Vikan


Vikan - 02.12.1971, Side 60

Vikan - 02.12.1971, Side 60
KriihÉSQMi Hverfisgötu 82 Sími 21175 Nýjar gerðir af skrifborSsstólum FramleiSandi: StáliSjan, Kópavogi fyrir hér áður fyrrum — næst- um í fyrndinni — einmitt í svona tíð, norðangarra, að fisk- ur hlypi á jólaföstunni í fjörð- inn og stanzaði í Höfðadjúpinu. Því var ekki að neita. Móðirin stóð fremst á bryggj- unni, en hún horfði ekki á fisk- inn, en skimaði um þiljurnar á vélbátnum. Kona ýtti við henni og sagði: „Hvað er þetta, Guðrún mín, — ertu ekki glöð? Sérðu ekki, manneskja, fiskinn í bátnum? Hann er barasta hlaðinn, bát- urinn ykkar.“ „En hvar ... hvar eru dreng- irnir mínir?“ sagði móðirin, og það var grátstafur í röddinni. „Þeir eru auðvitað niðri í lúkara — eru að láta sér hlýna. Og sú björg, sú jólabjörg, manneskja! Þetta er uppi á fleiri hundruð krónur, og nú fáum við öll björgí sem um ætti að muna, því að líklega hundast þeir til að fara að róa, karlmannsnefnurnar hérna á Eyrinni, úr því að drengirnir þínir geta sótt hlaðafla út í Höfðadjúpið ... Og þarna koma þeir nú upp, sko, sérðu!“ Drengirnir voru svo þreyttir og stirðir, að það varð að hjálpa þeim upp á bryggjuna og leiða þá heim. En daginn eftir voru þeir hressir, aðeins ofurlítið slæptir og með harðsperrur í handleggjum og fótum. Fiskur- inn seldist fyrir á fjórða hundr- að krónur. Þó að hver bátskel hefði róið um morguninn út í Höfðadjúp, vildu flestir fá sér í soðið af afla drengjanna. Um nónbil kom Jakob gamli rakleitt inn í eldhús til Guð- rúnar, nágrannakonu sinnar, þar sem hún og drengirnir sátu að kaffi og lummum. Hann hafði pinkil undir hendinni. Það sýndi sig, að í pinklinum var gamall áttaviti. „Keli og Baddi, geyin mín!“ sagði gamli maðurinn, skákaði áttavitanum á eldhúsborðið og klóraði sér í skegginu. „Hérna, — þetta eigið þið að eiga frá Jakobi gamla. Hann fylgdi mér lengi á sjónum, sá arna, og er eitt af þessum fáu apparötum, sem oftast er hægt upp á að stóla — með gætni þó. En það dugir hvorki, hræin mín, dugn- aður né framtak, nema maður viti áttirnar og kunni að nota sér þá vitneskju. Það mundi vera eins í lífinu og á sjónum. Ætli ég kenni ykkur ekki á hann með vorinu, garmarnir mínir?“ •& HVAR ER HANN PABBl MINN? Framhald af bls. 35. lega. Þú hefðir aldrei komizt með drenginn að næsta götu- horni. — Hvers vegna þá? spurði gamli maðurinn. — Af því að þú lítur ekki út fyrir að geta verið pabbi litla drengsins, eða afi hans eða vin- ur hans eða nokkur skapaður hlutur. — Ég hef sjálfur átt barn, sagði gamli maðurinn, orðinn óöruggur. — Ég skil, sagði barþjónninn, sumt fólk fær að taka utan um börn og annað fólk fær það ekki. Það er bara svona . Hann tók bjórflösku með sér að borði gamla mannsins og hellti úr henni í tómt glas hans. — Ég býð upp á þennan, sagði hann. Ég hef ráð á að vera vingjarnlegur við gamla menn eins og þig af og til, en þú hefur ekki rétt á að vera vingjarnlegur við lítinn dreng sem á pabba sinn einhvers stað- ar hér i nágrenninu, og situr r.ú efalaust einhvers staðar inni og hellir í sig bjór. SAGA 2 — Ég vil ekki þinn andskot- ans bjór, sagði gamli maðurinn. Þú getur ekki lokað mig inni á þessari djöfuls krá. — Sittu nú hér þangað til pabbi drengsins kemur og sæk- ir hann, síðan geturðu komið þér burtu eins fljótt og þú get- ur. — Ég hafði hugsað mér að fara héðan út núna, sagði gamli maðurinn. Ég þarf ekki að hlusta á fortölur eins eða ann- ars í þessum heimi. Ég held þú myndir ekki tala við mig eins og þú gerir, ef það væri ég sem talaði um fyrir þér. — Allt í lagi, sagði barþjónn- inn. Hann vildi ekki missa alla stjórn á sér, og honum kom til hugar, að kannski gæti hann spjallað þannig við gamla manninn, að hann gleymdi ásetningi sínum að fara heim með drenginn. Þú getur nú vel sagt mér svolítið af sjálfum þér, og kannski ég hætti þá að tala svona til þín. Barþjónninn' varð ánægður, þegar hann sá að gamli maður- inn hellti bjór í glasið. Hann sá þann gamla drekka þriðja hlut- ann úr glasinu, og síðan sagði gamli maðurinn: Framhald á bls. 64. 60 VIKAN 48. TBL
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.