Vikan - 13.01.1972, Blaðsíða 19
meistari í 50 km skíðagöngu í
St. Moritz 1948, auk fjölmargra
annarra sigra, sem of langt yrði
upp að telja.
Verðlaunin, sem Mora-Nisse
hlaut á sinum langa og við-
burðarríka keppnisferli skipta
mörgum hundruðum. En sé
hann spurður um, hver þeirra
honum þykir vænst um, verður
svarið ávallt hið sama. Hann
bendir á einn minnsta pening-
inn í safninu, sem hann hlaut
1944, er hann sigraði í öllum
þremur vegalengdum sænska
meistaramótsins í skíðagöngu,
en slíkt hafði aldrei gerzt áður.
Þá bendir hann á verðlaunin
fyrir Vasagönguna 1945 og loks
á olympísku verðlaunin. Mora-
Nisse handleikur litla verð-
launapeninginn, sem hann fékk
sem heiðursverðlaun á SM i
Boden 1944. Þessir peningur
minnir á mesta afrek, sem unn-
ið hefur verið i sænskri skíð,a-
göngu. Mora-Nisse sigraði á
öllum vegalengdum, eins og áð-
ur sagði og hafði auk þess bezta
millitíma í boðgöngunni.
Keppnin í skíðagöngunni var
geysihörð, og menn skulu minn-
ast þess, að áður en Mora-Nisse
vann þessi glæstu afrek, hafði
það aðeins komið fyrir þríveg-
is, að einn og sami maðurinn
sigraði á tveimur vegalengdum.
Það var 1926, þegar Hedlund
sigraði i 20 og 60 km göngu, og
1940 og 41, er Dahlquist var
meistari í 15 og 30 km göngu.
Mora-Nisse „sló í gegn“ sem
göngumaður á alþjóðamæli -
kvarða 1943 og hafði þá nærri
unnið sigur á öllum vegalengd-
um SM. Hann sigraði í 30 og
50 km göngu og var aðeins 17
sekúndur frá sigrinum í 15 km
göngu, í þeirri grein sigraði Nils
Persson, mjög sterkur göngu-
maður, sem síðar varð olympíu-
meistari. Mora-Nisse var ótrú-
lega óheppinn í 15 km göng-
unni. Þegar hann lagði af stað
var blautt og þungt færi, en er
Persson var ræstur skömmu
siðar fór að frjósa og hann fékk
skotfæri, eins og sagt er.
Og svo kom árið 1944, en þá
gerðist það ótrúlega. Mora-
Nisse sigraði á öllum vega-
lengdum. Ýmsir yppta e.t.v.
öxlum og finnst ekki eins mikið
til um þetta afrek og það raun-
verulega er. En í skíðagöngu
kemur margt til greina (og það
er ekki ávallt sá bezti sem
sigrar). Rásnúmer skiptir veru-
legu máli, stundum kemur það
fyrir, að keppendur falla, og þá
verður sá, sem næstur kemur
að stökkva út úr brautinni, en
slíkt tefur að sjálfsögðu. Þýð-
ingarmesta atriðið fyrir göngu-
manninn, er samt áburðurinn,
hann getur algerlega skipt
sköpum í keppninni. í langri
göngu er þetta sérstaklega þýð-
ingarmikið, því að veður getur
stundum breytzt meðan gangan
stendur yfir. Skíðagöngumaður
verður eiginlega að vera brot
af veðurfræðingi. Þar sem
göngubraut er mishæðótt, getur
verið mjög vandasamt að nota
rétta áburðinn, á ákveðnum
blettum er sólbráð, en annars-
staðar nær sólin ekki að hella
geislum sínum og þá er göng-
manni vandi á höndum. Allt
þetta og ýmislegt fleira gerir
skíðagöngu erfiðari en flestar
íþróttagreinar aðrar, mikill
göngumaður getur aldrei geng-
ið að vísum sigri.
En nú skulum við snúa okk-
ur að sænska meistaramótinu
í Boden 1944. Göngubrautirnar
þar eru miög erfiðar, landslag
er mishæðótt, veður var einnig
varhugavert fyrir göngukapp-
ana er keppnin fór fram, kalt á
morgnanna, hálfgerð hláka um
miðjan daginn með mikilli sól.
Það var vandasamt að nota rétt-
an áburð og meðhöndla hann
skynsamlega.
Þrátt fyrir alla þá erfiðleika,
sem hér hafa verið nefndir, var
enginn í vafa um það, að Nils
Karlsson eða Mora-Nisse myndi
sigra á öllum vegalengdum og
það gerði hann svo sannarlega
og sigrar hans héngu ekki á
neinum bláþræði og til gamans
nefnum við tímamuninn á hon-
um og næsta manni. í 15 km
göngunni var Sjödin næstur,
t’mamunur 1 mínúta og 20 sek-
úndur í 30 km göngu var
Lundmark annar, tímamunur 3
mmútur og 13 sekúndur. f 50
km göngunni var Gösta Karls-
son annar, tímamunur 7 mín-
útur og 6 sekúndur og í boð-
göngunni hlaut Östensson næst-
bezta tímanna, 38 sekúndum
’akari on tími Mora-Nisse, sem
var sá bezti. f boðgöngu gengur
hver keonandi 10 km. Hugsan-
’pc* er, að einhver vinni svipað
afrek síðar, en hæDÍð er að
nokkur hafi slíka yfirburði og
Framhald á hls. 40.
Skærasta stjarna skíðaíþróttarinn-
ar í SvíþjóS, Mora-Nisse Karlsson,
kemur aS marki sem sigurvegari
í 5 mílna göngunni á Olympíuí
leikunum í St. Moritz.