Vikan - 02.12.1971, Qupperneq 37
EFTIRLYSTUR JESÚS KRISTUR
Öðru nafni: Messías, Sonur Guðs, Konungur kon-
unganna, LávarSur lávarðanna, Prins friðarins, etc.
— Grunsamlegur leiðtogi neðanjarðar frelsishreyfingar.
— Eftirlýstur fyrir eftirfarandi:
— Stundar lækningar, vínframleiðslu og matvæla-
dreifingu án leyfis.
— Truflar kaupsýslumenn í hofum sínum.
— Umgengst þekkta glæpamenn, róttæka stjórnmála-
menn, undirróðursstarfsmenn, vændiskonur og
flækinga.
— Kveðst hafa vald til að gera fólk að „börnum Guðs“.
ÚTLIT: Venjulegur hippi — síðhærður með skegg og í kufli
og sandölum. -— Tíður gestur í fátækrahverfum, á fáa
efnaða vini og hverfur oft út í eyðimörkina.
ATHUGH): Þessi maður er ákaflega hættulegur. Boðskapur
hans er þó sérlega hættulegur ungu fólki, sem ekki
hefur verið kennt að láta hann afskiptalausan ennþá.
Hann breytir fólki og þykist geta frelsað það.
Varúð: Hann er ennþá laus!
lJað er svo saimarlega rétt. Eins og þessi auglýsing,
sem birtist í „neðanjarðar“-blaði kristins safnaðar í
Bandaríkjunum sýnir, þá er Jesús Kristur á lífi og við
góða heilsu í róttækum anda og trúarlegri uppvakningu
ungs fólks í Bandaríkjunum, og æ fleiri fylkja sér undir
merki hans. Trú þeitra er einfaldlega þessi: Biblían er
sönn, kraftaverk ske og Guð elskaði beiminn raunveru-
lega svo tnikið, að liann gaf son sinn eingetinn . . . Árið
1966 lýsti Bítillinn Jobn Lennon því kæruleysislega yfir,
að Bítlarnir væru vinsælli en Kristur ltefði verið; nú
eru Bítlarnir búnir að vera og George Harrison ákallar
Krist: My Siveet Lord. Hinir ungu og nýju lærisveinar
Jesú Krists lilusla á Harrison en taka einungis mark á
Meistara sinum: „Hvar sem tveir eða þrír eru satnan-
komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra.“
Furðulegt en satt: Sú kynslóð sem undanfarin ár hef-
ur verið ásökuð fyrir að flýja ábyfgð og raunveruleika
með eiturlyfjum, villtu kynlífi, brjálæðislegri popp-
músík, ofbeldi og óeirðum og fleiru og fleiru, hefur
skyndilega snúið sér lil Guðstrúar og tilbeiðslu á Jesúm
Krist.
I>essi alda er tvímælalaust bin atliyglisverðasta af
þeim sem upp liafa skotið kollinum hin síðari ár á með-
al ungs fólks. „Jesú-byltingin“ svokallaða átti upptök
sín í Bandaríkjunum og liefur breiðzt þar út með ógur-
legum braða og verður þess vafalaust ekki langt að biða
að einhvers konar armur þessarar hreyfingar brjótist
hingað til íslands, því Jesúfólkið tekur bókstaflega þau
orð Meistarans: „Farið og gjörið allar þjóðir að læri-
sveinum, skírið þær til nafns föðurins, sonarins og hins
heilaga anda.“
Sjálfur biskupinn yfir íslandi lýsti því nýlega yfir í
sjónvarpsþætti, að Iiann teldi þessa hreyfingu jákvæða
og vitað er, að innan æskulýðsnefndar kirkjunnar hef-
ur verið ræddur sá möguleiki að maður verði sendur
utan til að kynnast hreyfingunni, þannig að hægt sé að
vita hvernig bregðast eigi við, þegar og ef — íslenzk
æska gerist hluti af Jesú-byltingunni.
Þetta svokallaða Jesúfólk skiptist aðallega í þrjá liópa
vestur þar, en eitt á það sameiginlegt. Kristur er sá eini
og því til staðfeslingar rekur það vísifingur upp í loft-
ið: One way!
Jesú-fólkið, einnig kallað „Street Cliristians“ og „Jesus
Freaks“, er mest áberandi í þessari hreyfingu; það er
fólkið sem hefur blandað saman hinum nýja kúltúr og
íhaldssömum trúarbrögðum. Upphaf lireyfingar þeirra
er rakið alll aftur til ársins 1967, er blómaskeiðið var í
hápunkti i San Franeisco, en um svipað leyti urðu vakn-
ingar víðar um Bandaríkin. Sumir, en alls ekki allir,
aðhyllast enn hippalífernið en fleiri í hópnum telja það
þó forkastanlegt. í þessum hópi er mikið um fyrrver-
andi eiturlyfjaneytendur og þess háttar fólk.
Venjulega fólkið er lang stærsti liópurinn og, eins og
nafnið bendir til, venjulegasta fólkið. 1 þessum liópi eru
ungmenni úr venjulegum æskulýðshreyfingum. Aður
fyrr var þetta aðeins armur af evangeliskum mótmæl-
endum, en nú hafa þessi ungmenni gerzt harðari i trúnni
og nær algjörlega óháð kirkjunum og kirkjudeildunum
sem skópu þau. Flest eru af miðstéttarfólki, bursla-
klippt og „borgaralega“ klædd.
Kaþólska Iwítasiinnufólkið birtist mjög óvænt og á
dramatískan liátt árið 1967, rétt eins og Jesúfólkið. A
opinherum vettvangi eru þau siðavönd, en innan síns
lióps ofstækisfull í tilbetðslu sinni á heilagan anda. Þau
viðhalda tengslum sínum við kirkjuna en hafa sett
marga presta mjög úr jafnvægi. A vissan hátt eru þau
svipuð hvítasunnusöfnuðum mótmælenda, sem hafa
staðið fyrir endurnýjun í eigin kirkjum í áratug.
Ekki ætlar VIKAN að leggja neinn dóm á þessa hreyf-
ingu en við höfum fengið 10 kunna Islendinga til að
segja sitt álit á Jesú-byltingunni svokölluðu.
ó. vald.
48. TBL. VIKAN 37