Vikan

Tölublað

Vikan - 01.02.1973, Blaðsíða 50

Vikan - 01.02.1973, Blaðsíða 50
Reynið LIMMITS súkkulaði- og megrunarkex strax í dag. Fæst nú aftur í öllum apótekum. Afar bragðgott. HeildsölubirgSir: G. ÓLAFSSON, Aöalstræti 4 Ökukennsla - Æfingatímar Helgi K. Sessilíusson - Sími 81349 Hrúts- merkið 21. marz- 20. apríl Þú stefnir að ákveðnu marki, en ert orðinn nokkuð langeygur eftir árangrinum. Þetta tekur talsvert langan tíma, en allt miðar í rétta átt, svo að þú skalt halda ótrauður áfram. Farðu m|ög gætilega, því að leiðin framund- gn er óskýr. Vendu þig á að hafa sjáIf- stæðar skoðanir. Aðili af hinu kyninu mun verða þér til mikillar hjálpar. Vertu sem mest heima við. Líklegt er, að eitthvað reki á fjörur þínar, sem aðeins veitir þér hamingju, ef þú gerir aðra að þátttakendum með þér. Gerðu það og vertu ekki of eig- ingjarn. Heillalitur er blátt og gult. Krabba- merkið 22. júní— 23. júlí Ókunnur maður ráð- leggur þér í mikils- verðu máli. Þér kemur ráð hans mjög á óvart og finnst fráleitt að fylgja því. Þú skalt samt hugsa málið bet- ur. Hugmyndin er ekki eins fráleit og hún sýnist. Vogar- merkið 24. sept,— 23. okt. Haltu hugsun þinni vakandi og fylgstu vel með því sem er að gerast. Þú ert orðinn háskalega leiður á at- vinnu þinni, enda ættu að leynast víða möguleikar á því sviði. Athugaðu málið vel. Ljóns- merkið 24. júlr'— 24. ágúst Líklega berast þér í hendur talsverðir fjár- munir. Ef þú ert ekki viss um, hvernig þeirra er aflað, skaltu þegar í stað losa þig við þá. Annars gætu þeir leitt af sér ógæfu. Meyjar- merkið 24. ágúst— 23. sept. Sfi-;-’ Þú færð góða borgun fyrir góðverk, sem þú gerðir endur fyrir löngu og varst satt að segja búinn að stein- gleyma. Láttu einskis ófreistað að fara út og skemmta þér svolítið hressilega. Dreka- merkið 24. okt.- 22. nóv. Vertu varkár j sam- bandi við allar ákvarð- anir, sem þú þarft að taka í sambandi við fjármál. Þú hefur í mörg horn að líta þessa vikuna og ættir því ekki að láta neinn hégóma trufla þig. Bogmanns- merkið 23. nóv.— 21. des. Einhver persóna, sem þú þekkir ekki mikið, verður þér til trafala í vikunni. Við því er ekkert að gera, svo að þú skalt taka því með ró og geðprýði. Það verður óvenju skemmtilegt á vinnu- stað. Stein- geitar- merkið 22. des,- 20. jan. Vertu héima og stund- aðu tómstundaiðju þína. Forvitin persóna hefur komizt að ein- hverju í sambandi við þig, sem helzt ekki má vitnast. Reyndu að stinga upp í hana. Annars verður leynd- armálið á allra vitorði. Vatnsbera- merkið j 21. jan,— 19. feb. Þér er nauðsynlegt að umgangast fólk, sem er talsvert yngra en þú. Þú munt eignast marga ágæta vini úr þeim hópi. Þér verður vel ágengt á sviði, sem þú væntir þér ekki mikils af. Fiska- merkið 20. feb— 20. marz Leyndardómsfull at- vik verða til þess, að þú átt mikla ham- ingju í vændum. Þú skalt ekki eyða of miklum tíma í að graf- ast fyrir um orsök vel- gengninnar, heldur njóta hennar sem bezt. 50 VIKAN 5. TBL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.