Vikan - 13.01.1972, Blaðsíða 50
Kona um borð -
Ný og spennandi framhalds-
saga hefst í næsta blaði
Framhaldssögur Vikur.nar hafa notið mikilla
vinsælda að undanförnu; hafa þótt spenn-
andi cg skemmtilegar. I næsta blaði lýkur
annarri þeirra, Nornanótt, en ný hefst. Hún
heitir Kona um borð og er hörkuspennandi
frá upphafi til enda. Við spáum því, að hún
verði ekki síður vinsæl en þær sögur, sem
birzt hafa í vetur. Við hvetjum því lesendur
til að missa ekki af henni, heldur byrja að
fylgjast með henni strax.
Prédikarinn
á Lækjar-
torgi
Allir kannast við
prédikarann á
Lækjartorgi, Sigurð
Sveinbjörnsson.
Loftur Guð-
mundsson rithöf-
undur bregður
upp skýrri mynd
af honum í næsta
blaði.
0 Önnur grein um Benjamín Franklin.
• Smásagan A bak við grímuna.
@ Fjórar litprentaðar uppskriftir í Mat-
reiðslubók Vikunnar.
© Tvö spáný sn'ð frá Simplicity.
© Og ótalmargt fleira.
Hvernig eru franskar konur?
Franskar konur hafa alltaf verið álitnar ást-
leitnari en konur annarra þjóða. En er þetta
rétt? I næsta blaði birtist skemmtileg grein
um frönsku konuna, sem byggð er á viða-
mikilli rannsókn þýzks vikublaðs.
Paul
McCartney
talar
Saga Bítlanna er
stöðugt til umræðu.
Vikan birti í fyrra
langt viðtal við
John Lennon, sem
mikla athygli
vakti. Nú segir
Paul McCartney
söguna frá sínu
sjónarhorni.
Nyree Dawn Porter á marga
vini í London . . . hún er líka
hrifin af öllu þar, nema regn-
inu. Hún fer oft í reiðtúra með
aðdáendum sínum, en hún leit-
ar ekki til þeirra ef hún verð-
ur fyrir sorg.
— Ég sendi boð eftir systur
minni, ég elska hana og eys
yfir hana allri þeirri móður-
ást, sem ég hef ekki getað lát-
ið mínu eigin afkvæmi í té.
Við búum saman í litlu húsi
og við höfum bæði kött og
hund. Ég hef aldrei fyrr átt
hund, en mér finnst það dá-
samlegt, það er svo notalegt að
finna tryggð skepnunnar. Hann
stekkur upp um mig, þegar ég
kem heim, eins og hann vilji
tjá mér ást sína.
En ég segi það satt að ég
elska systur mína mest af öll-
um. Hvernig hún lítur út? Hún
er miklu laglegri en ég. Hún
hefur sítt, svart hár og mjög
ljóst hörund.
Nyree Dawn Porter var mjög
niðurdregin og miður sín eftir
dauðsfall eiginmannsins; þá
var það systir hennar sem
kom henni til huggunar. —
Það er mjög sjaldgæft að syst-
ur séu svo samrýmdar, segir
hún. Önnur er ljós, hin dökk.
Önnur er fræg sjónvarps-
stjarna, hin er ósköp venjuleg
stúlka, en þegar Nyree talar
um systur sína, hlær hún. Hún
tendur upp til að borða sinn
venjulega hádegisverð, harð-
soðið egg og kampavín og seg-
ir um leið, með sinni ljúfu,
hásu rödd: — É'g vildi óska að
ég væri eins og systir mín.
Vinir okkar hafa tekið marg-
ar skemmtilegar myndir af
okkur saman og þegar ég skoða
þessar myndir, þá verður mér
alltaf á að hugsa að það sé hún
sem er falleg . . .
☆
HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU
— Heldurðu ekki að við séum
í Paradís?
50 VIKAN 2. TBL.