Vikan


Vikan - 02.12.1971, Blaðsíða 40

Vikan - 02.12.1971, Blaðsíða 40
FRAMHALDSSAGA KFTIR RONA RANDALL I. HLUTI Helen spurði Charles um þessa gömlu námu við miðdeg- isverðarborðið, en nefndi ekki John á nafn. Ekki svo að skilja að hún héldi að hann tæki það illa upp eða að honum væri eitt- hvað í nöp víð John, en það var samt einhver kuldi á milli þeirra, og, — já, það var óþarfi að geta þess að hún hefði hitt John við námuna. — Jæja, þú hefur fundið gömlu námuna, svaraði Charles hlæjandi. — Það var nú þannig að við héldum að kannski væri kopar í henni og svo var farið að leita, en það bar engan ár- angur og það var fljótlega hætt við það. Ég hefi hugsað mér að fylla upp í námuopið, en það hefur ekki orðið af því ennþá. Það er reyndar furðulegt að þú skildir finna opið, ég hélt að Alan hefði hulið það svo vel, það var hans hugmynd. Honum fannst sóðalegt að hafa þetta svona ófrágengið. Charles var þreytulegur. Hann hafði haft erfiðan dag og þegar hann kom heim, var Penelope geðvond og súr yfir því að hann kom seint heim. Skaplyndi hennar var breyti- legt, ekki síður en veðurhaninn á þakinu og í dag vísaði hann á storm. — Þetta er óætt, hvæsti hún og ýtti diskinum frá sér. — Ég vildi óska að það væri hægt að fá Jessie til að búa til ætilegan mat. Hversvegna gerirðu það þá ekki sjálf, hugsaði Helen og braut heilann um hvað hún tæki sér fyrir hendur á daginn, þar sem hún skipti sér ekki af heimilisstörfunum. Hvað gat hún haft fyrir stafni, þegar hún var ekki í verzlunarferðum til Jersey, eða fór í heimsóknir til eyjanna í nágrenninu? Laum- aðist hún þá upp að Mávakof- anum? Eftir kaffið sagði Helen að hún þyrfti að líta á uppkastið Hvað gat legið á bak við þennan ofboðslega ótta? Sarah og Charlotte voru heilbrigðar stúlkur... Þær hefðu átt að hlæja að öllum gömlum hugmyndum um galdra! Það hlaut að vera einhver ástæða fyrir því að þær urðu svona óttaslegnar. að grein sinni, hún sagðist ekki vera ánægð með það sem hún hafði skrifað, hún þyrfti að breyta því... En ástæðan var sú að hún vildi losna við að tala við Penelope. Charles opnaði fyrir henni dyrnar. — Þú mátt ekki þreyta þig, sagði hann með umhyggjusemi. — Mér finnst þú ættir að fara snemma að hátta í stað þess að vera að rýna í blöðin þín. Hann horfði á hana og það var eitthvað meira en vinátta í svip hans. Penelope tók líka eft- ir þessu, því hún kallaði til þeirra: — Hversvegna kyssirðu hana ekki líka? Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af mér! Ég veit svo- sem hvar ég hef þig... Helen flýtti sér upp stigann. Það var ekkert skrítið að Char- les reyndi að gleyma sér við störf sín daglega, þegar kona hans hagaði sér þannig, hugs- aði hún. Að vísu var Penelope fegurðardís og hún gat verið reglulega aðlaðandi, ef hún vildi það viðhafa, en léti hún hina hliðina snúa út, þá var hún sannarlega ekki lamb að leika sér við og algerlega óút- reiknanleg. Það var farið að hvessa og þegar Helen opnaði gluggann, fuku gluggatjöldin inn í her- bergið og um leið heyrði hún þungar drunur frá hinum enda eyjarinnar, upphaf þess sem í vændum var. Flóðið var líka greinilega á leið inn í Sírenu- gjótuna. Hún lokaði glugganum og óskaði þess innilega að hún hefði verið kyrr niðri. Það var allt betra en að vera ein og hugsa um Alan, þegar þetta óhugnanlega hljóð heyrðist... Hún opnaði dyrnar og var komin að stiganum, og þegar hún nam staðar, heyrði hún há- væra rödd Penelope og lágvært tuldur í Charles. Hún sneri sér við og flýtti sér að loka dyrun- um á eftir sér, miður sín vegna þess að hún hafði heyrt til þeirra og þakklát fyrir það að hún hafði aðeins heyrt nokkur orð. Rétt á eftir heyrði hún að Penelope skellti hurðinni að svefnherbergi sinu. Hún gat ekki sofnað fyrir þessu and- styggilega væli og bókin, sem lá á náttborðinu var fyrir löngu þrautlesin. Það virtist hljótt í húsinu, en hún vildi ekki fara niður til að ná sér í eitthvert lestrarefni, fyrr en hún væri viss um að Charles væri líka kominn í háttinn. Hún beið því þangað til ýlfrið rak hana bók- staflega út úr rúminu, þá fór hún í slopp og læddist hljóðlega fram á stigapallinn. Það var myrkur í anddyrinu og allt var hljótt. Penelope var örugglega í sínu herbergi, Jessie og frænk- ur hennar í sínum vistarverum og Charles ... Charles sat í bókaherberginu, í sófanum fyrir framan arininn, þar sem glóðin var fyrir löngu kulnuð. Hann leit út fyrir að vera mjög einmana, en þegar hann kom auga á hana, ljómaði hann í framan. — Ég gat ekki sofið, svo mér datt í hug að leita að bók til að lesa, sagði 'hún afsakandi. — Ég er sannarlega feginn að þú skyldir koma. Viltu ekki 40 VIKAN 48. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.