Vikan - 21.06.1973, Blaðsíða 5
steingeit passa ágætlega
saman, svo og bogmaður og
vog, en skiptingin er annars
svona: hrútur, ljón, bogmaður /
naut, meyja, steingeit/ tvi-
burar, vog, vatnsberi / krabbi
sporðdreki, fiskar. Jæja þú mátt
ekki taka þetta illa upp. Beztu
kveðjur.
Ein i bogmanni.
Satt er það, þessarv stjörnu-
merkjaspurningar eru eins og
faraldur, en við svörum þessu
öllu í beztu meiningu. Hvort
okkar kokkabækur eru réttari
en þinar, skal ósagt látið, en viö
munum halda áfram að fara
eftir þeim. Við styðjumst við
stjörnuspá ástarinnar, sem
kunnur sænskur stjarnspek-
ingur gcröi, og þar segir m.a.
svo um samband bogmanns og
krabba: Sé konan I krabba-
merkinu og karlmaðurinn i bog-
mannsmerkinu, þá ættu þau aö
hafa góða möguleika á
hamingjusömu hjónabandi, þvi
þau skilja hvort annað. Og bog-
mannskonu og krabbakarli er
spáð sambtkðarendingu um alla
lifstið, án þess að þau þreytist
hvort á öðru. En nú er það svo,
að stjarnspekingar eru alls ekki
alltaf sammála, og vonandi fer
fólk yfirleitt meira eftir eigin
tilfinningum og skynsemi en þvi
hvort svar Póstsins er jákvætt
eða neikvætt.
INN ANHÚSSARKITEKTÚR
Kæri Póstur!
Þakka þér kærlega fyrir
indælt svar við bréfi minu i 49.
tbl. siðasta árs. Það er langt
siöan ég ætlaöi að skrifa og
þakka þér fyrir. Ég er farin að
lita á björtu hliðarnar i lifinu, en
samt koma dagar, þegar ég er
mjög niöurdregin. Nú langar
mig að leggja fyrir þig nokkrar
spurningar.
1. Hvaöa menntun þarf maður
að hafa til að geta orðið innan-
hússarkitekt?
2. Hvað tekur langan tima að
læra að verða innanhússarki-
tekt?
3. Hvernig eiga steingeit
(strákur) og tviburar (stelpa)
saman/
Svo þakka ég fyrir allt gamalt
og gott og vona, að þú hafir ein-
hvern tima pláss fyrir þetta
bréf.
Ljósbjörg
Þakka þér sjálfri fyrir bréfið,
og vonandi fækkar „svörtu”
dögunum jafnt og þétt.
Innanhússarkitektúr er ekki
hægt að læra hérlendis, en
erlendis er hægt að mennta sig i
þessu fagi eftir fleiri en einni
leið. i Danmörku er t.d. tveggja
ára skóli, þar sem engin aldurs-
takmörk eða menntunarskilyrði
eru fyrir inngöngu. En nemandi
úr þeim skóla, sem við töluðum
við, kvaðst ekki vilja mæla með
þeirri leið. Hann sagði, að i
Danmörku væri annars konar
skóli, sem tæki 3 ár, inntökuskil-
yrði væru 18 ára aldurslágmark
og tiltekinn vinnutimi á tré-
smiðaverkstæði, auk þess sem
nemendur yrðu að standast inn-
tökupróf. Annars mælti þessi
arkitekt með þvi að fara i
gegnum Tækniskólann og taka
trésmíði eða húsgagnasmiði,
áður en farið væri út i innan-
hússarkitektúr. Viðvikjandi
spurningunni, sem þú vildir
ekki láta birta, er svarið það, að
allt er hægt, ef vilji og áhugi er
fyrir hendi. Steingeitarstráki og
tviburastelpu er ráðlagt að
hugsa sig vel um, áður en þau
ákveða að binda trúss saman.
SVAR TIL MDX
Margar konur búa I hamingju-
sömu hjónabandi allt sitt llf, þrátt
fyrir svolitið ófullkomið kynlif.
Þær eru nú einu sinni ögn öðru
vlsi þannig heldur en karlmenn-
irnir. En þar sem þú sættir þig
ekki viö þina ófullkomnun, virðist
þetta dálitið vafasamt fyrirtæki
hjá ykkur. Hertu upp hugánn og
leitaöi ráða hjá kvenlækni. Ef
Hfshamingja þln e*- I veöi, hlýtur
þaö að verða þyngra á metunum
en feimni þin við lækna. Og I
alvöru: Heldurðu aö þú getir logið
að manninum þinum alla ykkar
ævi? Stafsetning er ekki falla-
laus, en skriftin er lagleg, og úr
henni má lesa heiðarleika og
samvizkusemi.
SÁPUVERKSMIÐJAN MJÖLL HF
25. TBL. VIKAN 5