Vikan - 13.01.1972, Page 46
§íðan §íða§t
Með tígrisdýr
á barnum
Glaðlyndur búllueigandi,
Andy Iardella, í Scarsdale í
New York 1 Bandaríkjunum,
hefur látið innrétta glerbúr á
barnum hjá sér og þar geymir
hann þriggja ára gamlan tígr-
isunga, sem hann kallar „Tolg-
hy“ (Töffi). Er búrið ramm-
byggt mjög og útbúið öllum
mögulegum þægindum fyrir
Töffa, svo sem loftræstingu og
kiósetti. Hefur þetta að vonum
aukið viðskiptin hjá Iardella og
vitanlega þarf ekki að taka
fram að öll dýraverndunarfélög
í USA eru á hælum hans og
krefjast þess að dýrið verði tek-
ið af honum. Kannski Animal
Justice Society í London taki
málið að sér!
Með 105 glös
í hendinni
„The Great Barschelly“ heit-
ir dúó í Vestur Þýzkalandi og
sýna þau listir sínar við góðar
undirtektir, enda eru þau tvö
eina fólkið í heiminum, sem
framkvæmir slíkar listir. Það
sem þau gera er að setja fyrst
fimm kampavínsglös, full af
kampavíni, á bakka og setja síð-
an annan bakka, með fjórum
vatnsglösum, undir þann. Síðan
gengur þetta koll af kolli, þar
til hæðirnar eru orðnar 26 og
glösin 105. Það tók þau tvö ár
að þjálfa sig — og þúsundir
glasa ...
Bretarnir draga líka
Brezka lögreglan hefur löng-
um haft það orð á sér að vera
einstaklega prúðmannleg í allri
framkomu og það hefur vakið
furðu flestra annarra en fslend-
inga, að þar eru lögregluþjónar
(bobbies) ekki vopnaðir
skammbyssum og öðrum dráps-
tólum. Nú er aftur á móti að
verða breyting á þessu og eiga
nú allar löggur á Bretlandseyj-
um að fá skammbyssur. Aftur
á móti mega löggurnar ekki
nota byssurnar, nema í sjálfs-
vörn og við að stöðva vopnuð
rán. Svipaðar reglur gilda í
Bandaríkjunum og víðar, en
mun það mjög upp og ofan
hvernig lögreglumenn túlka
þær. Brezka lögreglan verður
þó vonandi til fyrirmyndar í
þessum efnum, þrátt fyrir að
hún hafi fengið heimildar og
fræðslukvikmyndir frá FBI.
Myndin sýnir brezka bobbía á
æfingu á Wembley-leikvang-
inum.
Sama tungldrossían
fyrir keppinautana
Bandaríkjamenn og Sovét-
menn tala fögrum orðum öðru
hverju um samstarf sín á milli
og hefur hvað hæst verið haft
um samstarf á sviði geimvís-
inda. Nýlega töluðu þeir um að
vinna saman að smíði tungl-
bíls, en báðar þjóðir hafa sent
slíka bíla til karlsins í tunglinu,
þótt aðeins Bandaríkjamenn
hafi sent þangað menn. Þessi
mynd var tekin í Luzern í Sviss
og sýnir Rússann Vitalij Sev-
astianov, stjórnanda Sojus 9 og
James Lowell, stjórnanda á
Appollo 13, maðurinn sem gerði
kraftaverkin í þeirri svaðilför.
Hver veit nema að þessir tveir
eigi eftir að keyra saman í
þessum tunglbíl í raunverulegu
umhverfi?
46 VIKAN 2. TBL.