Vikan


Vikan - 13.01.1972, Page 16

Vikan - 13.01.1972, Page 16
í hlíðum Skópus-fjalls, þar sem sér yfir múra Jerúsalem, hafði gifurlegur fólksfjöldi safnazt til að vera við' vígslu hins nýja Hebreaháskóla. Tíu þúsund Gyðingar, frum- herjar sem sveittust blóðinu við að breyta auðnum Pale- stínu í eitthvað sem minnti á landið sem „flaut í mjólk og hunangi", ætluðu að tryllast af fagnaðarlátum er hár og bein- vaxinn maður, klæddur skar- latsskikkju kanslara háskólans í Cambridge, gekk upp á ræðu- þallinn ásamt leiðtogum Gyð- inga. Hrifning samkomufólksins átti sér engin takmörk. „Þarna er hann! Drottinn blessi hann!“ hrópaði .það er það kom auga á manninn, sem það hafði komið til að sjá og hylla. Flestallt fólkið var fátækt. Það var flóttamenn frá Aust- ur-Evrópu, frá Arabalöndun- um, frá Bandaríkjunum, og næstum eins og hægt var ólíkt skarlatsklædda manninum, sem nú varð aðnjótandi hömlu- lausrar tilbeiðslu þess. Þegar þessi heiðursgestur steig fram til að ávarpa sam- komuna, snarþagnaði hún. Ekk- ert heyrðist nema þytur gol- unnar í lundum nýplantaðra trjáa og snörl í einstaka ósnortnum úlfalda. Ekkert ann- að — nema mál ræðumanns. „Minnizt þess,“ sagði hann á vígsludegi þessa nýja háskóla, sem var tákn endurreisnar fornrar men'ningar, „að á myrkustu dögum myrkustu aldanna, þegar vestræn menn- ing' virtist nálega útdauð, sokk- in fyrir áhrif barbara, þá unnu Gyðingar og Arabar saman að því að blása í fyrstu glæðurn- ar, sem lýstu upp það skugga- lega tímabil." ÁKALL. í þessum orðum lá ákall um að forðast þær hættur og árekstra, sem biðu á jöðrum sögusviðsins. Og efalaust jafn- framt grunur um að það kynni að vefjast fyrir mönnum. En þessi dagur 1925 var aðeins dagur gleði og friðar. Og múg- urinn sem síðan raðaði sér meðfram götunum í Tel Avív, konurnar sem grétu og rudd- ust fram til að snerta skikkju- fald hins mikla manns er hann ók hjá i sigurhrósi, ekkert af þessu fólki var á þessu mikla augnabliki í skapi til að horfa fram í timann. Þótt undarlegt kunni að virð- ast var maðurinn, sem fólkið dáði svo gífurlega, næstum eins ólikur því og hugsazt gat. Ekki einungis hafði hann fæðzt á landsetri meðal grænna dala hinnar rauðu, frjóu jarðar í Eystra-Lothian, í Skotlandi, heldur og var móðir hans dótt- ir markgreifans af Salisbury og sjálfur hann kvæntur inn i Cecil-fjölskylduna, einhverja þá voldugustu í Englandi. Und- arlegast af öllu var þó kannski það að maðurinn, sem Gyðing- ar um allan heim nú tilbáðú, var sjálfur kristinn og harð- einlægur í þeirri trú, enda al- inn upp af heittrúaðri, evange- lískri móður. Hann var Arthur Balfour, þingmaður og fyrrverandi for- sætisráðherra, og hafði nú sinnt opinberum málum í nærri hálfa öld. í augum Gyðinga var hanrt hetja. Því að það var Balfour, sem sjö árum fyrir umrædda athöfn hafði, sem þáverandi utanríkisráðherra Bretlands, undirritað fræga yfirlýsingu, sem síðan er við hann kennd. Brezka stjórnin gaf út yfir- lýsingu þessa annan október 1917, og var þar einfaldlega — kannski of einfaldlega — tek- 16 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.