Vikan


Vikan - 02.12.1971, Síða 25

Vikan - 02.12.1971, Síða 25
austur af Færeyjum. Þegar loks golaði, kom hann enn á vestan, en nú ákvað Einar að fara til Þórshafnar og taka matvæli til viðbótar. Þeir slöguðu upp und- ir eyjarnar og tólf tímum eftir að hvessti, grillti I suðurodda Nólseyjar. Þeir fækkuðu segl- um og tóku suðurslag, unz kom- ið var undir Sandey. Þá var lagt yfir og stefna tekin í sundið milli Straumeyjar og Nólseyjar og siglt með bakborðshálsi. Þeir náðu inn í sundið og slöguðu sig áfram inn til Þórshafnar og lögðust þar, yztir skipa. Þótt veðrið væri slæmt, kom von bráðar bátur frá Nólsey mann- aður sjö mönnum. Þar var kom- inn hafnsögumaður og vildi taka Eos inn á höfnina I Þórs- höfn. Einar taldi það varla vog- andi í slíku veðri, einkum þar sem skipið væri þungt í vöfum. Lóðsinn frá Nólsey sagðist nú halda, að hann væri vanur að meðhöndla hvaða skip sem væri og mundi eiga létt með að koma Eos inn. Þeir léttu og settu upp segl. Þeir voru komnir inn und- ir höfnina, þegar skipið neitaði vendingu og sló í baksegl. Gamli Eos fékkst ekki yfir stag hvernig sem að var farið. Með- an á þessu stóð hafði enn hvesst, og þeir urðu að leggjast á ný, en nú nokkru utar en áður. Vegna roksins komust lóðsinn og menn hans ekki til Nólseyj- ar og héldu kyrru fyrir um borð í Eos yfir nóttina. Daginn eftir var veður betra og þeir á Eos fóru í land á skipsbátnum og sóttu vistir. Um kvöldið var akkeri létt og haldið af stað í austan kalda. Öll segl voru sett um og siglt suður með Straums- ey. Einar ákvað að sigla sundið milli Straumseyjar og Sandeyj- ar, og allt gekk vel í fyrstu, en í miðju sundinu lygndi, og nú tók austurfallið skipið og bar það austur fyrir eyjarnar. Lognið hélzt og straumurinn bar Eos fram og aftur um sund- in; inn á milli Sandeyjar og Stóra Dímons og aftur út á haf; inn milli Dímonanna og enn síðar inn á milli Litla Dímons og Suðureyjar. Þar munaði litlu að skipið lenti upp á klettum, en þegar verst leit út rann á suðaustan gola og nú biðu þeir á Eos ekki boðanna; tjölduðu hverju segli, og hættunni var bægt frá. Nú mátti segja, að Eos heí'ði fengið óskabyr. Golu beint á eftir sem óx er frá leið. Brátt var kominn stormur og hann í það hvassasta sem skip og full segl þoldu. En þeir voru orðnir þreyttir á logni og and- byr og létu seglin standa. Á þessari siglingu náði gamli Eos methraða í þessari ferð. Hann loggaði níu mílur á klukku- stund. Þeim skilaði því vel áfram þessi dægrin. Svo lygndi og áður en varði skall á norð- austan hvassviðri. Þeir settu upp stormsegl og slögðu á móti því veðrið var beint í hnífilinn. Loks sáu þeir ísland. Þótt sum- ar væri. var landsýnin kalsaleg. Rokmökkur yfir landinu og kembdi suður af jöklunum. En áfram slagaði Eos og um síðir gekk norðanáttln niður, og þeir lágu einn dag í logni í Eyja- fjallasjónum. Síðan rann á byr, það kaldaði af austri og Einar retti stefnuna vestur um með Stórhöfða á stjórnborða. Aust- anáttin hélzt gegnum húllið og fyrir Reykjanes og Miðnes. Eos slagaði fyrir Garðskaga og inn Bugtina. Og inn á Hafnarfjarð- arhöfn sigldi Eos aðfaranótt 31. ágúst, nákvæmlega 40 sólar- hringum eftir að skipið lagði af stað frá Halmstad. Strax eftir komu skipsins hófst afferming. Megninu af timbrinu var skipað upp í Hafn- arfirði, enda eign Jóhannesar Reykdal. Hálfri annarri viku síðar var skipinu siglt til Reykjavíkur og þar var skipað upp 90 standördum af timbri, sem timburverzlunin Björk átti. Síðan aftur til Hafnarfjarðar, þar sem Eos var settur upp í sand til botnhreinsunar. Þá kom í ljós hvað olli gangtregðu skipsins á heimleiðinni. Neðan á botni þess var auk allskyns sjávargróðurs mikið af stórum skeljum, aðallega krækling. Hafnfirðingar, sem stunduðu róðra, hirtu kræklinginn og hann entist þeim í beitu í lang- an tíma. Margir komu um borð og skoðuðu skipið. Einn danski hásetinn átti hvitar kanínur, sem hann gaf Þórarni syni Jó- hannesar Reykdal. Nokkru eftir þetta var skips- höfnin afskráð og Einar Jónas- son lét þar með af skipsstjórn. Skipinu var lagt við akkeri á Hafnarfjarðarhöfn og unnið við lagfæringar og viðgerðir. Nokkru síðar var nýr skipstjóri ráðinn á Eos. Hann hét Davíð Gíslason, Barðstrendingur að ætt og uppruna. Davíð hafði verið skútumaður frá unglings- aldfi og þaulvanur seglskipa- maður. Hann útskrifaðist úr Stýrimannaskóla íslands 1915. 1. stýrimaður var skráður Björn Árnason frá Móum, 2. stýrimað- ur var Gerhart Poulsen. Hann var danskur að þjóðerni; hafði verið stýrimaður á danskri skútu sem var í Grænlands- siglingum. Er skútan lá úti á Patreksfirði en skipstjórinn í landi og Poulsen stýrimaður á vakt, kom togari og sigldi á skútuna aftanverða og braut hekkið verulega. Togarinn hélt á braut við svo búið, og þar sem skyggni var slæmt náðist hvorki nafn hans né númer. Þetta líkaði skipstjóra svo illa, að hann rak Foulsen í land. Gerhart Poulsen var 24 ára, glæsimenni og afbragðs sjó- maður. Hann átti sextant og kíki og fleiri góða gripi, sem á þeim tímum voru fáséðir. Á heimieiðinni til fslands hafði komið í ljós, að fremsta mastrið í Eos var lélegt. Við nánari athugun kom í Ijós, að undirmastrið var ónýtt. Nú voru góð ráð dýr. Tveir menn sem ráku seglaverkstæði í Reykjavík voru fengnir til og með þeim ungur maður, Óskar S. Ólafsson. Hann hafði undan- farin tvö ár verið á björgunar- skioinu Geir. Nokkru áður hafði seglskipið Ása, eign Duus-verzl- unar, strandað við Miðnes. Stórmastrið úr strandinu var nú fengið og reyndist það vel not- hæft. Meðan á þessari vinnu stóð, voru fleiri menn ráðnir á Eos: Jón S. Ólafsson, Ólafur P. Ólafsson frá Akranesi, Kristján Gíslason og Guðjón Finnboga- son. Hanh var Vestfirðingur og þaulvanur seglskipamaður; hafði verið á skútum og síðar í siglingum með Dönum. Hann var 22 ára. Óskar S. Ólafsson var 20 ára og Sigurður Marías- son, matsveinn frá ísafirði, var 26 ára. Allt voru þetta ungir menn og vaskir. Meðan á bún- aði Eos til siglingar stóð, var stofnað hlutafélag um skipið. Það var stofnað 2. janúar 1920 og bar nafn skipsins. Stjórnar- formaður I félaginu var Lárus Fjelsted, en meðal eigenda voru Geir Thorsteinson, Zimsen og Jóhannes Reykdal, sem sá um rekstur skipsins og var aðal- eigandi. Meðan vinna við Eos fór fram lá skipið útá Hafnarfirði. Þar sem ekki fékkst flutningur í það til útlanda, var ákveðið að taka seglfestu og það þá fært að bryggjunni. Nú var tekið til við að aka hraungrýti úr Hafn- arfjarðarhrauni um borð. Nýja mastrið var komið á sinn stað og reiði var settur upp og strengdur; rár heistar og segl- um slegið undir. Um miðjan janúar 1920 mátti heita, að skipið væri ferðbúið og ákveðið að það sigldi til Halmstad til þess að sækja timburfarm. Mánudaginn 19. janúar var Eos ferðbúinn. Um kl. 17.00 voru landfestar leystar. Vél- bátur hafði verið fenginn til þess að draga skipið út úr höfn- inni. Skipshöfnin var önnum kafin. Hæg norðanátt var á; þægilegur byr í upphafi ferðar. Við baujuna sleppti báturinn dráttartauginni, flest segl voru komin upp og Eos seig nú fyrir hægum byr vestur flóann. Allt gekk vel £ byrjun. Leiðið hélzt fyrir Garðskaga og Reykjanes og skipið fór vel undir. Fengu þeir góðan byr gæti ferðin til Sviþjóðar orðið fljót á léttu skipi og hreinu £ botninn. Mannaíbúðimar voru frammi i Eos, heldur þröngar og gamaldags. Eldhús var á þil- fari aftan við fremsta mastrið. Káeta skipstjóra og stýrimanna var aftur í. Skipið var borðhátt, þar sem aðeins seglfesta var i lestunum. Aftur á var vind- myllán tengd aðallensidælunni. Hún myndi spara mikla vinnu og erfiði. Daginn eftir að þeir .lögðu frá landi, 20 janúar sáu skipverjar á Eos að veðrabrigði voru í vændum. Davíð skin- stjóri lét rifa segl og ganga frá Framhald á bls. 94. 48. TBL. VIKAN 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.