Vikan


Vikan - 02.12.1971, Side 59

Vikan - 02.12.1971, Side 59
þennan afla.“ Bjarni litli herti saman var- irnar og sagði síðan brúna- þungur: „Það er bezt ég reyni að dragast inn eftir. Það er mín skömmin. Það er ég, sem gefst upp .En ekki skulum við gleyma því, Keli, að við erum með fisk í bátnum upp á sjálfsagt fleiri hundruð krónur, svo að mamma fær þó alltaf jólagjöfina, sem við ætluðum henni.“ Þorkell horfði á hann — eins og hálfhissa. Svo Ijómaði and- litið á honum, og hann sagði í fagnaðar- og undrunartón: „Já, auðvitað, og það er þó aðalatriðið, Baddi minn.“ Síðan rétti hann úr sér á þóttunni: „En Baddi, rétt skal vera rétt. Sá maður er ég ekki, að ég skelli allri skuldinni á þig! Ætli við hefðum ekki komizt lang- leiðina inn eftir, ef við hefðum aldl-ei róið neitt, þegar þokan skall yfir?“ Bjami litli starði á hann, og nú komu tár í augun á honum. Svo féll hann að brjósti bróður síns og sagði: „Þessu... þessu skal ég aldrei gleyma þér, Keli minn!“ Þorkell vafði um hann hand- leggjunum, en losaði þá til skiptis og fálmaði upp í augun á sér. Skyndilega lögðu þeir báðir eyrun við og litu inn til eyjar- innar, sem þorpið stóð á. Þar kom vélbátur á fullri ferð, hvít- ur skafl undan stefni og bóg- um. Og nú var það Bjarni litli, sem fleygði sér í fang gleðinnar: „Húrra, húrra! Þá komum við þó inn að bryggju, áður en orð- ið er alveg dimmt og vitaskuld verða allir hreint strákarnir á bryggjunni og fullorðið fólk líka.“ Móðirin saknaði ekki drengj- anna strax og hún kom á fætur. í haust höfðu þeir fengið að flytja í herbergiskompuna inn af eldhúsinu, sváfu þar einir. Hún vildi lofa þeim að sofa sem lengst. Jólafríið í skólanum var byrjað, og hálfsvangir höfðu þeir farið að sofa. Hún varð víst að hafa sig upp í það að fara til kaupfélagsstjórans í dag — eða oddvitans, ef ekki vildi bet- ur til, — og fá bráðabirgðalán fyrir brýnustu nauðsynjum. Þegar leið að hádegi, fór hún inn í herbergi drengjanna. Hún var orðin hissa á því, hve þeir sváfu. Hún greip í tómt. Þegar hún kom aftur fram í eldhúsið, varð henni litið á þilið, hægra megin dyranna. Þar áttu skaut- arnir að hanga. Þeir voru horfn- ir. Hafði hana ekki grunað? Drengirnir höfðu stolizt inn í dal, auðvitað sársvangir, og hvernig mundu þeir svo verða, þegar þeir kæmu út eftir? Hún svitnaði og stundi þungan. Hún yrði að drífa sig í dag — var líklega hreinlegast að fara til oddvitans. Upp úr hádeginu fór hún að undrast um drengina, en þeir höfðu máski hitt drengi frá ein- hverjum bænum inni í dalnum og skotizt heim með þeim. Mat- urinn ... Nei, þetta tjóaði ekki. Hún varð að ná í björg. Og hún rétti úr sér, hleypti brúnum og tók að búa sig upp á, var hrað- hent og harðhent. Hún fór síðan í kápu og snaraðist út. Jakob gamli stóð úti fyrir húsi sínu og hallaðist fram á stafinn. Þau buðu hvort öðru góðan dag, og svo sagði móðir- in:. „Þeir hafa víst þotið á skauta inn í dal, drengirnir mínir.' Þeir hafa farið eldsnemma í morgun, voru að minnsta kosti farnir, þegar ég kom á fætur.“ „Tja, tjú, — og eru ekki komnir enn, skörnin?“ sagði gamli maðurinn. „Nei, ég botna bara ekkert í þessu. Þeir eru ekki vanir að gera þetta.“ Allt í einu varð Jakob gamli skrýtinn á svipinn. Hann gretti sig, hleypti ýmist brúnum eða hóf þær og klóraði sér í skegg- inu. Móðirin kvaddi hann, en hann tók ekki undir við hana. Hún hélt af stað. En gamli mað- urinn kallaði á hana. Síðan sagði hann henni frá því, sem honum og drengjunum hafði farið á milli daginn áður. „Gáðu að því, Gunnu-hræ, hvort færin þeirra -eru ekki horfin." Móðirin þaut heim, fór inn í geymslu og sá, að færi drengj- anna voru þar ekki. Hún flýtti sér út i vog. Þar var enginn bátur. Svo þurfti þá ekki frek- ar vitnanna við. Það var fjöldi manns á bryggjunni, þegar vélbáturinn renndi að henni með kænu bræðranna í togi. Kveikt hafði verið á bryggjuljósunum og bjarmi féll á fiskinn í skut og barka kænunnar ... Og nú töl- uðu margir í einu: Hvað var þetta? Var þetta ekki missýn- ing? Báturinn næstum hlaðinn af fiski þessum líka ljóta fiski.. Konurnar hrópuðu og skelltu á lær, en það var eins og karl- mennirnir væru £ hálfgildings vandræðum með sjálfa sig ... Áttu þeir að trúa þessu, ha? Ja, jú, það hafði stundum komið heimurinn segirjá við hinum logagytitu BENSON and HEDGES hafið þið sagt Já ? 48.TBL. VIKAN 59
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.