fontain. „Ekki fyrirferðarmiklar, heldur fullþroskaðar vil ég hafa þær,“ sagði afi. „Það er ein& og þegar maður heldur á rós í sólskininu.“ Afi var sífellt að nauða í frændum mínum, eins og þeir væru litlir drengir, og hvetja þá til að hætta að drekka, til að gleyma að konur væru til og til að hugsa meira um hin- ar alvarlegu hliðar mannlífs- ins. En sjálfur var hann þeim síður en svo gott fordæmi. Þegar pabbi hafði orð á því, svona meðal annarra orða, að 105 punda maður eins og afi ætti að fara varlega í ævintýr- in, svaraði afi: — En þetta eru allt vöðvar, skilurðu? Það kom berlega í ljós, þeg- ar afi byrjaði að gera hosur sínar grænar fyrir LaChance ekkjunni, að hann hafði ekki aðra eins tröllatrú á vöðvun- um sínum einum. Kvöld nokk- urt kom hann inn í borðstof- una, ljómandi á svipinn og eins skrautlegur og blómaskálin hennar mömmu. Húðin á hon- um var eldrauð af nuddi og gljáði eins og gervidemantur í bindinu hans. Hann var í hvít- um léreftsjakka, með aðeins einum litlum bletti eftir koní- aksúkkulaði, og alveg tandur- hreinum ljósbláum buxum. Á höfðinu hafði hann stráhatt með bláu og hvítu bandi. Hatt- urinn sat skáhallt á höfðinu á honum og virtist kæra sig koll- óttan um þyngdarlögmálið. Hann var með gulan staf, sem hann sveiflaði og sneri eins og trumbuslagari í varðliðssveit landsstjórans. Hann tilkynnti allri fjöl- skyldunni, sem sat alveg agn- dofa við þessa sjón í stofunni, að hann væri á leiðinni til að „faire 1‘amour". Og á frönsku þýðir að elskast raunverulega að elskast. Það er ekki hægt að leggja neinn sakleysislegri skilning í það. Við hlógum öll að digurmæl- um hans. — Þetta gerir út af við hann, sagði Felix frændi. — Þegar þannig stendur á láta slagæðarnar . . . eða eru það kannski blóðæðarnar. ... ? — Það kemur að minnsta kosti í veg fyrir tannpínuna þína, sagði pabbi. Afi deplaði augunum og tók smá dansspor. — Ef einhver veit um betra dauðamein, þá gefi hann sig fram. — Þú skellir saman fótleggj- unum og brýtur þá á þessum dansi, sagði Desmonde frændi hlæjandi. — Ég er á við tvo ykkar í hverju sem er, hreytti afi út úr sér. — Jæja, á fund hinnar fögru ekkju. . Fallöxin bíður, sagði Fel- ix. Með varlegum spurningum og með því að hlusta á hvísl- ingar, komst ég seinna að ým- islegu um þetta ástarævintýri afa. Það kom í ljós að hann hafði fengið keppinaut, Gun- boat nokkurn Hodge, sem ók hestvagni fyrir ölgerðarhús og vann oft verðlaun fyrir að hafa breiðasta brjóstkassann í Ontari. Gunboat hafði bara gaman af að brjóta járnkarl í sundur og í sunnudagaskóla- ferðunum hafði ég oft séð hann liggja á bakinu og láta brjóta stóra steina með sleggju á mag- anum á sér. Maður á afa aldri og jafn léttur og hann var, hafði auð- vitað ekkert á móti slíkri óf'reskju. Afi hafði sýnilega ekki vitað neitt um keppinaut- inn, þegar hann fór að stíga í vænginn við ekkjuna. Því afi minn var fyrst og fremst skyn- samur maður. Hann var ekki líklegur til að stuðla að ofbeldi, einkum ef það var á kostnað hans eigin veikbyggða líkama. Hann var í stuttu máli sagt ekki líklegur til neins konar einvígis. Dag nokkurn spurði ég mömmu hvernig afi hefði kynnzt ekkjunni. — Það var á kirkjuskemmtun, svaraði hún alverleg í bragði. — Afi söng „Road to Mandaley“ og frú LaChance komst mjög við. Þegar hann fór svo að dansa stökkdansinn þá hreifst hún fyrir alvöru af fjöri hans og fimi, þó að hann væri með svo- lítið stopp innan á sér. — En hvers vegna langar afa til að elska LaChance ekkj- una, þegar hann elskar nú þeg- ar — ég byrjaði að telja á fingrum mér — frú Frechete saumakonu, ungfrú Costeau kennslukonu í ballet, söngkon- una frú Perond, ungfrú Mc- Phail . . sagði ég því ég botn- aði hvorki upp né niður í þessu. — Þetta er nóg! Hættu! hrópaði pabbi upp yfir sig. — Þú verður allan daginn að þessu. — Er þetta nú nokkuð til að ræða um við lítinn dreng? spurði mamma dálítið æst. — Ef hann ræðir það ekki við okkur, þá talar hann um það við aðra, sem ekki eru eins skynsamir og kannski verr innrættir. Mamma brosti mildilega. — Já, getur verið. En í mínu ung- dæmi ræddum við ekki ástar- ævintýri afans við barnabörn- in. — En hvers vegna vill afi . . . byrjaði ég aftur. - Sumir hafa þá ástríðu að eltast við fiðrildi, Desmonde frændi þinn kann bezt að meta skrautlee sokkabönd, Felix hef- ur mestar mætur á gagnslaus- um fróðleik. Hvað afa viðvík- 10 VIKAN 6- tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.