Vikan


Vikan - 02.12.1971, Page 47

Vikan - 02.12.1971, Page 47
er spori framar saumavél framtiðarinnar Nýr heimur hefur einnig opnazt ySur meS Singer 720 gerðinni, sem tæknilega hæfir geimferðaöldinni. * Sjálfvirk spólun. * Öruggur teygjusaumur. * Stórt val nýrra nytjasauma. * InnbyggSur sjálf- virkur hnappagatasaumur. * Keðjuspor. Á Singer 720 fáið þér nýja hluti til að sauma sioger 237, hringsaum, 2ja nála sauma, földun með blindsaum og margt fleira. Sölu og sýningarstaðir: Liverpool Laugaveg 20, Domus Laugaveg 91, Gefjunn Iðunn Austurstræti 10, Dráttarvélar Hafnarstræti 23, Rafbúð SlS Ármúla 3 og kaupfélög um land allt. Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp I nýjar: singer 437. •SS « »• an honum hvalbeinshlunna sem lágu þarna í skútanum. Svo tókst þeim þá hæglega að hrinda bátnum fram, því að fjörunni hallaði í flæðarmálið og þeir voru vanir þessu verki, höfðu lag á að hafa hnén þann- ig undir súðinni á bátnum, að þeim tækist að halda aftur af honum, þegar skriðurinn væri kominn á hann, og koma í veg fyrir, að hann dytti á aðra hvora hliðina. Þegar hann var kominn fram í flæðarmálið, báru þeir hlunnana upp í skút- ann, ýttu síðan undan landi og lögðu út árar. Þá er þeir voru komnir út úr vognum, tóku þeir stefnu norðan við tá höfðans, sem skagaði alllangt út í fjörð- inn, spölkorn fyrir utan þorpið. Drengirnir hétu Þorkell og Bjarni og voru Þorsteinssynir. Þorkell var þrettán ára og Bjarni ellefu. Faðir þeirra hafði verið formaður á vélbátnum Trausta, sem hafði verið gerður út þarna úr þorpinu. Hann hafði verið duglegur og aflasæll for- maður og mörgum sinnum lent í vondum veðrum að vetrarlagi, en aldrei hlekkzt á. Svo var það einu sinni á styrjaldarárunum að hann fór á sjó í góðu veðri dag einn í júnímánuði og kom ekki aftur að landi. Veðrið breyttist ekkert, en bátar, sem voru á svipuðum slóðum og Trausti þennan dag, heyrðu geipimikla skothríð, og einn þeirra fann á reki lóðastamp, er var merktur Trausta. í sum- um stöfunum í þessum stampi gat að líta gljáandi kúlnabrot. Þýzkur kafbátur hafði grandað mönnunum með vélbyssuskot- hríð og sökkt Trausta í djúpið. Það var stafalogn, en samt var eins og ískaldur súgur færi um drengina, þar sem þeir reru út á fjörðinn í dökkum skugga fjallsins. Á vinstri hönd þeim reis Höfðinn — eins og svartur haus á hrikastóru dýri, sem lægi þarna fram á lappir sínar, en norðan við leið drengjanna varpaði máninn sindrandi geislabrú á fjörðinn. Bjarni litli leit til Höfðans. Þaðan heyrðist þungur niður. Það var eins og dýrið murraði í svefni. Og Bjarni litli hryllti sig í herðum. „Róðu ekki svona mikið,“ sagði Þorkell fullorðinslega við bróður sinn. „Þú þreytir þig á því. Ég held þetta vinnist hjá okkur, lagsmaður. Við höfum tímann fyrir okkur. Fiskurinn bítur varla fyrr en með birting- unni, ef ég þekki hann rétt.‘“ Og Þorkell spýtti um tönn munnvatni sínu. Svo bætti hann við: „Og það skyldi maður halda!“ Bjarni sagði ekki neitt, og þeir reru þegjandi um hríð. Svo mælti Þorkell með hægð, en auðheyrilega af bældri óró: „Hvað heldurðu nú, maður, að mamma segi?“ „Hún verður vitanlega hrædd en það verður að hafa það.“ „Ja-á, það er þó reynt — þetta,“ sagði Þorkell fullorðins- lega og strauk vettlingstotunni upp af nefbroddinum á sér, eins og hann hafði oft séð verka- mennina gera, þegar þeir hímdu vinnulausir neðan til við bryggjuhúsið og voru að rabba um tíðarfarið og atvinnuleysið. „Mig var eitthvað að dreyma það, áður en ég vaknaði, að ég væri að fljúgast á við stelpu. Svoleiðis á að geta verið fyrir fiskeríi, hefði maður haldið, og ef við kæmum nú með björg, lagsmaður!" Bjarni litli greip andann á lofti og ók sér öllum á þóttunni, en hann þagði sem áður. Nú var svo komið, að slysa- bæturnar, sem mamma hafði fengið, voru þrotnar; mestur hluti þeirra hafði farið til að greiða upp skuldina, sem hvíldi á húsinu, og afgangurinn hafði smáminnkað, unz nú var ekk- ert eftir. Vinna við fisk hafði verið mjög lítil upp á síðkastið, og um þessi íhlaupaverk, sem 48. TBL. VIKAN 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.