Vikan


Vikan - 13.01.1972, Blaðsíða 22

Vikan - 13.01.1972, Blaðsíða 22
AKNGRIMUR SIGURÐSSON OG SKULI JON SIGURÐARSON RITA UM FLUGVÉLAR Ljósm.: Skúli Jón Sigurðarson. BRANTLEY 305, TF-DIV Þetta er eina þyrlan okkar íslendinga í dag. Andri Ö Heiðberg kafari og þúsundþjalasmiður keypti hana til landsins árið 1966, en þá hafði Andri drifið sig til Texas og lært að fljúga þyrlu. Annars er Andri enginn byrjandi, því hann lærði flug árið 1946. Þessi þyrlutegund er teiknuð af N. O. Brantley, sem teikn- aði sína fyrstu þyrlu árið 1946, en þetta er fyrsta gerðin, sem nær útbreiðslu. Andri hefur flogið vél sinni undan- farin sumur fyrir Orkumálastofnunina og leyst af hendi alls konar verkefni við góðan orðstír; flutt menn og tæki fjallatinda milli. Þyrlan tekur 4 farþega, auk flugmanns, og flughraði hennar er 170—180 km/klst. Hún er rauð og hvít. Myndin sem hér er af þyrlunni er tekin þegar Andri er að lenda á fjallstindi sunnan við Hofsjökul. annað fólk, eins og þetta kæmi henni ekki við. En svo fann hún blóðbragð, bragð af sínu eigin blóði. Það gat ekki verið að hennar eigin varir hefðu verið kysstar svona hrottalega. Það gat ekki verið hennar eigin líkami sem varð fyrir þessum frekjuiegu faðm- lögum... Síminn hringdi. Hann leit upp og hló framan í hana. — Hver skyldi vera að hringja? Ætlar þú ekki að reyna að gizka á það? Ég þori að veðja að það er hann... að það er hann... Hann hló, æðislegum hlátri, meðan hringingin stóð yfir. Þegar síminn þagnaði, þagnaði hann líka. — Jæja, stúlka mín? sagði Kollok háðslega. — Hvernig kanntu við kossa mína? Ósjálfrátt fór hún að skjálfa og hún sá ánægjuglampa í aug- um hans. Hann var sýnilega ofsaglaður; hann lék sér að henni, eins og köttur að mús. Og eins og kötturinn, myndi hann drepa hana að lokum, bæði hana og börnin. Þetta var leikur fyrir honum. — Þú ert hrædd, sagði hann. — Ertu í rauninni hrædd við mig? Finnst þér ekki gott að kyssa mig? Hann rak andlitið beint fram- an í hana og horfði fast í augu hennar. Hún fann fyrir andar- drætti hans og fylltist ofboðs- legri skelfingu. — Jæja, hvað segir þú svo? Svaraðu mér. Ertu hrædd við mig? Hún gat ekki komið upp nokkru orði og henni var ljóst að hann vissi það. — Hvað er að þér. Hefur t.ungan verið skorin úr þér, eins og skottið af Tiddli? sagði hann grimmdarlega. Henni var ljóst að hann vissi allt um hana, að hann gat lesið hana eins og opna bók. Án þess að hugsa, gat hún kreist fram einhver orð, en var- ir hennar voru stirðar af hræðslu. — Ég er ekki hrædd, aðeins undrandi... Ég er undr- andi yfir kossum þínum... Þetta kom allt svo óvænt... Hann hló, lengi og hjartan- lega, eins og að hann hefði gaman að því að hún skyldi líta svona raunveruléga á þetta. — Ég verð svo sannarlega að viðurkenna, alpablóm, að þú hefur skemmtilega kímnigáfu. Já. það má nú segja ... Hún varð ofsareið. Andartak vék hræðslan fyrir reiðinni. Það var hætta á að hann myrti hana, en hún þoldi samt ekki að hann gerði gys að henni... Hún ætlaði að segja eitthvað í reiði sinni, en áður en hún kom upp nokkru hljóði, var hann búinn að grípa um kverk- ar hennar. Hann þrýsti fast að, fastar .. . fastar. Hún barðist á móti í örvæntingu sinni. En hann var alltof sterkur, hún hafði ekki einu sinni þrek til að hljóða eða kalla á hjálp ... Og til hvers var það? Það gat enginn heyrt til hennar nema börnin; enginn gat hjálpað henni... Nú hafði hún aðeins loft í lungunum til nokkurra sekúndna ... eftir nokkrar sek- úndur gæfi hún upp öndina ... Þegar hún fann að öll við- leitni var til einskis, slakaði hún á, hætti að strita á móti. Hún fann dauðann nálgast og varð máttlaus. Hann losaði takið og hvíslaði blíðlega: —• Svona nú, stúlka mín. Það þýðir ekki að standa uppi í hárinu á mér. Það finn- urðu sjálf. Nú ertu orðin eftir- lát og góð. Svona nú ... svona nú ... En hún heyrði aðeins ó- Ijóst til hans. Það suðaði fyrir eyrum henn- ar og hana verkjaði í brjóstið. En svo heyrði hún að hann var að tala við hana. Hún opnaði augun. Augu hans voru dökk og svipur hans ákafur. Hann kraup á kné við sófann og brosti ánægjulega, það leit út fyrir að hann væri ánægður með sjálfan sig. — Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Þú ert heimskari en ég hélt þú værir, alpablóm, sagði hann svo. Það var hlátur í rödd hans: — Hvað segir þú um að sænga hjá mér — í breiða rúm- inu uppi á lofti? Við verðum að vera úthvíld á morgun. Því á morgun rennur upp sá mikli dagur. Við skulum bæði sofa í tvíbreiða rúminu, rúmi læknis- hjónanna... Hann hló ennþá. Hún leitaði í huga sér eftir einhverju, sem hún átti að vita, en gat ekki munað það... Meðan hún var að skoða hug sinn, hringdi sím- inn aftur. — Þetta er örugglega frú Hannah, sagði hún fljótt. — Nú verð ég að svara, annars verður hún skelkuð. Hún heldur að eitthvað sé að og flýgur þá heim á morgun. — Og við kærum okkur ekki um það. Við höfum ekki lokið ætlunarverki okkar. Þá er það í lagi, taktu þá símann. En gættu þess vel hvað þú segir. — Að sjálfsögðu. — Mundu að ég stend við hlið þér, svo það er eins gott fyrir þig að haga orðum þínum rétt. — Halló! sagði hún í símann og barðist í örvæntingu við að vera róleg. Henni var fullkomlega ljóst að þetta var eina tækifæri sem bauðst til hjálpar, hún varð að nota það. En hvernig átti hún að koma frú Hannah í skilning um að hún og börnin væru í hættu, þegar Kollok hlustaði á hana? —• Er það Heidi? spurði frú Hannah og það mátti heyra á rödd hennar að hún var fegin. Sambandið var slæmt — rödd frú Hannah var fjarlæg og dauf en einmitt það varð til þess að Heidi datt nokkuð í hug . — Já, þetta er Heidi, svaraði hún, — hvern tala ég við? Hún brosti til Kolloks. — Heidi, þekkir þú ekki rödd Fra.mha.ld á bls. 43. 22 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.