Vikan - 13.01.1972, Blaðsíða 47
Feitustu tvíburar
í heimi
Um allan heim keppist fólk
við að setja met í hinu og þessu
og satt að segja hefur okkur
stundum alveg þótt stórmerki-
legt hvað fólki hefur dottið í
hug. Eru Bandaríkjamenn mjög
gjarnir á, þetta, enda eru þar
engir taldir „alvörumenn“ nema
þeir eigi met í einhverju. Og
mannverurnar hér á myndinni
eiga met. Þeir eru feitustu tví-
burar í heimi og eftir að hafa
séð myndina vonar maður heitt
og innilega að þeir eigi metið,
en ekki einhver annar. Annars
heita þeir Bill og Ben cCrary
og búa í Henderson í Norður-
Karólínu. Bill er til vinstri og
er 288 kíló og Ben er 252, en
samtals eru þeir rúmlega hálft
tonn. Sem betur fer eru þeir
ekki giftir.
Rolls Royce
fyrir 12.000 krónur
íslendingar hafa hingað til
ekki getað eignast Rolls Royce,
aðallega vegna þess að verk-
smiðjurnar vilja ekki selja hing-
að bíla, en nú ætti að vera að
leysast úr þeim vanda. Nú ættu
langflestir að geta eignast Rolls,
en að vísu er hann ekki nema
eftirmynd og er hlutfallið 1:18.
Eftirlíkingar þær sem nú er
verið að selja (og auðvitað
renna þær út) eru Rolls árgerð
1932, og er bíllinn samansettur
úr 2000 hlutum. Verðið er að-
ein 12000 krónur íslenzkar og
ætti hver meðalskussi að geta
sett bílinn saman. Þá er einnig
hægt að fá bílinn samansettan
á maghoníborði með spegli —
svo hægt sé að skoða undir-
vagninn — en þá kostar hann
aðeins meira, eða rétt rúm
32.000.
§ * *
Ólympíuljósiö
M.örgum Reykvíkingum
þykja ljósin á Melavellinum
nógu sterk, en í samanburði við
ljósin sem núverið voru sett
upp á Ólympíusvæðinu í Miin-
chen og eiga þeir að vera miklu
betri en þeir sem áður hafa
verið notaðir víða um heim;
m.a. á ,,dagsbirtan“ sem þeir
gefa frá sér að vera mun eðli-
legri.
Tvífari forsetans
Vestur í Ameríku heitir for-
setinn Richard Milhouse Nixon.
Þar býr einnig maður að nafni
Richard M. Dixon og er sá svo
líkur forsetanum, að tíðindum
þykir gegna. Dixon er leikari
og var skírður James La Ros,
en nú hefur hann látið breyta
nafni sínu og treður upp í
klúbbum, sjónvarpi og á kabar-
ettum og þar hermir hann eftir
forsetanum.
Á göt'um úti er hann stöðvað-
ur hvað eftir annað til að gefa
fólki eiginhandaráritanir og
sagan segir að ekki alls fyrir
löngu hafi Henry Kissinger, að-
alráðgjafi Nixons, skipað Dixon
að fara og kaupa fyrir sig
vindla ... En það er varla satt.
• Um fimm mánaða skeið
hefur verið borað eftir olíu
víðs vegar á Skáni, en ekkert
komið í leitimar enn. En Sví-
ar eru ekki á því að gefast upp,
og benda á að lengur hafi Norð-
menn mátt leita, áður en þeir
fundu nokkurn olíuvott í sínum
parti af Norðursjónum.
☆
• Bandaríkin hyggjast nú
taka upp metrakerfið á næstu
tíu árum, og er talið að sú
breyting muni kosta tvö- til
fjögurþúsund milljarða króna.
☆
2. TBL. VIKAN 47