Vikan


Vikan - 13.01.1972, Side 36

Vikan - 13.01.1972, Side 36
blaðra eða bóla sem ekki var. svo gott að losna við. Ég er dálítið hryggur yfir endalok- um Colosseum. Við áttum sam- an ánægjuleg þrjú ár. Steve Marriott átti varla orð til að lýsa ánægju sinni yfir þessum málalokum og kvað Clempson akkúrat manninn sem þeir hefðu verið í þörf fyrir. Og nú er okkar að bíða eftir útkomunni, en nú er hið nýja Humble Pie á leið í stúdíóin til að vinna að nýrri LP-plötu. ☆ SKARPSKYGGNl Framhald af bls. 9. þoli ekki að sjá blóð — svo að það hefur víst liðið yfir mig. Fólkið í bifreiðinni hélt víst, að ég væri að deyja eða því líkt. Það hætti strax að gera við bílinn, sem hafði bilað smá- vegis og ætlaði að aka mér í sjúkrahúsið. Þegar ég raknaði við, vorum. við næstum komin hingað að skálanum svó að ég fór út og gekk hingað. É'g hélt ekki, að þú yrðir hræddur. En til vonar og vara sendi ég eft- ir þér.“ ☆ PRENTNEMINN SEM VARÐ RITSTJÖRI Framhald af bls. 13. hamingjuóskir. Háskólar keppt- ust við að heiðra hann. Hann var meira að segja kjörinn fé- lagi í hinu konunglega brezka visindafélagi — af þeim sömu mönnum, sem hlegið höfðu að kenningu hans, er þeir heyrðu hana fyrst. „Heimspekingur rafmagns- ins var orðinn einn af fræg- ustu mönnum heims. Benjamín Franklin fæddist í Milk Street í Boston, 17. janú- ar árið 1706. Hann var yngsti sonur Jósía Franklins, sem var sápugerðarmaður og kerta- steypari að atvinnu og sautján barna faðir. Hann kvæntist ungur og bjó til 25 ára aldurs í Banbury í Oxfordshire í Eng- landi. Árið 1683 hélt hann yfir hafið ásamt konu sinni og þremur börnum — til fyrir- heitna landsins, Nýja-Englands í Vesturheimi. Orsök fararinn- ar voru trúarofsóknir. Jósía var fríkirkjumaður, en sam- komur safnaðarins höfðu ver- ið bannaðar. Þetta varð þess valdandi, að nokkrir málsmet- andi menn ákváðu að flytjast búferlum vestur til að geta notið fulls frelsis í trúmálum. Jósia eignaðist fjögur börn þar vestra með konu sinni, en hún lézt eftir aðeins sex ára dvöl í nýja heiminum. Jósía kvæntist þegar aftur, og var síðari kona hans Abía Folger, dóttir eins af fyrstu landnámsmönnum Nýja-Englands. Með henni eignaðist hann tíu börn, og var Benjamín Franklin yngsti son- urinn, en fimmtánda barnið í röðinni. Benjamín Franklin lét sér annt um sögu forfeðra sinna og frænda og tókst að safna saman ýmsum fróðleik um ætt sína. Hann komst meðal ann- ars að raun um, að fjölskylda hans hafði lifað í 300 ár í sama sveitaþorpinu, Ecton í North- amptonshire, allt frá því að fjölskyldan tók upp ættarnafn- ið Franklin. Við rannsókn á kirkjubókum í Ecton veitti hann því eftirtekt, að hann var yngsti sonur yngsta sonar í fimm ættliðum. Synir Jósía Franklins voru látnir læra sína iðnina hver. Það hafði verið venja, að elzti sonurinn lærði járnsmíði og Jósía rauf ekki þá ævagömlu hefð. Hins vegar var yngsti sonurinn settur í skóla, þegar hann var átt ára. Benjamín Franklin segir svo í sjálfsævi- sögu sinni: „Faðir minn hugð- ist greiða mig sem eins konar sonartíund til kirkjunnar og láta mig læra til prests. Eg hafði verið fljótur að læra að lesa, svo fljótur, að ég man ekki eftir mér ólæsum. Og all- ir vinir föður míris hvöttu hann til þessa og héldu, að mér munjji ganga námið vel.“ En Jósía átti fullt í fangi með að sjá sér og sinni stóru fjöl- skyldu farborða. Hann treysti sér því ekki til að kosta yngsta son sinn til mennta, enda báru lærðir menn lítið úr býtum á þessum tíma. Benjamín Frank- lin var því tekinn úr latínu- skólanum og settur í annan skóla, þar sem hann lærði skrift og reikning. Þegar Franklin var tiu ára, tók faðir hans hann úr skólanum og lét hann hjálpa sér við störf sín, kertasteypu og sápugerð. Tveggja vetra barnaskólanám varð því öll sú skólaganga, sem Benjamín Franklin naut. Hon- um var nú fengið það starf að sníða rök í kerti. láta brædda tólg i strokk og kertamót, vera í sendiferðum og fleira þess háttar. Honum féll starfið af- ar illa og hótaði föður sínum að strjúka að heiman og ger- ast sjómaður. Til þess mátti Jósía ekki hugsa. Einn sona hans hafði þegar strokið á sjó- inn og þess vegna tók hann nú að ganga með yngsta syni sín- um til húsgagnasmiða, múrara, rennismiða, koparsmiða og fleiri handveí'ksmanna, þar sem þeir voru við vinnu sína, og reyndi þannig að komast að raun um, hvaða starf væri Benjamín Franklin helzt að skapi. Árangur þessara rann- sóknarferða varð sá, að Benja- mín var látinn læra hnífasmíði hjá frænda sínum. En Jósía féll illa, að frændinn krafðist borgunar fyrir kennsluna, svo að hann lét son sinn hætta náminu eftir skamman tíma. Benjamín Franklin eyddi öllum frístundum sínum í lest- ur og sjálfsnám. Hann las all- ar bækur, sem hann náði í og þeim fáu aurum sem hann eignaðist varði hann til bóka- kaupa. Þessi lestrarfýsn hans varð að lokum til þess, að fað- ir hans ákvað að hann skyldi verða prentari. Einn af sonum hans, James, hafði þegar lært þá iðn. Hann kom frá Englandi árið 1717 með letur og prent- vél og setti upp prentsmiðju í Boston. Tólf ára gamall hefur Benjamín Franklin prentnám. Fyrir áeggjan föður þeirra gerðu þeir bræðurnir með sér fastan kennslusamning. Sam- kvæmt honum átti Benjamín að vinna hjá bróður sínum, þar til hann væri tuttugu og eins árs. Fyrir síðasta árið átti hann að fá sveinskaup, en öll hin árin ekkert. Benjamín náði á skömmum tíma tökum á prent listinni og varð brátt hægri hönd bróður síns. Benjamín Franklin mat föð- ur sinn mikils og minnist hans með fögrum orðum í ævisögu sinni. Hann lýsir honum þann- ig: „Hann hafði ágætt limalag, var meðalmaður á vöxt, bar sig vel og var mjög sterkur. Hann var hugvitsmaður, teiknaði vel, bar gott skynbragð á tónlist og hafði skæra, viðkunnanlega rödd. Þegar hann lék sálmalög á fiðlu og söng með, eins og hann gerði stundum á kvöld- in. þegar dagsverkinu var lok- ið, þá var unun á að hlýða. Hann var einnig hagleiksmað- ur og gat leikið sér að tólum annarra iðnaðarmanna, ef tæki- færi bauðst . . . Oft komu beztu menn til hans og leituðu ráða hjá honum í málefnum borgar- innar eða þeirrar kirkjudeild- ar, sem hann var í. Þá leituðu einstaklingar ráða hans, er ein- hvern vanda bar að höndum, og oft var hann kosinn gerðar- maður í deilum manna.“ Benjamín Franklin minnist þess ekki, að foreldrum hans yrði misdægurt, fyrr en þau lögðust banaleguna. Móðir hans lagði til að mynda öll börnin sín tíu á brjóst. Þau náðu bæði háum aldri. Hann lézt árið 1744, 89 ára gamall, en hún 1752, 85 ára að aldri. Þau voru grafin hlið við hlið í Boston. Löngu síðar lét hinn frægi son- ur þeirra setja svohljóðandi grafskrift á leiðið: „Jósía Franklin og Abía kona hans eru greftruð hér. Þau lifðu saman í ástríkum hjúskap fimmtíu og fimm ár. Þau ólu önn fyrir stórri fjölskyldu og komu sómasamlega á legg þrettán börnum og sjö barna- börnum með stöðugu erfiði og iðjusemi, er guð blessaði þeim. og áttu þó hvorki jarðeignir né voru í arðvænlegri stöðu. Dæmi þeirra veri þér, er þetta lest, hvöt til að stunda köllun þína með árvekni og treysta forsjóninni. Hann var guð- hræddur og vitur maður, hún grandvör og dyggðug kona. Yngsti sonur þeirra reisti þenn- an stein af sonarlegri ræktar- semi við minningu þeirra.“ Árið 1721 réðist James Franklin í það stórvirki að hefja útgáfu blaðs. Það hét „fréttablað Nýja Englands" og var annað blaðið, sem gefið var út í Ameríku. Eina blaðið, sem komið var á undan því, hét „Fréttabréf frá Boston". Allir, sem James sagði frá þessari ráðagerð sinni, hristu höfuðið tortryggnir og réðu honum ein- dregið frá að framkvæma hug- myndina. Þeir voru sannfærð- ir um, að blaðið mundi aldrei bera sig. Eitt blað væri kapp- nóg fyrir Ameríku. En James sinnti engu úrtölum annarra. Hann stofnaði sitt blað og lét Benjamín bera það út til kaup- endanna. Blaðið hlaut þegar hinar beztu móttökur, og ekki leið á löngu þar til gáfumenn og ritsnillingar • tóku að ving- ast við nýja blaðaútgefandann og sóttust eftir að fá að skrifa í blaðið. Þessir menn urðu nú tíðir gestir í prentsmiðjunni. Benjamín stóð jafnah álengdar og hlustaði með andakt á sam- töl þeirra og frásagnir. Hann eyddi sjálfur öllum tómstund- um sínum í að glíma við skrift- ir og yrkingar. Með sjálfsaga og eljusemi hafði honum þeg- ar tekizt að tileinka sér sér- stæðan kímnistíl, þótt hann væri ekki nema sextán ára 36 VIKAN 2. TBL. Equatone snyrtivörur Húðsnyrting er undirstaða allrar snyrtingar. Ef húð yðar er þurr, normal eða feit þarfnizt þér daglegrar húð- snyrtingar, annaðhvort til að viðhalda húðinni eða lag- færa hana. Ef þér notið EQUATONE frá COTY reglulega hjálpar það yður til að viðhalda og varð- veita húð yðar. Athugið á töflunni til hægri hvað hæfir húð yðar, og snúið yður til næstu snyrtivöruverzlunar sem selur Coty. Coty fæst aðeins í helztu snyrtivöruverzlunum. HÚÐGERÐ MORGUNSNYRTING KVÖLDSNYRTING NÆTURSNYRTING SÉRSTÖK MEÐFERÐ NORMAL Ijlreinsun: Foaming Cleanser Andlitsvatn: Balancing Freshener Krem: Moisture Equaliser Hreinsun: Fácial /Cleansing Milk Andlitsvatn: Balancing Freshener Notið til skiptis Moisture Multiplier og -Enriched Night Treatment. Notið alltaf Overnight Eye Creme Notið einu sinni eða tvisvar í viku Tone Up Moisture Mask. FEIT Hreinsum Foaming Cleanser Andlitsvatn: Ðalancing Toner Krem: Moisture Equaliser Hreinsun: Foaming Cleanser Andlitsvatn: Balancing Toner Moisture Equaliser, einkan- lega á háls og kinnar. Notið alltaf Overnight Eye Creme Notið Tone-up Moisture Mask a. m. k. þrisvar í viku. Ef húðin er mjög þurr skal nota það daglega. ÞURR Hreinsun: Facial Cleansing Milk Andlitsvatn: Balancing Freshener Krem: Moisture Multiplier Hreinsun: Deep Cleansing Oil eða Facial Cleansing Milk Andlitsvatn: Balancing Freshener Notið alltaf Enriched Night Treathent og Overnight Eye Creme Notið Tone-up Moisture Mask einu sinni í viku. FEIT Á NORMAL Hreinsun: Foaming Cleanser Andlitsvatn: Balancing Freshener Krem: Moisture Equaliser Hreinsun: Foaming Cleanser Andiitsvatn: Balancing Freshener Notið alltaf Moisture Equaliser og Overngiht Eye Creme Notið Tone-up Moisture Mask tvisvar í viku — sér- staklega á feita húð- bletti. LÍTIÐ EITT FEIT Á ÞURRI HÚÐ ♦ Hreinsun: Foaming Cleanser Andlitsvatn: Balancing Freshener Krem: Moisture Equaliser Hreinsun: Facial Cleansing Milk Andlitsvatn: Balancing Freshener Notið til skiptis Moisture Multiplier og Enriched Night Treatment á þurra húðbletti. Notið alltaf Overnight Eye Creme Notið Tone-up Moisture Mask einu sinni eða tvisvar í viku ÞURR HÚÐ Á ÞURRI HÚÐ Hreinsun: Facial Cleansing Milk Andlitsvatn: Balancing Freshener Krem: Moisture Multiplier Hreinsun: Deep Cleansing Oil Andlitsvatn: Balancing Freshener Notið alltaf Enriched Night Treatment og Overnight Eye Creme Notið Tone-up Moisture Mask vikulega. MJÖG ÞURR HÚÐ Á ÞURRI HÚÐ Hreinsun: Deep Cleansing Oil Andlitsvatn: Balancing Freshener Krem: Moisture Multiplier eða Enriched Night Cream Hreinsun: Deep Cleansing Oil Andlitsvatn: Balancing Fresher.er í rakan bómullarhnoðra Notið mikið af Enriched Night Treatment. Berið á tvisvar með stuttu millibili. Notið alltaf Overni^ht Eye Creme Notið Tone-up Moisture Mask 10. hvern dag. Notið alltaf „TOTALLY SOFT BODY LOTION" til líkamssnyrtingar gamall. í dagdraumum sínúm gældi hann við þá hugmynd, að hann fengi sjálfur að skrifa eitthvað í blaðið, — eitthvað sem vekti verulega athygli. En hann var sannfærður um, að James mundi aldrei birta rit- smíð eftir yngri bróður sinn. Hann leit ætíð á sig sem kenn- ara hans og húsbónda og ætl- aðist til að Benjamín ynni sín störf sem óskyldur væri. Eitt sinn ákvað Benjamin að leika eilítið á bróður sinn. Hann skrifaði grein, breytti rithönd sinni, merkti hana með dulnefni og stakk henni loks undir útidyrahurð prentsmiðj- unnar seint um kvöld. Hér var um að ræða skopgrein, þar sem úði og gráði af beinskeyttum athugasemdum um siðgæði og venjur íbúanna í Boston. Grein- in fannst morguninn eftir og Benjamín átti fullt í fangi með að leyna gleði sinni, þegar hann sá bróður sinn hampa grein- inni og lesa hana upphátt fyrir vini sína. Þeir veltu því mjög fyrir sér, hver höfundurinn gæti verið. Benjamín var ekki svo lítið upp með sér, þegar hann heyrði, að allir þeir sem gizkað var á, voru lærðir menn og snjallir. Greinin birtist í blaðinu og síðan þrettán grein- ar til viðbótar af svipuðum toga. Benjamín varðveitti vel leyndardóminn, en loks stóðst hann ekki lengur mátið og sagði frá öllu saman. Hann varð þegar, var við, að vinir bróður hans tóku nú að beina athygli sinni að prentneman- um og meta hann meira en áð- ur. Þetta féll James afar illa. Varð þetta upphaf að ósam- komulagi milli þeirra bræðra; stöðugum illdeilum, sem oft enduðu með því að James lagði hendur á bróður sinn. Eitt sinn birtist í blaðinu harðorð ádeilugrein um stjórn- mál sem þingið tók óstinnt upp. James var tekinn fastur og dæmdur til fangelsisvistar í mánaðartíma. Benjamín var einnig handtekinn og yfir- heyrður, en slapp með áminn- ingu. Það kom i hlut Benja- míns að annast útgáfu blaðs- ins, á meðan bróðir hans var í fangelsinu. Hann notaði þetta tækifæri óspart, lét gamminn geysa og skrifaði nú undir fullu nafni. Flestum bar saman um, að þessi ungi maður væri óvenju efnilegur, en mörgum þótti hann um of skömmóttur og hæðinn, og litu hann horn- auga af þeim sökum. Þegar James var leystur úr haldi, var honum fengin í hendur skipun frá þinginu þess efnis, að hann mætti ekki framvegis gefa út Fréttablað Nýja-Englands. James og vinir hans skutu á ráðstefnu i prentsmiðjunni til að ræða um, hvað gera skyldi. Sumir vildu breyta nafni blaðsins, en loks varð samþykkt, að Benjamín Frank- lin skyldi heita útgefandi þess framvegis. En til þess að þing- ið gæti ekki fett fingur út í, að James gæfi áfram út blaðið, en léti aðeins námssvein sinn vera útgefanda þéss að nafn- inu til, voru gömlu námssamn- ingarnir látnir falla úr gildi. í staðinn gerði James nýjan samning við bróður sinn, sem skyldi skoðast einkamál þeirra. Þetta fyrirkomulag var laust í reipunum, en hélzt þó í marga mánuði. Loks risu þó nýjar deilur milli bræðranna. Benja- mín undi illa ófrelsinu og vildi brjótast undan handarjaðri bróður síns. Hann færði sér í nyt þá erfiðu aðstöðu, sem James var í, til að knýja fram betri aðstöðu og aukið frelsi sér til handa. „Ég tel þennan ódrengskap minn eina af fyrstu yfirsjónum mínum,“ skrifar hann í ævisögu sinni. „Ég hef ef til vill verið helzt til ögr- andi og ósvífinn.“ Þeir bræður skildu ósáttir. Benjamín Franklin fór að heiman og hélt til Fíladelfíu, en þá stóð sú borg með mest- um blóma í Ameríku. Hann var aðeins sautján ára gamall og hélt af stað út í hina stóru veröld til að standa á eigin fótum. Hann var gæddur hugrekki hins hrekklausa, sem þekkir ekki heiminn. Honum var nauðugur sá kostur að hleypa heimdragan- um. Það er til marks um mis- sættið milli bræðranna, að James gekk á milli allra pi*ent- ara í Boston og sá til þess, að Benjamín fengi ekki atvinnu í annarri prentsmiðju. Ennfrem- ur var Benjamín illa séður í borginni og höfðu ungæðisleg skrif hans í blaðið séð fyrir því. Hann hafði lent í deilu vegna trúmála og farið heldur ógætilega. í augum margra var hann hinn argasti guðleysingi, óalandi og óferjandi. Hann ótt- aðist meira að segja, að ef spyrðist að hann ætlaði að hlaupast á brott úr bænum, yrði komið í veg fyrir, að hon- um tækist það. Hann fékk því vin sinn til að semja við skip- stjóra á litlu skipi um að flytja 2. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.